Ægir - 01.08.2014, Page 180
176
„Þetta er í fjórða skipti sem við tökum
þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni
en hún er góður vettvangur til að fylgj-
ast með því sem er að gerast í sjávarút-
veginum á Íslandi á hverjum tíma. Hér
gefst tækifæri til að hitta þá sem starfa í
greininni og kynna það sem við höfum
upp á að bjóða,“ segir Hjörtur Emilsson,
framkvæmdastjóri verkfræði- og ráð-
gjafafyrirtækisins Navis.
Hjörtur segir að á sýningunni muni
Navis leggja áherslu á alhliða kynningu
á þjónustu fyrirtækisins og kynna
stærstu verkefnin sem unnið er að um
þessar mundir. Þar ber hæst nýjan 100
metra langan frystitogara sem verið er
að hanna fyrir franska útgerð, en einnig
verða sýndar fleiri gerðir fiskiskipa eins
og ísfisktogari og línuskip sem Navis
getur boðið hönnun á.
Góð verkefnastaða
„Navis er það stórt fyrirtæki að við get-
um sinnt bæði nýhönnun og alhliða
þjónustu við margvísleg verkefni eins
og breytingar á eldri skipum. Vegna
hönnunar franska togarans þurftum við
að vísu að bæta við okkur mannskap,
þannig að verkefnastaðan hjá okkur er
mjög góð um þessar mundir.“ Frysti-
togarinn sem nú er á teikniborðinu er
hannaður fyrir útgerð í Saint-Malo í
Frakklandi. Skrifað var undir verksamn-
ing í janúar sl. og á að ljúka verkinu á 13
mánuðum. Smíði skipsins verður boðin
út síðar á þessu ári og er miðað við að
hún hefjist fyrir lok ársins. Hjörtur segir
verkefnið í senn krefjandi og skemmti-
legt því aðstæður við höfnina í Saint-
Malo eru sérstakar og þarf hönnun
skipsins að taka mið af þeim. Þar er 14
metra munur á flóði og fjöru og er siglt
inn í höfnina um hlið sem er opið á flóði
en lokað á fjöru og takmarkast breidd
skipsins og djúprista af þessum að-
stæðum. Togarinn mun leysa af hólmi
tvö eldri skip sem útgerðin gerir út í dag
og verður það gert út til veiða á upp-
sjávarfiski við Bretland hluta úr ári en
annars til bolfiskveiða í norðurhöfum.
Sjávarklasinn styrkir greinina
Hjörtur segir það áhyggjuefni hve fáir
stunda nú nám í skipatæknifræði og
skipaverkfræði. Nokkur ár eru síðan
síðstu nemarnir í þessum greinum
brautskráðust og í augnablikinu veit
hann aðeins um einn Íslending sem
leggur stund á skipaverkfræði. Hann
segir mikilvægt að sjávarútvegurinn hlúi
að þessum greinum og nýti þá þekk-
ingu og reynslu sem til er hér á landi.
Því hefði hann gjarnan viljað sjá meira af
verkefnum í tengslum við endurnýjun
fiskveiðiflotans, sem rætt hefur verið um
að undanförnu, lenda hjá íslenskum
hönnuðum.
Í ársbyrjun flutti NAVIS skrifstofur sín-
ar í hús Sjávarklasans við Grandagarð.
„Með flutningnum hingað erum við í
betri tengslum við önnur nýsköpunarfyr-
irtæki innan sjávarútvegsins og einnig
við skóla- og fræðasamfélagið. Í þetta
hús koma fjölmargir háskólamenn sem
eru að kynna sér það sem er í gangi í
sjávarútveginum og þannig hefur Sjáv-
arklasinn vakið áhuga yngra fólks á því
að starfa í þessum geira. Þetta skiptir
gríðarlega miklu máli og mun gagnast
greininni og þar á meðal okkur bæði til
skemmri og lengri tíma,“ segir Hjörtur
Emilsson.
Útlitsteikning af frystitogaranum sem Navis er að hanna fyrir útgerðina í Saint-Malo í Frakklandi. Við hönnun skipsins þarf að taka tillit til mjög
sérstakra aðstæðna í heimahöfninni.
Navis ehf.
Húsi Sjávarklasans,
Grandagarði 16, Reykjavík
Sími 544 2450
navis@navis.is
navis.is Bás P67
Navis hannar frystitogara
fyrir franska útgerð