Ægir - 01.08.2014, Page 10
6
„Útreikningar okkar benda til að strand-
siglingarnar, sem Samskip byrjaði með
2013, spari íslenskum farmflytjendum
hundruð milljóna króna í akstursgreiðsl-
ur á ári. Þá er ótalinn sá mikli samfélags-
legi sparnaður sem felst í minna sliti á
vegum landsins vegna samdráttar í
þungaflutningum um þá,“ segir Gunnar
Kvaran, forstöðumaður útflutningsdeild-
ar Samskipa. Hann segir að hjá Sam-
skipum hafi verið búið að undirbúa
strandsiglingarnar í langan tíma áður en
þær hófust í marsmánuði 2013. Þessari
nýju þjónustu hefur verið mjög vel tekið
á landsbyggðinni og hafa Samskip að
sögn Gunnars eignast marga nýja við-
skiptavini í kjölfarið.
Tvær megin flutningslínur
Í dag reka Samskip tvær megin flutn-
ingslínur að og frá landinu. Annars
vegar er það bláa línan með Arnarfell
og Helgafell sem sigla vikulega frá Ís-
landi á fimmtudögum. Þau eru í Vest-
mannaeyjum daginn eftir en koma síðan
til Bretlands á mánudegi, sem hentar vel
fyrir ferska fiskinn sem fer á markað þar.
Þaðan liggur leiðin til hafna í Hollandi,
Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð, áður
en lagt er af stað aftur til Reykjavíkur
með viðkomu í Kollafirði í Færeyjum.
Hins vegar er það nýja græna línan
með Samskip Akrafell sem siglir á
tveggja vikna fresti á ströndina frá
Reykjavík til Ísafjarðar, Sauðarkróks, Ak-
ureyrar og Reyðarfjarðar. Í ferðinni er
safnað sjávarafurðum frá landsbyggð-
inni áður en siglt er með þær á erlenda
markaði. Frá Reyðarfirði er siglt til Kolla-
fjarðar í Færeyjum, Immingham í Bret-
landi og Rotterdam í Hollandi áður en
haldið er aftur til Reykjavíkur.
Auknir strandflutningar
Gunnar segir stefnt að því að fjölga
skipum í strandflutningum og koma aftur
á fjögurra skipa kerfi í Íslandssiglingum
eins og Samskip voru með fyrir efna-
hagshrunið 2008. Þá var fækkað um
eitt skip vegna samdráttar í flutningum
til landsins. Hann segir strandflutning-
ana hafa gengið vonum framar og að
flutningamagnið hafi verið að aukast
síðustu misseri, en forsenda þess að
hægt sé að halda áfram að byggja upp
þjónustuna sé að innflutningur haldi
áfram að aukast. Aðspurður um
samkeppni í strandflutningum segir
Gunnar að hún sé hörð. „Það er mikil
samkeppni í þessum flutningum eins og
öðrum flutningum hér á landi. Rúmri viku
eftir að við hófum strandflutningana í
fyrra tilkynnti samkeppnisaðilinn að
hann myndi einnig fara af stað með
vikulegar siglingar á ströndina með
tveimur skipum. Þeir urðu hins vegar að
draga saman seglin og eru nú með eitt
skip í strandsiglingum. Það er mín
skoðun að ef Samskip hefðu ekki riðið á
vaðið í mars í fyrra þá væru strandflutn-
ingar ekki hafnir ennþá.“ Hann segir að
innflytjendur hafi verið fljótir að færa sér
í nyt þennan nýja möguleika og nú panti
þeir í auknum mæli vörur erlendis frá,
beint inn á tilteknar hafnir á ströndinni.
samskip.is Bás G70
Samskip
Kjalarvogi 7-15, Reykjavík
Sími 458 8000
samskip@samskip.is
„Við leggjum okkur fram um að koma til móts við þarfir viðskiptavinanna og bjóða lausnir sem henta hverju sinni,“ segir Gunnar Kvaran, for-
stöðumaður útflutningsdeildar Samskipa.