Ægir - 01.08.2014, Side 18
„Það er mikil eftirspurn eftir vélstjórum,
bæði hér á landi og erlendis og fyrirsjá-
anlegt að það verður skortur á þeim á
næstu árum og áratugum. Mjög margir
íslenskir vélstjórar hafa farið til starfa er-
lendis og íslenskar útgerðir eru því í
samkeppni um þá við alþjóðlegar út-
gerðir í kaupskiparekstri og olíuiðnaði,“
segir Egill Guðmundsson, skólastjóri
Véltækniskólans. Hann segir marga vél-
stjóra hafa flutt til Noregs en talið er að
um 100 íslenskir vélstjórar starfi nú í
olíuiðnaðinum í Noregi.
Hér á landi er það Véltækniskólinn
sem menntar vélstjóra og vélfræðinga
en hann er einn af 11 undirskólum innan
Tækniskóla Íslands. Véltækniskólinn er
eins og aðrir undirskólar Tækniskólans
með sérstakan skólastjóra og hefur fag-
legt sjálfstæði. Við skólann starfar sér-
stakt fagráð þar sem saman koma full-
trúar atvinnurekenda, launþega og fag-
kennara. „Síðan Véltækniskólinn var
stofnaður upp úr eldri skólum árið 2008
hefur nemendum fjölgað jafnt og þétt.
Þrátt fyrir að námið sé langt og krefjandi
þá er skólinn eiginlega sprunginn
þannig að við getum varla tekið við fleir-
um, en árlega útskrifast héðan um 30
nemendur,“ segir Egill.
Stúdentspróf og full réttindi eftir 5 ár
Véltækniskólinn er á framhaldsskóla-
stigi og býður ýmsar leiðir til réttinda-
náms. Eftir 1 árs hraðferð öðlast nem-
andi réttindi á 750 kw vélar, að siglinga-
tíma og öðrum kröfum uppfylltum og
eftir 3 ár fást réttindi á 1500 kw vélar og
eftir 4,5 ár fást 3000 kW alþjóðleg
réttindi. Eftir 5 ára nám útskrifast nem-
andinn sem vélfræðingur með stúd-
entspróf og full vélaréttindi en þá þarf
hann að hafa að baki meira en 36
mánaða starfsreynslu til sjós sem vé-
stjóri. Öll réttindi eru bundin siglingatíma
og öðrum kröfum sem lúta að öryggi
sjómanna.
Egill segir að um helmingur þeirra
sem útskrifast frá Véltækniskólanum fari
til sjós en hinir fái störf í stóriðjunni, í
orkugeiranum eða á vélaverkstæði sem
þjóna flotanum. „Þegar nemendur ljúka
fullu námi eru þeim allir vegir færir.
Margir halda áfram í háskólanám og þá
helst í tækni- og verkfræðigreinum,
bæði hérlendis og erlendis. Við verðum
ekki varir við annað en að það sé vel
látið af nemendum sem koma héðan.
Þetta er fjölbreytt nám og praktískt og
héðan koma nemendur með mikla fag-
og verkþekkingu.“
Alþjóðlega viðurkennt
og vottað nám
Egill segir námið í Véltækniskólanum al-
þjóðlega viðurkennt og vottað sam-
kvæmt stöðlum Alþjóða siglingamála-
stofnunarinnar, IMO, og því hafi nem-
endur, sem ljúka 5 ára námi, full alþjóð-
leg réttindi samkvæmt kröfum IMO. Að
sögn Egils hafa orðið gífurlegar
breytingar á bæði litlum og stórum vél-
um síðustu 4-5 árin. Hann segir skólann
standa nokkuð vel að vígi með mjög
fullkomna vélherma en hins vegar vanti
enn nýjustu vélarnar. Einnig standi
skólinn nokkuð vel þegar kemur að iðn-
stýringum en notkun þeirra hafi aukist
mjög í öllum vélbúnaði. Þannig sé nú al-
gengt að í dýrustu bílunum séu allt að
100 litlar iðntölvur sem stýra gangverk-
inu og sama þróun sé í gangi á vinnslu-
dekkjum og í vélarrúmum skipanna.
14
Véltækniskólinn
Skólavörðuholti, Reykjavík
Sími 514 9000
egud@tskoli.is
tskoli.is Bás F47
Fyrirsjáanlegur
skortur á vélstjórum
á næstu árum
Egill Guðmundsson, skólastjóri Véltækniskólans, við einn af vélhermum skólans. Hann segir
að um helmingur þeirra sem útskrifast frá Véltækniskólanum fari til sjós.