Ægir

Volume

Ægir - 01.08.2014, Page 106

Ægir - 01.08.2014, Page 106
102 vis.is Bás D63 VÍS Ármúla 3, Reykjavík Sími: 560 5000 vis@vis.is „Á sama tíma og slysum í fiskvinnslu fjölgar hefur vinnuslysum sjómanna blessunarlega fækkað,“ segir Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í forvörnum inn- an sjávarútvegsteymis VÍS. Árangurinn sem náðst hefur til sjós segir hann að megi þakka samstilltu átaki margra, ekki síst Slysavarnaskóla sjómanna. Þá kappkosti VÍS að bæta öryggi bæði til sjós og lands með margvíslegum hætti. „Þótt ég segi sjálfur frá þá höfum við á að skipa frábærri og þrautreyndri áhöfn í sjávarútvegsteymi okkar,“ segir hann með bros á vör. „Samanlögð starfs- reynsla okkar í greininni telur áratugi. Í teyminu eru fyrrverandi skipstjórar, stýri- menn, vélstjóri og hásetar. Þannig að auk þess að bjóða hvers kyns tryggingar sem útvegurinn þarf á að halda búum við að mikilli sérþekkingu og vitum hvað viðskiptavinir okkar eru að tala um. Ég leyfi mér því að fullyrða að þjónustan er framúrskarandi.“ Mikið verk að vinna Vinnuslysum í fiskvinnslu hefur fjölgað verulega á undanförnum árum og tíðni alvarlegra slysa hækkað. Í tölum frá Vinnueftirlitinu kemur fram að á fimm ára tímabili fjölgað slysunum úr 68 árið 2009 í 193 í lok árs 2013 eða um 180%. „Þetta er alvarleg og umhugsunarverð þróun ekki hvað síst í ljós fjölgunar alvarlegra vinnuslysa. Það er greinilega mikið verk að vinna,“ segir Gísli Níls. Hann telur líklegt að skýringar á þessari óheillaþróun séu margar og ólíkar. Hugsanlega séu vinnuslys tilkynnt í rík- ari mæli en áður en það eitt skýri varla þessu miklu fjölgun. „Í viðræðum mínum við fólk í grein- inni hefur verið bent á að fiskvinnslurnar eru mun afkastameiri í dag en áður. Hraðinn hefur aukist og vélarnar eru öfl- ugri sem gæti skýrt að slysin eru alvar- legri en áður.“ Gísli Níls bendir á að ör skipti milli tegunda í vinnslunni og álag, þegar mikið hráefni er unnið á stuttum tíma geti einnig haft áhrif. Það geti boð- ið hættunni heim að breyta ört vinnuað- stæðum og færa t.d. fólk á milli véla sem vinna mishratt. Ófullnægjandi eða engar leiðbeiningar, skortur á þjálfun og tungumálaörðugleikar skerði svo enn frekar öryggið í mörgum tilfellum. Samfélagsleg ábyrgð að gæta öryggis starfsfólks Gísli Níls segir að meiri gæðakröfum kaupenda hafi verið mætt með breytt- um tækjabúnaði og nýjum verkferlum. Það hafi skilað góðum árangri í vinnsl- unni sjálfri. Samhliða ætti öryggi og að- búnaður starfsfólks að batna en því mið- ur sé það ekki alltaf raunin. „Öryggis- og gæðamál eiga algjöra samleið og segja má að þetta sé sitthvor hliðin á sama peningnum. Mér finnst allir af vilja gerðir en hér er greinileg brotalöm.“ Til áherslu bætir Gísli Níls við að með auknu vægi öryggismála verði verkferlar skýrari og vinnuaðstæður betri. Vinnuslysum fækki, afköst aukist og kostnaður vegna fjarveru starfsmanna og vinnustöðvunar í kjölfar slysa lækki. „Það er samfélags- leg ábyrgð að gæta vel að öryggi starfs- fólks og hagur allra.“ Gísli Níls segir að auk þess að veita góða þjónustu og ráðgjöf vinni sjávarút- vegsteymi VÍS ötullega að forvörnum með þeim útgerðum sem tryggja hjá fyr- irtækinu. Meðal annars með árlegum út- tektum og ráðgjöf um öryggismál í land- vinnslu. Einnig hafi VÍS um árabil verið í góðu forvarnarsamstarfi við Slysavarna- skóla sjómanna um bætta öryggismenn- ingu um borð í fiskiskipum útgerða hjá VÍS. „Við í sjávarútvegsteyminu erum af- skapleg stolt af því að VÍS var fyrsta tryggingafélagið til að fara í slíkt sam- starf við skólann. Það var árið 2009 og hefur sannað gildi sitt með miklum og sýnilegum árangri.“ Forvarnir, tryggingar og þjónusta fara saman hjá VÍS Sérfræðingar í sjávarútvegsteymi VÍS. Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fyrir- tækjasviðs, Hlynur Angantýsson, Árni Sverrisson, Gísli Níls Einarsson og Ingvaldur Mar Ingvaldsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.