Húnavaka - 01.05.1962, Síða 64
62
H Ú NAVAKA
sjúklingar lágu þar eða tekið var á móti og enn minna hvaða meðferð
þeir fengu.
Um sögu þessa klausturs í Omt vita menn óvenju mikið, því að annáll,
sá eini af sinni gerð, er varðveitzt hefur frá klaustrum í Danmörku, er
frá Ömt. Annállinn segir frá stofnun þess og þróun um fyrstu aldirnar,
en auk þess er greinargóð lýsing á atburðum í klaustrinu og nafnkennd-
um mönnum, er þar komu við sögu. Annað veifið er rætt um klaustur-
byggingar. Allt þetta gjörði rannsókn á ritum þess auðveldari, er þær
hófust.
Fram til siðaskipta stóð klaustur þetta með miklum blóma. En þá tók
því að hnigna, siðabótin taldi sér eigi skylt að efla þá verklegu og and-
legu iðju, er í klaustrum var unnin. En þó er það svo, að margt það
bezta í þessum siðum, sem er arfur Guðskristni miðaldanna, má telja til
hinna helgu munka.
Við siðaskiptin var það eigi lagt niður en frá 1538 fékk ábótinn í Sórey
yfirumsjón með því ásamt öðrum klaustrum sömu reglu.
En árið 1560 tók ríkið jarðeignir klaustursins, en byggingar þess voru
gjörðar að konungs bústað, Emmuborg. Friðrik II. konungur dvaldi
þar um skeið og kom í hug að gjöra það að setri konungs á Jótlandi. En
1561 — þegar Skanderborgarhöll var byggð og kirkjan þar 1572 — leið
Emmuborg undir lok, því að klausturkirkjan og aðrar byggingar munka-
lífsins voru rifnar og efnið notað til byggingar hinnar nýju hallar.
Ur búgarði klaustursins var byggður bóndabær 1571. Lítil kapella
var það eina, er um aldir fram minnti á forna frægð þessa munkaseturs.
Þess má geta að enn munu vera við lýði hús, sem byggð eru af munka-
steini og viðum klaustursins. Kirkjan stendur enn við Skanderborgarhöll
og Islendingur, Valur Norðdal, bjó um skeið á gömlu herrasetri í grennd
við Ry á Jótlandi. Húsið er gamalt stofuhús í dönskum stíl, byggt úr
viðum frá Omt klaustri.
En margar minjar liðinna alda varðveitir moldin mæta vel. Séu kann-
aðir moldarhjúpar með álíka árvekni og lærdómi og þeir er leifar fornr-
ar frægðar skópu, þá má lesa margt harla fróðlegt á moldarspjöldum
sögu horfinna alda.
Svo hefur hér farið. Arið 1910 var hafizt handa um að grafa í þessar
klausturrústir ásamt kirkjugarðinum, hefur gefizt mikil fræðsla um
húsaskipun og starfið í þessu munkalífi.
Þegar keyrt er í hlaðið á eyk nútímans — bifreiðinni — þá má segja