Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1962, Side 45

Húnavaka - 01.05.1962, Side 45
HÚNAVAKA 43 Við komumst niður á efsta pallinn. Þá erum við komin niður um eina hæð. Þá eru þrír pallar eftir. Ohh! Nú heyrist svo greinilega þetta brestandi snark eldsins, sem nagar þiljur og aflviði, — já, þetta snark, sem enginn getur lýst til nokkurrar hlýtar. Það var að byrja að þrengj- ast um andrúmsloftið, eldurinn gleypti það á heljarför sinni og reykurinn mettaði það banvænum efnum. Var endirinn ef til vill ekki langt undan? „Almáttugi Guð, hjálpaðu mér.“ Þetta var hljótt andvarp í huga mínum. Ég endurtek það hvað eftir annað, án þess að varir minar bærist. Það á sér dýpri rætur en varajátning. Ég finn að grip stúlkunnar um handlegg minn verður æ fastara. „Ó-ó, ég er að deyja!“ Þetta er lágt angistar- og kvalaóp, sem kemur af vörum stúlkunnar eins og hálfkæfð stuna. „Guð, ó, Guð minn,“ bætir hún við. Leiftursnöggt sé ég fyrir mér litlu stúlkuna, sem í morgun kall- aði á mömmu sína. Ég nem staðar, gríp stúlkuna í fangið og æði ham- stola niður stigann. Hiti, reykjarsvæla, vábrestir í brennandi viði, örvænting, næstum tryll- ingur! Já, þetta var að trylla mig! Aðeins eitt gat sigrast á þessum ógnum — lífið! Ég þekkti vel leiðina út úr brennandi húsinu. Nú var aðeins eftir að komast síðasta spölinn. Og þarna, fyrir fótum okkar léku eldtungur innan um kolsvarta reykjarhnykla. Afram! áfram! Nú gat ég ekki hald- ið augunum lengur opnum, það var nístandi sársauki í þeim. Þetta var skelfilegt! Ég lokaði augunum. Nú varð ég að fara í blindingjaleik við bálið! Ofsalegur hiti fer um fætur mína — og nú upp eftir líkamanum! Ég veit að eldurinn læsist nú um föt mín! O-o-o! Afram nú, upp á lif og dauða! Ég heyri mannaraddir! Er okkur borgið? Ég verð að reyna að opna augun, þó að ég geti ekki bylt mér til. En hvað allt er kyrrt og hljótt. Og svo er ákaflega dimmt. Það er vafalaust komið kvöld — eða bara alla leið fram á nótt. En er ekki sumarnótt núna? Þá ætti ekki að vera svona dimmt. Nei, það er dimmt vegna þess að ég get ekki opnað augun. Hvað er þetta eiginlega? „Jóhanna, Jó- ihanna, ertu þama, elskan mín?“ Ég reyni að kalla þetta, en ég verð þess var, að ég skynja ekki einu sinni sjálfur rödd mína. En nú greini ég mannsrödd. Æ, get ég nú ekki risið upp. Nei, ég get alls ekkert hreyft mig. Eru þessi ósköp martröð? Aftur heyri ég mannsrödd. Nú heyri ég
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.