Ægir - 01.08.2014, Blaðsíða 22
18
Ný kynslóð ratsjáa
frá Furuno
brimrun.is Bás E50
Furuno hefur sett á markað nýja kynslóð
ratsjáa, FAR-3000 línuna. Þessar ratsjár
búa yfir margvíslegum tækninýjungum.
Skannerhúsin hafa verið endurhönnuð
með tilliti til loftflæðis þannig að ekki
þarf sérstaka viftu inn í þau. Einnig er
þau með mótor sem ekki notar kol.
Stærsta breytingin er kannski svokallað-
ur „solid state“ sendir í ratsjánni. Myndin
í kringum skipið verður skýrari og ratsjá-
in heldur veikum endurvörpum mjög vel
inni.
Þessar breytingar hafa í för með sér
að kostnaður vegna viðhalds verður í al-
gjöru lágmarki. Engin magnetrónuskipti
og engin kol í mótor sem þarf að skipta
um. Uppsetning er einfaldari en áður
þar sem endurvarpinu er nú umbreytt
strax og sent niður á stafrænu formi. Þar
af leiðandi er einungis einn ethernet-
kapall upp í skanner ásamt straumkapli.
Þessi aðferð veldur minna tapi en verið
hefur hingað til í ratsjám. Myndin verður
tærari, sjálfvirkir truflanadeyfar vinna
betur, ferlun marka hraðvirkari og öll að-
greining betri.
Notendaviðmót FAR 3000 ratsjárinn-
ar er með talsvert breyttu sniði. Til hliðar
við myndina er nokkurs konar aðgerða-
stika þar sem hægt er að smella á
hnappa til að kveikja/slökkva á öllum
helstu aðgerðum. Í eldri gerðum ratsjáa
þurfti oft á tíðum að framkvæma nokkrar
aðgerðir til að kalla fram það sama. Efst
er önnur stika þar sem hægt er að sjá
og breyta stöðu ratsjárinnar, s.s. setja
sendingu af/á, breyta styrkstillingu (gain)
o.s.frv. Upplýsingar um stefnu, hraða,
staðsetningu o.þ.h. er á hefðbundnum
stað, þ.e. efst til hægri á skjánum. Allar
aðgerðir er hægt að framkvæma með
kúlumúsinni einni saman og er hægt að
fá stjórnborð eingöngu með mús og
rofa.
Ratsjárnar eru fáanlegar bæði sem X-
band með 4, 6.5 eða 8 feta blaði og
sem S-band með 12 feta blaði. Fjöl-
margir tengimöguleikar eru í boði. 8 inn-
gangar eru fyrir hin ýmsu merki en ef
þörf er á fleirum er hægt að bæta við
tengiboxi sem öll merki tengjast við.
Það sendir síðan gögnin í einum streng
inn á ratsjána. Ef um fleiri en eina ratsjá
er að ræða er tengdur skiptir við tengi-
boxið sem deilir gögnunum niður á allar
ratsjárnar. Þetta sparar vinnu og tíma við
uppsetningu. Einnig er hægt að sam-
tengja ratsjárnar með einföldum hætti
þannig að unnt er að sameina endur-
vörpin frá báðum o.s.frv.
Ýmsir möguleikar eru á kortum fyrir
plotterinn, bæði IMO/IHO S57 edition-3
ENC viðurkennd vektor kort og einnig
C-MAP og CM93 vektor kort.
ECDIS eða Electronic Chart Display
and Information System er sjálfstæður
siglingabúnaður sem meðal annars ger-
ir pappírskort óþörf. Í ECDIS eru lögleg
rafræn siglingakort sem uppfylla alla
nauðsynlega staðla og eru IMO viður-
kennd. Kortin er hægt að fá í áskrift
þannig að þau uppfærast sjálfkrafa og
eru því alltaf eins nákvæm og völ er á.
Hægt er að kalla ýmisskonar skjámyndir
fram á tækinu t.d. ratsjármynd eingöngu
eða ratsjármynd yfir kortið. Þá má fá
ECDIS kortið inn á FAR 3000 ratsjána.
Einnig er hægt að kalla fram svokallaða
leiðsögusjámynd (Conning display) sem
sýnir ýmisskonar upplýsingar sem send-
ar eru inn á tækið frá öðrum búnaði.
Margskonar viðvaranir eru í ECDIS. Gert
er ráð fyrir því að djúprista skipsins sé
skráð inn í búnaðinn. Ef sett er út leið
yfir sker eða grynningar sem eru á
minna dýpi en djúpristan, gefur ECDIS
út viðvörun og heimilar ekki þessa sigl-
ingaleið. Einnig gefur ECDIS út viðvörun
ef stefnulína gefur til kynna að grynnra
vatn sé framundan. Hérna er því um
gríðarlegt öryggistæki ræða.
Brimrún
Hólmaslóð 4, Reykjavík
Sími 525 0250
Fax 525 0251
Kristinn Elíasson, sölumaður hjá Brimrún, er manna fróðastur um nýju ratsjárnar frá Furuno
en þær búa yfir margvíslegum tækninýjungum.