Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1962, Blaðsíða 13

Húnavaka - 01.05.1962, Blaðsíða 13
H Ú N AVA K A 1 1 bónda, að þetta sé rétt. ,,En þetta hefnr blessast svona sæmilega eftir ástæðum," segir hann og brosir ofurlítið. Og nú gefum við honuni orðið: — Hér á Höllustöðum er nú eingöngu aflað fóðurs handa búpen- ingi á ræktuðu landi. Þar sem áður voru slægjulönd, hefur nú verið tekið til ræktunar. Mestar hafa þessar framfarir orðið á tiltölulega stuttu árabili, því að hér var mjög örðugt um ræktunarframkvæmdir, þangað til skurðgröfur komu, vegna þess hve hér er mikið mýrlendi. Eg hefi nú að mestu gefið frá mér fjáreign, en halla mér að kúnum. Páll sonur minn, sem nú hefur byggt nýbýli á helming jarðarinnar, hefur aftur á móti fjárbúið. Hann hefur þar allt uppeldið, en ég aðeins mínar gömlu ær, meðan þær eru að telja út. Yinna er öll félagsleg fyrir bæði búin. Ég tel betri afkomumöguleika fyrir þá, sem bæði hafa sauðfé og kýr, enda alltaf hægt að stækka búin með kúm, aðeins með því að auka ræktun landsins og nota ræktað land til beitar jafnframt, en þá er nauðsynlegt að hólfa beitilandið. Hér á heimilinu munu væra rúm- lega 400 fjár og annast Páll hirðingu þess einn, og virðist mér, ef húsakostur er haganlegur, sem einn maður geti annað því starfi svo vel fari, án þess að leggja á sig meira erfiði en svo, að nokkrar tóm- stundir fáist, til að sinna öðrum hugðarefnum. Búin þurfa að vera það stór, þar sem bæði er um sauðfé og naut- gripi að ræða, að fullt verk sé þar fyrir tvo menn, sem sinni sínu starf- inu hvor, eða þá félag tveggja, sem skipta með sér verkum. Nú orðið er sumarið auðveldasti tími bóndans, hvað vinnuerfiði snert- ir — var áður erfiðast. Hafi menn bæði fé og kýr, þá er veturinn nú, mjög erfiður einyrkja, sé um eitthvert bú að ræða. Rafmagn er að mínu viti, eitt af því nauðsynlegasta við búskapinn, og tel ég þess enga von, að byggð haldist þar, sem það kemur ekki bráðlega. — Þú ert formaður Búnaðarsambands A.-Húnvetninga, Pétur. — Já, eins og er. Það hefur á prjónunum áframhaldandi og aukna ræktun lands og búfjár. Rekstur þess gekk sæmilega síðast liðið ár, enda þótt verkfallið hindraði eða tefði fyrir framkvæmdum. Af því leiddi erfiðleika með útvegun varahluta og komust sumar vélarnar seinna út til starfs en ella. Ég held ég verði að segja ykkur til gamans frá því, að önnur skurðgrafan gróf 77.777 rúmmetra. Það er dálítið sérstæð tala. Búnaðarsambandið vill á félagi við Kvenfélagasamband og Ung-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Húnavaka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.