Ægir - 01.08.2014, Side 20
16
Danfoss hf. hefur lengi þjónað íslensk-
um sjávarútvegi með fjölbreytt úrval af
kæli- og dælubúnaði sem nýtist fisk-
vinnslum, fiskimjölsverksmiðjum og
skipum, stórum sem smáum. Fyrirtækið
hét áður Héðinn verslun hf. en er nú í
eigu Danfoss A/S sem er eitt af stærstu
iðnfyrirtækjum Danmerkur. Danfoss er
með starfsemi víða um heim en höfuð-
stöðvarnar og stærstu verksmiðjur þess
eru í Danmörku.
Dælubúnaður sem Danfoss hf. býður
upp á er af ýmsum gerðum og hefur
síðustu ár verið markaðssettur undir
merki Xylem. „Ég tel okkur geta orðið
við flestum ef ekki öllum óskum við-
skiptavina okkar þegar dælur eru
annars vegar,“ segir Haraldur Sigurðs-
son sölufulltrúi fyrir kælibúnað og dælur
hjá Danfoss hf.
Á Íslensku sjávarútvegssýningunni
mun Danfoss hf. meðal annars kynna
fjölbreytt úrval af dælum og kælibúnaði.
Xylem dælurnar sem Danfoss er um-
boðsaðili fyrir koma víða við sögu. Þær
þjóna hita- og vatnsveitukerfum, skólp-
dælu- og hreinsistöðvum, fiskiðnaði og
fiskiskipum, matvælaiðnaði og nánast
alls staðar þar sem þörf er fyrir dælur af
einhverju tagi.
Dæla sem markar þáttaskil
Meðal þeirra dæla sem kynntar verða á
sjávarútvegssýningunni eru Flygt N-
brunndælurnar sem Haraldur segir að
hafi markað ákveðin þáttaskil þegar
þær komu á markað fyrir nokkrum árum.
„Hið svokallaða N-Chopper hjól, sem
Xylem hefur einkaleyfi á, tryggir að af-
köst dælunnar haldast stöðug því dælu-
hjólið hreinsar sig af óhreinindum, sem
annars vilja setjast á hefðbundin dælu-
hjól og minnka afköst þeirra. Hönnunin
miðar einnig að því að allt viðhald sé
auðvelt og í lágmarki.“ N-dælurnar
henta við flestar aðstæður, allt frá litlum
dælubrunnum upp í stórar frárennslis-
stöðvar og allt þar á milli. Hægt er að fá
þær í mismunandi stærðum og stærstu
dælurnar afkasta allt að 550 lítrum á
sekúndu. Danfoss mun einnig sýna
Lowara dælur sem eru úr ryðfríu stáli og
henta því vel til dælingar á sjó og í tær-
andi efnablöndum.
Leiðandi framleiðandi kæli-
og frystibúnaðar
Af öðrum nýjungum sem Danfoss kynnir
nú eru SVL Flexline™ lokaeiningar fyrir
kælikerfi sem gerir mögulegt að velja
annaðhvot vinkil lokahús eða beint
lokahús auk vals á 5 mismunandi ein-
ingum í lokahúsið. Haraldur segir helstu
kosti lokakerfisins hve auðvelt það er í
uppsetningu og þægileg að geta breytt
kerfinu eftir á án þess að þurfa að skera
lokahúsið úr lögninni. Hann segir Dan-
foss leiðandi framleiðanda á kælipress-
um og sjálfvirkum lausnum í kæli- og
frystibúnaði. Vöruúrvalið er mikið og
vörurnar eru notaðar á fjölmörgum ólík-
um sviðum, allt frá heimiliskæliskápum,
kæliborðum í verslunum og frystig-
eymslum til loftkælinga og sérhæfðra
sjálfvirkra lausna í iðnaði ásamt hraða-
breytum, mjúkræsum og öðrum iðnað-
arstýringum. „Stefna Danfoss er að auka
lífsgæði viðskiptavina sinna með því að
ná fullkomnu valdi á hátæknilausnum í
þeirra þágu. Tæknin er ástríða okkar og
við kappkostum að rísa undir þeim
miklu væntingum sem til okkur eru
gerðar,“ segir Haraldur Sigurðsson sölu-
fulltrúi hjá Danfoss hf.
danfoss.is Bás H31
Danfoss hf.
Skútuvogi 6
Sími: 510 4100
danfoss@danfoss.is
Fjölbreyttur kæli-
og dælubúnaður
frá Danfoss
„Tæknin er ástríða okkar og við kappkostum að rísa undir þeim miklu væntingum sem til
okkar eru gerðar,“ segir Haraldur Sigurðsson, sölufulltrúi hjá Danfoss hf.