Húnavaka - 01.05.1962, Síða 65
HÚNAVAKA
63
að engir turnar né hallir né kirkjuveggir tali hér, heldur það er menn
hafa grafið upp úr moldarhjúpnum.
I október 1910 fékk Þjóðminjasafnið vitneskju um gröf, er fannst í
Ömt. Var þá farið að rannsaka leifar þessa horfna munkalífs nánar.
Getur nú ferðamaður séð grunnlínur stórrar klausturkirkju, margra
biskupahúsa og ábóta, og íbúðar- og vinnuhús bræðranna, er voru undir
regluhaldi. Þá er kirkjugarðurinn, sem er alvcg einstæður. A engum
öðrum stað finnast svo margar miðaldagrafir þar í landi, en þær eru
taldar um 700.
Meiri hluti líka hinna dánu eru grafin umbúðalaus, en einnig finnast
menn grafnir á fjalir, í kistu, og einkum innan kirkjunnar, grafir hlaðnar
úr tígulsteini.
Nokkrar þeirra helztu, eru varðveittar með hlerum yfir, og þá þeim
er lyft tekur við glerlok, er í gegnum sér bein hinna framliðnu í gröfum
þeirra. Eru þar sýndar allar tegundir legstaðanna, leikmanna, munka,
ábóta og biskupa.
Eigi fannst mér svipur þessara höfðingja neitt gáfulegri en Páls Jóns-
sonar biskups í Skálholti. En hinn gamli Oddaverji var fyrir nokkrum
árum hafinn úr moldu, og færður fram í dagsljósið. Þess má geta um
þær grafir, sem eru hlaðnar úr tígulstcini, að gerð þeirra er þannig, að
þær eru kistulaga, en gafl þeirra má segja að sé gerður um axlir hinna
framliðnu. En hlaðið því sérstakt útskot fyrir höfuðið.
I hinum víðáttumiklu rústum sér nú gamalt hús, sem í er safn þeirra
muna, er fundizt hafa hér. Fyrir framan það er stór flötur með margs
konar gróðri, því að í fjölda reita rná greina ýmsar lækninga- litunar- og
kryddjurtir, er munkarnir notuðu.
í læknisdómi á miðöldum voru græðijurtir eða lyfjagrös, ræktuð í
klausturgörðunum og voru notuð á margvíslegan hátt. Var af þeim gjört
seyði, smyrsli, áburður alls konar og margs konar lyf t. d. kvefmeðul.
Þegar allt fór í auðn á tímum siðaskipta, uxu lyfjagrös þessi vítt
um hagann í flokki annarra grasa vallarins, unz sýnishornum af þeim
var safnað hér saman. Er inn í húsið kemur er í öðrum enda þess safn
ýmissa muna úr byggingunum, svo sem brot af steinsúlum o. s. frv. Þá
er þar og steinkista skrautleg með glerloki, má þar sjá beinagrind Péturs
Elefssonar biskups. En í hinum enda safnsins eru sýnisskápar með bein-
um hinna framliðnu, skínandi hvítum og lesning með þeim, er lýsir
dánarmeinum manna og þá um leið þeim sjúkdómum, er fólkið þjáðist
af, er kom á hið mikla sjúkrabeð klaustursins.