Morgunblaðið - 26.05.2015, Síða 9

Morgunblaðið - 26.05.2015, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2015 SVIÐSLJÓS Brynja Dögg Guðmundsdóttir brynjadogg@mbl.is Íslenska ættleiðingarfyrirkomulag- ið hefur vakið eftirtekt á erlendri grundu en í því samhengi er gjarnan talað um íslenska módelið. Krist- inn Ingvarsson, framkvæmda- stjóri Íslenskrar ættleiðingar, segir skipulagið í málaflokknum hérlendis ein- stakt. „Ættleiðing- arfélög erlendis eru rekin einungis með gjöldum umsækjenda en ekki á Íslandi. Hér erum við með þjónustusamn- ing við innanríkisráðuneytið sem tryggir rekstur félagsins þannig að fræðsla, ráðgjöf, stuðningur og þjónusta er tryggð óháð fjölda ættleiðinga til landsins. Svo er eftirfylgd og stuðningur veittur við fjölskyldu þegar heim er komið en þessi heildarmynd þykir fram- úrskarandi,“ segir Kristinn. Hann segir íslenska fyrirkomu- lagið vera hátt skrifað hjá öðrum þjóðum. Til að mynda komi hlut- fallslega fleiri börn frá Tékklandi til Íslands en til annarra landa. Tékkland er ekki með biðlista heldur eru umsækjendur paraðir við börn óháð biðtíma. Þá átti Búlgaría frumkvæði að ættleið- ingasamningi við Ísland. Börn af róma-uppruna „Búlgaría er sérstakt samnings- land fyrir okkur þar sem þeir áttu frumkvæði að því að gera samning um ættleiðingar milli landa. Mér þykir því sérstaklega vænt um þennan samning, hann er við- urkenning á því að breytingarnar sem hafa verið gerðar eru að skila árangri,“ segir Kristinn. Samningurinn var undirritaður í lok apríl síðastliðins en frá Búlg- aríu eru ættleidd um 500 börn á ári. Börnin eru flest af róma- uppruna þar sem börn af búlg- örskum uppruna eru oftast ætt- leidd innanlands. Samningurinn við Búlgaríu er í meginatriðum áþekkur öðrum samningum. Búlg- aría áskilur þó tvær heimsóknir tilvonandi foreldra en aðrar þjóðir láta eina duga þegar barnið er sótt. Miðað er við að ættleiðingarfor- eldri þurfi að vera að minnsta kosti 15 árum eldra en barnið. Hér á landi þurfa ættleiðingarforeldrar að hafa náð 25 ára aldri en algengt er að löndin geri kröfu um að fólk sé frá 30-35 ára og upp í 50 ára gamalt. Gerð eru skilyrði um góða heilsu og tryggan fjárhag. Ein- hleypir geta ættleitt og einnig eru dæmi um að fólk með fötlun hafi ættleitt börn frá Búlgaríu. Samkynhneigðir útilokaðir Samkynhneigðir fá þó ekki að ættleiða frá Búlgaríu frekar en öðrum löndum. Kristinn veit um eitt tilvik þar sem samkynhneigðu pari var leyft að ættleiða al- þjóðlega. Hann hefur þó trú á því að með tíð og tíma geti orðið raun- hæft að samkynhneigðir fái að ættleiða en nokkur lönd eru þegar farin að leyfa samkynhneigðum að ættleiða innanlands. Hvernig ríki stendur að al- þjóðlegri ættleiðingu er innanrík- ismál þess ríkis sem einstaklingur er ættleiddur frá og því hafa ís- lensk lög engin áhrif á þetta. Samningar við sex ríki Á síðasta ári voru ellefu börn ættleidd til Íslands og nú þegar hafa átta börn verið ættleidd á þessu ári. Íslenska ríkið er nú með samning við sex ríki, Indland, Kína, Kólumbíu, Tékkland, Tógó og Búlgaríu. Biðtími eftir barni er mislangur, allt frá nokkrum dög- um upp í átta ár. Fyrst þarf að fara í gegnum ferli á Íslandi þar sem hæfni foreldra er metin. Al- gengt er að ferlið hér taki 6-12 mánuði en hefur verið að lengjast. Þá tekur við biðtími erlendis sem oftast tekur tvö til fjögur ár. Bið- tíminn erlendis er þó styttri ef barn er orðið sjö ára, um ræðir systkini eða börn með skilgreindar þarfir. Algengast er að börn komi til landsins á aldrinum 1-3 ára en elsta barnið hefur verið sex ára. Í upprunaríkinu þarf að tryggja að barnið sé örugglega laust til ætt- leiðingar eins og áskilið er í Haag- samningnum um vernd barna og alþjóðlegar ættleiðingar frá 1993. Foreldri sem gefur barn til ætt- leiðingar fær þriggja mánaða um- hugsunarfrest en á þeim tíma er ekkert gert. Næst tekur við tíma- bil þegar reynt er að finna heimili fyrir barnið hjá skyldmenni. Þá er reynt að ættleiða barnið innan- lands og að lokum er reynt að finna foreldra í öðru landi. Hvert skref er talið taka oftast þrjá mán- uði svo það er í raun í fyrsta lagi eftir níu mánuði sem barn er ætt- leitt til annars lands. Íslenska kerfið til fyrirmyndar  Búlgaría átti frumkvæði að ættleiðingarsamningi við Ísland  Frumkvæðið líklega einsdæmi  Íslenska ættleiðingarfyrirkomulagið skarar fram úr  Tékkar taka íslenska foreldra fram yfir aðra Morgunblaðið/Styrmir Kári Ættleiðingar Stuðningur við foreldra ættleiddra barna og ráðgjöf eftir heimkomu fjölskyldunnar er mikilvæg. Ættleiðing » Íslensk ættleiðing er eina fé- lagið á Íslandi sem heimilt er að annast milligöngu um ætt- leiðingar frá útlöndum. » Ríflega 600 munaðarlaus börn hafa verið ættleidd til Ís- lands. » Í gegnum tíðina hefur verið vinsælast að ættleiða frá Kína en ættleiðingar frá Tékklandi hafa aukist mikið síðustu ár. » Átta börn hafa verið ætt- leidd frá útlöndum á árinu 2015.Kristinn Ingvarsson Opið: Þri. - föst. 10-18 laugardaga 11-16 Sumarfötin í Síðumúlanum... facebook.com/biumbiumstore Instagram: @biumbiumstore Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | Sími 571-3566 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxnaleggings 6.900 kr. Fleiri litir S-XXLStr: mbl.is alltaf - allstaðar Svíþjóð vann Eurovision, söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva, með laginu „Heroes“. Popp- og sjónvarpsstjarnan Måns Zelmerlöw flutti lagið af mikilli innlifun og það virðist hafa haft góð áhrif á þær 195 milljónir sem fylgdust með keppninni í yfir 45 löndum. Zelmerlöw sem er tæplega þrí- tugur kom fyrst fram í sjónvarps- þættinum Idol í Svíþjóð fyrir tíu ár- um síðan og vann þá keppni. Með þessum sigri er Svíþjóð í öðru sæti yfir þau lönd sem oftast hafa unnið Eurovision en þetta er sjötti sigur Svía í keppninni. Írland hefur farið með sigur af hólmi sjö sinnum. Sænska lagið „Heroes“ fékk sam- tals 365 stig en einungis tvisvar sinnum í sögu Eurovision hafa fleiri stig fengist. Sigurinn var því sætur fyrir Svía sem fögnuðu dátt. Rússar urðu í öðru sæti. Sætur sig- ur Svíanna Ljósmynd/Thomas Hanses(EBU) Hetja Svíinn Måns Zelmerlöw.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.