Ægir - 01.08.2014, Side 72
68
olfus.is/thjonusta/hofnin
Þorlákshöfn hefur allar forsendur til
þess að verða næsta stórskipahöfn Ís-
lands. Fyrirhugaðar framkvæmdir og
endurbætur við höfnina ásamt miklu
landrými, sem jafnframt er mjög heppi-
legt byggingarland, gera hana að ákjós-
anlegum stað fyrir framtíðarupp-
byggingu vöruflutninga til og frá landinu.
Þetta er mat Hjartar Bergmanns Jóns-
sonar, hafnarstjóra í Þorlákshöfn, sem
bendir á að aðeins séu um 40 kílómetr-
ar landleiðina til höfuðborgarsvæðisins.
Hjörtur segir þreifingar hafi átt sér
stað um reglubundnar siglingar frá Þor-
lákshöfn til Bretlands og Evrópu. Við-
brögð íslenskra skipafélaga við hug-
myndum um uppbyggingu í Þorlákshöfn
hafi verið frekar dræm en vonandi sjái
þeir sóknarfæri í því. Hann bendir á að
allt sé breytingum háð. Ekki séu ýkja
mörg ár frá því að aðeins eitt flugfélag
bauð upp á ferðir til Íslands. Nú sé öldin
önnur. Engin ástæða sé til þess að ætla
að önnur lögmál þurfi að gilda í
samkeppni um vöruflutninga á sjó.
Mun styttri siglingaleið
Hafnarstjórinn segir það alveg vanta inn
í umræðuna hversu mikið það spari í
siglingatíma og olíukostnaði skipanna
að færa miðstöð vöruflutninga til Þor-
lákshafnar. „Við erum að tala um 16-18
klukkustundir í siglingu frá Evrópu. Ekki
aðeins sparar það olíu heldur þýðir með
öðrum orðum að ferskvara eins og
grænmeti og ávextir, sem flutt er inn til
landsins, kemst jafnvel sólarhring fyrr til
neytenda en nú er. Hversu mikið dregur
það úr rýrnun viðkvæmrar vöru og hver
er peningalegur sparnaður í þessum
þætti einum?“
Hjörtur segir heimamenn ákveðna í
að blása til sóknar. „Breytt siglingaleið
Herjólfs á sínum tíma dró vissulega úr
tekjum hafnarinnar en mannvirkin eru
hér fyrir hendi og Þorlákshöfn er áfram
mikilvæg fiskiskipahöfn. Við teljum að
með þeim breytingum sem fyrirhugaðar
eru muni aðstaðan hér henta fullkom-
lega fyrir komur stærri flutningaskipa.
Allt í kringum okkur eru svo tugir ferkíló-
metra af sléttlendi sem hentar frábær-
lega fyrir hvers kyns uppbyggingu
mannvirkja á landi,“ segir Hjörtur sem
tók við stöðu hafnarstjóra um síðustu
áramót.
Að mestu lokið á þremur árum
Hjörtur segir áætlanir gera ráð fyrir að
kostnaður við uppbygginguna verði um
tveir milljarðar króna. Frumteikningar
liggi fyrir og vonast hann til að hægt
verði að hefja lokahönnun verksins
núna í haust eða vetur með það að
markmiði að framkvæmdum verði að
mestu lokið innan þriggja ára.
Vikur er fluttur út í talsverðum mæli
um Þorlákshöfn en hugmyndir um stærri
skip til flutninganna hafa strandað á að-
stöðunni. Gangi breytingarnar eftir verð-
ur hægt að afgreiða allt að 180 metra
langt og 30 metra breitt skip í höfninni.
„Við erum ekki komin með skriflega
staðfestingu um þátttöku ríkisins í
þessari uppbyggingu en höfum fengið
jákvæð viðbrögð við þessu,“ segir
hafnarstjórinn fullur bjartsýni.
Þorlákshafnarhöfn
Hafnarbakka 8, Þorlákshöfn
Sími 480 3602
hofn@olfus.is
Í höfninni í Þorlákshöfn er gott athafnarými fyrir flutningaskip og á eftir að verða enn betra,
gangi áætlanir heimamanna um uppbyggingu eftir. Hafnarstjórinn, Hjörtur Bergmann
Jónsson, telur mikla framtíðarmöguleika í Þorlákshöfn.
Þorlákshöfn fullkom-
in sem stórskipahöfn