Ægir - 01.08.2014, Page 54
50
Umsvifin í Hafnarfjarðarhöfn voru svipuð
á síðasta ári og árinu 2012 en útlit er fyr-
ir talsverðan tekjuauka á þessu ári
vegna aukinna landana makrílbáta.
Þetta segir Már Sveinbjörnsson, hafnar-
stjóri í Hafnarfjarðarhöfn.
„Á þessu ári verður talsvert mikil
tekjuaukning sem helgast af makrílveiði-
nni. Hingað hafa leitað mun fleiri makríl-
veiðiskip en undanfarin ár og ástæðan
er sú að það opnaðist fyrir landanir á
makríl sem veiddur er á Grænlandsmið-
um. Það landa hérna þrjú til fjögur skip í
viku full af makríl og það eru vandræði
með geymslupláss fyrir makrílinn. Frysti-
geymslupláss er því þröskuldurinn. En
hingað koma líka títt önnur skip að
sækja makríl og flytja hann annað, ann-
að hvort innanlands eða til útlanda.
Makríll er því mikill hvalreki fyrir okkur,“
segir Már.
Farþegaskipti hér á landi
Koma skemmtiferðaskipa hefur haldist
stöðug undanfarin ár í Hafnarfirði eða
um tíu skip á ári. Útlit er fyrir að svipaður
fjöldi skemmtiferðaskipa komi á næsta
ári. Þróunin hefur verið sú að minni
skemmtiferðaskip hafa komið til Hafnar-
fjarðar, svokölluð kynnisferðaskip. Í nán-
ast öllum tilvikum koma þau úr Norður-
höfum og við komuna til Íslands eru
höfð farþegaskipti. „Þetta byrjaði fyrir
u.þ.b. sex árum en nú hafa nánast öll
skemmtiferðaskipin, sem koma til
Hafnarfjarðarhafnar, farþegaskipti hér á
landi. Þetta helgast að hluta til af aukn-
um mengunarvarnakröfum sem veldur
auknum tilkostnaði við útgerðina. Það
verður því sennilega stöðugt meira um
það að skipin sigldi hingað og far-
þegarnir komi með flugi. Þetta er að
aukast einnig í Reykjavík. Þetta er já-
kvæð þróun því þessir ferðamenn skila
mun meiri tekjum en áður hefur verið,“
segir Már.
Hann segir að rekstur hafnarinnar sé
stöðugur en engar framkvæmdir standi
yfir. Fram til ársins 2008 var framkvæmt
fyrir um tvo og hálfan milljarð króna.
Verið er að greiða niður af lánum sem
tekin voru vegna framkvæmdanna og
gengur sú niðurgreiðsla vel.
Smábátahöfnin stækkuð
Smábátahöfnin, sem er þekkt undir
nafninu Flensborgarhöfn, sem þýskir út-
gerðaraðilar sem stunduðu útgerð frá
Hafnarfirði í um 200 ár gáfu henni, var
byggð upp í kringum 1970. Már segir að
hún gegni ekki hlutverki sínu fullkom-
lega því smábátar hafa stækkað veru-
lega að undanförnu. Þetta kallar á
breytingar og er verið að skoða með
verkfræðingum hvernig hún verði
stækkuð. Hugmyndin er þá óbreytt
smábátahöfn fyrir minni bátana en að
byggð verði upp ný höfn fyrir þá stærri.
Talið er að framkvæmdakostnaður verði
ekki undir 100 milljónum kr. verði farið út
í framkvæmdina.
Már segir sóknarfæri hafnarinnar fel-
ast í þjónustu við sjávarútveg og rann-
sóknir og námavinnslu við austurströnd
Grænlands. Íslenskar hafnir liggi vel við
sem þjónustuaðilar þar sem mun styttri
sigling er til Íslands en til annarra staða
sem veita þjónustu. Fyrirtaks samgöng-
ur séu við útlönd á suðvesturhorni
landsins og lítil bið eftir varahlutum sé
þeirra þörf.
„Við teljum að Ísland og þar með
Hafnarfjörður liggi mjög vel við þessari
þjónustu. Þarna sjáum við klárlega
sóknarfæri í framtíðinni,“ segir Már.
Stóraukin umsvif
Hafnarfjarðarhafnar
á þessu ári
hafnarfjardarhofn.is Bás P28
Hafnarfjarðarhöfn
Óseyrarbraut 4, Hafnarfirði
Sími 414 2300, fax 414 2301,
hofnin@hafnarfjordur.is
Frá Hafnarfjarðarhöfn. Már Sveinbjörnsson
hafnarstjóri segir rekstur hafnarinnar stöð-
ugan.
Ætlunin er að bæta enn frekar aðstöðu við
smábátahöfnina í Hafnarfjarðarhöfn.