Ægir - 01.08.2014, Page 114
110
Sægreifinn við Geirsgötu er veitingahús
sem á sér enga hliðstæðu og hróður
hans berst um veröld víða á bloggsíðum
og í umfjöllun fjölmiðla um allar álfur.
Staðurinn mælir með sér sjálfur og það
sætir litlum tíðindum lengur að erlendir
fjölmiðlamenn birtist þar til að fjalla um
Greifann og matinn þar. Umfjöllun þeirra
hefur áhrif.
„Hingað koma aftur og aftur erlendir
gesir sem fréttu af Sægreifanum í fjöl-
miðlum heima fyrir. Á dögunum var hér
til dæmis Bandaríkjamaður sem einmitt
las um okkur í New York Times, blaðinu
sem kallaði humarsúpu Sægreifans þá
bestu í heimi!“ segir Elísabet Jean
Skúladóttir. Hún keypti veitingarekstur-
inn af Kjartani Halldórssyni árið 2011 og
heldur þar striki Sægreifans eina og
sanna.
„Ég byrjaði að vinna hérna 2005 og
2009 tók ég að mér að reka staðinn fyr-
ir Kjartan. Hann fór svo að nudda í mér
að taka skrefið til fulls og kaupa rekstur-
inn en ég var treg til þess þar til foreldr-
ar mínir sannfærðu mig um að kýla á
þetta. Ábyrgðin er auðvitað mikil, opið
alla daga ársins og þrjátíu manns á
launaskrá. Sumarfrí heyra sögunni til að
miklu leyti en þetta er gaman og gef-
andi, enda mjög gott starfsfólk og
margir hafa verið lengi. Mórallinn er fínn
og við erum góðir vinir, enda eins gott
því hér er þröngt á þingi og ekki vítt til
veggja.“
Starandi vaxkarl truflaði frú
Kjartan Sægreifi hefur glímt við erfið
veikindi undanfarin tvö ár. Vorið 2013
varð að taka af honum fót neðan við
hné og hann dvelur nú á hjúkrunarheim-
ilinu Eir. Andi hans svífur samt yfir forn-
um slóðum og Elísabet viðheldur starf-
seminu í þeim anda í stórum dráttum.
Þetta undirstrikaði hún með því að láta
gera vaxmynd af Kjartani í fullri líkams-
stærð og hafa á stól í innri salnum á
jarðhæðinni. Amerísk hjón voru þar við
borð í sumar. Þegar þau höfðu setið um
hríð hnippti frúin í bónda sinn og benti á
karl sem sæti úti í horni og starði stöð-
ugt á sig. Hún tók auðvitað gleði sína
snarlega þegar starfsmaður upplýsti
hana um hvernig í málinu lægi. Gestir
kunna annars vel að meta nálægð Kjart-
ans vaxgreifa.
„Sægreifaandinn skiptir öllu máli. Ég
vil halda staðnum eins og menn þekkja
hann og hrófla ekki við innréttingum.
Svo vil ég halda í fastagesti sem Kjartan
kom sér upp, fólkið sem kemur hingað
til að borða siginn fisk og selspik, kæsta
skötu og ýmislegt annað sem það fær
tæplega eða alls ekki annars staðar.
Viðmót gagnvart gestum fylgdi með í
kaupum og þannig vil ég líka hafa það.
Íslendingum fjölgar í viðskiptavina-
hópnum, ekki síst ungu fólki. Erlendir
ferðamenn eru samt í miklum meirihluta
árið um kring og voru enn fleiri í sumar
en í fyrra. Humarsúpan var helsta að-
dráttaraflið en nú er svo komið að grill-
fiskur á spjóti er álíka eftirsóttur og súp-
an.“
Næst dagskrá: pungapróf!
Kjartan er sjómaður í húð og hár, kokkur
til sjós áður en hann stökk í land og
gerðist fisksali og veitingamaður. El-
ísabet gæti aðveldlega verið greifynja
en ekki sægreifynja, ekki ennþá að
minnsta kosti. „Nei, ég hef aldrei verið til
sjós en þigg gjarnan boð um pláss á bát
til að prófa! Það er reyndar einn af
stærstum draumum mínum að róa til
fiskjar og sá draumur mun rætast. Við
pabbi ætlum nefnilega að hefja nám
haustið 2015 og taka pungaprófið. Sjá-
um til hvað gerist svo.“
saegreifinn.is
Sægreifinn
Geirsgötu 8, Reykjavík
Sími 553 1500
seabaron8@gmail.com
Morgunkaffi á Sægreifanum. Elísabet Jean Skúladóttir, Guðmundur Jónsson, Kjartan
„vaxgreifi“ Halldórsson og Hörður Guðmundsson.
Kjartan Halldórsson og Gísli Gíslason,
hafnarstjóri Faxaflóahafna, hittust á Eir núna
í september þegar forsýnd var splunkuný
heimildarmynd Eiríks Guðmundssonar um
Kjartan Sægreifa. Myndin verður sýnd í
sjónvarpi RÚV í vetur.
Andi Sægreifans blívur