Húnavaka - 01.05.1962, Blaðsíða 70
68
HÚNAVAKA
En nú fer síldin að veiðast út af Horni og djúpt norður af Skaga. Og
svo er það eitt kvöldið seinast í júní, að það heyrist kallað í talstöðina,
að von sé á síld. Drengir eru sendir á reiðhjóli um staðinn, og nú þurfa
hvorki ungmeyjar eða húsfreyjur að sofa. Áður en varir er kominn
urmull af fólki niður á „plan“. Flestir eru í gúmstígvélum, með gúm-
ermar og svuntur, með bitran hníf í annarri hendi, en disk i hinni. Það
er öll prúðmennska farin af fólkinu, og nú þykist hver mestur, sem mest
getur látið á sér bera, bæði til orðs og æðis. Það er eins og allir hafi
sofið og hvílst, en nú er æpt og hlegið, unnið og jafnvel slegizt um vinn-
una, svo að ekki sé talað um tunnurnar og síldina.
Ekki mega hnífarnir sljóvgast, og prúðbúinn maður, sem er að flækj-
ast á söltunarstöðinni, meðan \ erið er að salta, á þar ekkert erindi, nema
helzt að fá á sig síldarslor og skammir kjaftforustu kerlinganna.
Síldin „silfur hafsins11 er bæði falleg og góð. Við Islendingar kunnum
ekki enn að notfæra okkur þær auðlindir hafsins, eins og efni standa
til.
Síldarbrœðsla:
Og svo er það síldarbræðslan. Skip eftir skip kemur með síld til sölt-
unar og bræðslu. Löndunarkraninn er settur á stað, og nú er landað.
Skip koma og fara. Allt þarf að ganga fljótt. Ef ekki, þá eru hótanir,
skammir og formælingar skipstjóranna yfirvofandi. Síldarþrærnar fyll-
ast smátt og smátt. Þegar bræðslan byrjar hætta flestir karlmenn hér
annarri vinnu og allir, sem til nokkurs eru nýtir fara i „bræðsluna“. Það
er unnið dag og nótt. Mjölið þyrlast og lýsið rennur. Á ótrúlega stuttum
tíma er bræðslu lokið, en mikil verðmæti hafa verið framleidd.
Bræðslunni er lokið. Vélaskröltið og gufuhvæsið er hætt. Aftur eru
unnin hversdagsleg störf. Það er stormur á miðunum. Síldarskipin koma
í landvar og inn á hafnirnar. Mörg skip eru á höfninni og sjómenn í
landi.
Kvenfélagið heldur dansleik. Það er að afla fjár til félags- og líknar-
starfsemi. Við skulum ekki ræða um ballið, en það kom nokkur fjárhæð
í félagssjóð.
LandbúnaSur:
Það er í byrjun maímánaðar, sem ærnar fara að bera hér í kaupstaðn-
um, og eru flestar tvílembdar. Flestir heimilisfeður eiga nokkrar ær
og sumir heila hjörð af fallegum, feitum, lagðprúðum kindum. íslend-