Ægir - 01.08.2014, Blaðsíða 122
118
Eins og á fyrri sýningum verður Hamp-
iðjan með veglegt sýningarsvæði á Ís-
lensku sjávarútvegssýningunni í ár. „Við
höfum frá mörgu að segja og verðum
með fjölbreytta kynningu á helstu vörum
okkur á sýningunni, þar á meðal Gloríu
flottrollin, Dynex togtaugarnar og Dynex
höfuðlínukapalinn sem var valinn
áhugaverðasta nýjungin á síðustu sjáv-
arútvegssýningu,“ segir Hjörtur Erlends-
son, nýr forstjóri Hampiðjunnar sem tók
við forstjórastarfinu fyrr í sumar. Hjörtur
er enginn nýgræðingur í faginu því hann
hefur starfað hjá Hampiðjunni í 29 ár.
Meðal nýjunga sem Hampiðjan kynn-
ir nú er Quick fellilínan sem tryggir að
trollpokinn haldist opinn og gott streymi
sé í gegnum hann í toginu. Quick línan,
sem er úr Dynexi hefur mikinn lengdar-
stöðugleika og því tognar ekki á henni.
Hjörtur segir að með trollpokalínu sem
er stöðug í lengd sé komið í veg fyrir að
netið lokist þegar teygist á trollpokan-
um. Þegar það gerist hættir sjórinn að
streyma í gegnum trollið og það tognar
á möskvunum þannig að smærri fiskur á
erfiðara með að sleppa út. Með góðu
flæði í gegnum pokann er trollið ekki
eins þungt í drætti og hráefni sem kem-
ur úr pokanum er betra vegna þess að
fiskurinn merst síður og stærðarflokkun-
in verður meiri. Hann segir mjög fljótlegt
að setja Quick línuna á og taka hana af.
Tugir einkaleyfa
Quick línan var sett á fyrsta pokann fyrir
um 9 mánuðum og síðan er hún komin
um borð í fjögur skip og hefur reynst
vel, að sögn Hjartar. Quick línan er alfar-
ið þróuð hjá Hampiðjunni og um þessar
mundir er verið að sækja um einkaleyfi
fyrir þessari uppfinningu. „Við reynum
að vernda þær hugmyndir sem eru
þróaðar hjá Hampiðjunni og einkaleyfin
sem Hampiðjan hefur fengið skipta í
dag tugum enda spannar starfsemi fyrir-
tækisins vítt svið, bæði í fiskveiðum og í
olíuiðnaði.“ Hjörtur segir ekki nóg að
skrá einkaleyfi, menn verði líka að vera
tilbúnir til að fylgja þeim eftir og grípa til
aðgerða ef upp koma grunsemdir um
eftirlíkingar af þeim lausnum sem fyrir-
tækið hefur þróað.
„Hampiðjan er að mínu mati fremst í
dag í þróun og framleiðslu á tilbúnum
veiðarfærum en samkeppnin er mjög
hörð. Það eru margir sem vilja feta í
okkar fótspor og þess vegna er
nauðsynlegt að verja þá miklu fjár-
festingu sem við höfum lagt í við þróun
veiðarfæra og annarra lausna.“ Að-
spurður segir hann að auk innlendrar
samkeppni sé Hampiðjan í samkeppni
við aðila í Færeyjum og Noregi en
einnig séu Rússar nú að koma inn á
þennan markað.
Góðir bandamenn
Hjá Hampiðjunni er ekki að finna sérs-
taka þróunardeild heldur á þróunin sér
stað alls staðar í fyrirtækinu og í sam-
starfi við viðskiptavini þess. „Starfsfólk
Hampiðjunnar á langan feril að baki hjá
fyrirtækinu á öllum sviðum starfseminn-
ar og hefur því mikla reynslu og þekk-
ingu sem gefur fyrirtækinu styrk og er
lykillinn af velgengni þess. Það er hluti
af fyrirtækjamenningu Hampiðjunnar að
hér eru allir með hugann við vöruþróun.
Við erum stöðugt að þróa og
betrumbæta okkar vörur og við búum
svo vel að eiga öfluga veiðarfæraverk-
smiðju í Litháen sem auðveldar alla
þessa vinnu. Við getum sent nýjungar til
Hampidjan Baltic í Litháen og látið út-
búa prufur og þannig verða smám
saman til lausnir sem síðar eru settar í
framleiðslu. Við erum alltaf með hugann
við hvernig hægt er að gera hlutina bet-
ur og því má segja að þróunarferlið taki
aldrei enda.“ Hjörtur segir Íslendinga
framfarasinnaða og fylgjast vel með nýj-
ungum. „Við höfum notið góðs af því að
íslenskir útvegsmenn, skipstjórnarmenn
og sjómenn hafa verið tilbúnir að vinna
með okkur að nýjungum. Það auðveldar
mjög okkar starf að eiga þessa góðu
bandamenn í greininni, “ segir Hjörtur.
Hampiðjan
Skarfagarðar 4, Reykjavík
Sími 530 3300
info@hampidjan.is
Þróunarferlið tekur
aldrei enda
hampidjan.is Bás D50
Hjörtur Erlendsson, nýr forstjóri Hampiðjunnar, segir fyrirtækið hafa notið góðs af því í gegn-
um árin að íslenskir sjómenn og útvegsmenn hafa alltaf verið tilbúnir að vinna með þeim að
nýjungum.