Ægir - 01.08.2014, Side 42
38
capacent.is
Capacent
Ármúla 13
Sími: 540 1000
capacent@capacent.is
„Sjávarútvegurinn hér er mjög framsæk-
inn en ég held að margir Íslendingar
geri sér ekki grein fyrir hvað íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki standa framarlega
í alþjóðlegum samanburði. Um það vitn-
ar meðal annars frábær árangur sem
náðst hefur í fullnýtingu hráefna og nýjar
afurðir sem orðið hafa til við nýsköpun
innan greinarinnar á löngum tíma. Það
er til dæmis ótrúlegt að sjá hversu hratt
og markvisst greinin hefur nýtt sér aukin
tækifæri í uppsjávarveiði og byggt upp
mikla getu á skömmum tíma,“ segir
Steingrímur Sigurgeirsson, ráðgjafi hjá
Capacent.
Capacent hefur um árabil unnið að
fjölmörgum verkefnum innan sjávarút-
vegsins, bæði fyrir einstök fyrirtæki en
einnig fyrir samtök í sjávarútvegi. „Við
búum svo vel hjá Capacent að margir af
ráðgjöfum okkar hafa unnið mikið með
sjávarútveginum og þekkja því vel til
starfsumhverfisins en forsenda þess að
geta veitt faglega ráðgjöf er að þekkja
vel til greinarinnar,“ segir Steingrímur.
Þórdís Sigurðardóttir framkvæmda-
stjóri stefnumótunar- og mannauðssviðs
Capacent segir að þrátt fyrir að margt
sé vel gert í íslenskum sjávarútvegi séu
ávallt mörg tækifæri til að gera enn bet-
ur. „Það má nefna sem dæmi möguleika
sem felast í því að auka framlegð
greinarinnar þó svo að aflaheimildir
verði óbreyttar eða svipaðar. Fyrirtækin
þurfa að horfa til framtíðar, greina tæki-
færi til vaxtar og móta stefnu á þeim
grunni. Tækifæri geta falist í því að bæta
ferla, fá skýrari yfirsýn yfir reksturinn
með markvissum stjórnendaupplýsing-
um en einnig að greina ný tækifæri sem
falla að starfseminni,“ segir Þórdís.
Tækifæri í nýsköpun
Steingrímur bendir á að sjávarútvegsfyr-
irtækjum mæti svipaðar áskoranir og
öðrum fyrirtækjum. Um sé að ræða nú-
tímaleg framleiðslufyrirtæki sem selji af-
urðirnar á alþjóðlegum mörkuðum. Þau
þurfi skilvirka ferla auk gæða- og
frammistöðustjórnunar og festu í starfs-
mannamálum. Síðast en ekki síst þurfi
fyrirtækin að hafa framtíðarsýn og gera
sér grein fyrir hvert þau vilji stefna.
„Aðkoma ráðgjafa felst oft í að
greina tækifærin sem kunna að vera fyr-
ir hendi, t.d. í sölu- og markaðsstarfi og í
nýsköpun í rekstri,“ segir Þórdís.
Fjölbreyttar lausnir
Steingrímur segir að styrkur Capacent
felist meðal annars í að geta boðið sjáv-
arútveginum fjölbreyttar alhliða lausnir.
Hjá fyrirtækinu vinni ráðgjafar í
stefnumótun, ferlum, áætlunargerð, upp-
lýsingatækni, mannauðsmálum, mark -
aðsrannsóknum og á fleiri sviðum.
Stefnumótun leiði gjarnan í ljós tækifæri
á nýjum sviðum og móta þurfi viðskipta-
og aðgerðaáætlanir til að nýta þau tæki-
færi. Hann segir sjávarútveginn standa á
ákveðnum tímamótum. Fyrirtækin fari
stækkandi og starfi á breiðari grunni en
áður þar sem ekki einungis veiðar og
vinnsla séu í auknum mæli innan sama
fyrirtækis heldur einnig markaðs- og
sölustarf á erlendum mörkuðum. Þórdís
tekur undir þetta og bendir jafnframt á
knýjandi þörf fyrir það að íslenskur sjáv-
arútvegur hafi skýrari ásýnd á erlendum
mörkuðum. „Við sjáum að Norðmenn
selja sumar sínar afurðir á hærra verði,
m.a. vegna þess að þeir markaðssetja
vöruna með viðurkenndu vörumerki.
Rannsóknir benda til að við gætum
fengið hærra verð ef við hefðum sterkt
vörumerki fyrir íslenskar sjávarafurðir
sem fyrirtæki gætu nýtt sér,“ segir Þór-
dís.
Fjölmörg tækifæri til
að gera enn betur
Steingrímur og Þórdís segja að styrkur Capacent felist í að geta boðið sjávarútveginum
margþættar lausnir.