Morgunblaðið - 26.05.2015, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2015
✝ Jón ViðarGunnlaugsson
fæddist á Siglufirði
3. mars 1934. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
í Fossvogi 15. maí
2015.
Foreldrar hans
voru Jóhanna Guð-
rún Friðjónsdóttir,
f. 3.11. 1910, d.
30.12. 1993, og
Gunnlaugur Friðleifsson, f. 29.5.
1899, d. 13.7. 1970. Systir Viðars
var Sigríður Elísabet Gunn-
laugsdóttir, f. 25.10. 1935, d.
22.6. 2013.
Eiginkona hans er Arndís
Kristjánsdóttir frá Móabúð í
björtu Rún, f. 2014. 2) Arna Sig-
rún, f. 1966, gift Haraldi Páli
Hilmarssyni, f. 1962. Börn þeirra
eru Óskar, f. 1993 og Arndís, f.
1996. 3) Gunnlaugur Viðar Við-
arsson, f. 1970. 4) Sonja Guðrún
Viðarsdóttir, f. 1975. Börn henn-
ar eru Jón Arnar, f. 1994, faðir
Gísli Baldursson, f. 1973, og Esja
Bára, f. 2008, faðir Lárus Arnar
Gunnarsson, f. 1967.
Viðar flutti ungur frá Siglu-
firði og fór meðal annars til
Grundarfjarðar á vertíð, þar sem
hann kynntist eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Arndísi Kristjáns-
dóttur. Hann tók ungur atvinnu-
flugmannspróf og starfaði sem
siglingafræðingur hjá Lofleiðum
í mörg ár. Fljótlega eftir að hann
hætti störfum þar hóf hann störf
hjá slökkviliðinu á Keflavík-
urflugvelli, þar sem hann vann
til starfsloka.
Útför Viðars fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 26. maí 2015
kl. 15.
Eyrarsveit á Snæ-
fellsnesi, f. 24.3.
1937. Hún dvelur nú
á hjúkrunarheim-
ilinu Eir í Graf-
arvogi. Börn Viðars
og Arndísar eru: 1)
Auður Kristrún, f.
1957, í sambúð með
Guðjóni Baldvins-
syni, f. 1954, og eiga
þau soninn Guðjón
Gauta, f. árið 2000.
Fyrir átti Auður með Sturlu
Rögnvaldssyni, f. 27.10. 1953, d.
31.5. 2012, synina Viðar, f. 1982,
Rögnvald, f. 1984, og Agnar, f.
1987. Rögnvaldur er í sambúð
með Öglu Ösp Sveinsdóttur, f.
1990, og eiga þau dótturina Dag-
Látinn er tengdafaðir minn
Viðar Gunnlaugsson, fyrrum
flugmaður og síðar starfsmaður
slökkviliðsins á Keflavíkurflug-
velli um árabil.
Er orðið skarð fyrir skildi
þegar Viðar er horfinn af velli og
ekki lengur hægt að njóta gam-
ansemi hans sem stundum gat
reyndar verið hrjúf en samt allt-
af einhvern veginn vinsamleg svo
vel var tekið.
Leiðir okkar Viðars lágu fyrst
saman þegar ég kynntist elstu
dóttur hans og sambýliskonu
minni, Auði Kristrúnu, og kunni
ég strax vel við manninn. Hann
var vanur að tjá manni skoðanir
sínar jafnt á mönnum sem mál-
efnum alveg umbúðalaust og
hressilega, svo ekki var farið í
neinar grafgötur um þær. Þó
hann væri ekki vanur að bera til-
finningar sínar á torg þá vissi
maður alltaf hvar maður hafði
Viðar. Hann var hreinn og beinn
í háttum sínum.
Hann var að jafnaði afskap-
lega ræðinn og gat oft verið unun
að hlusta á hann lýsa ýmsum at-
burðum af lífsleiðinni, ekki hvað
síst frá tíma hans hjá Loftleiðum.
Hann hafði lært til atvinnuflug-
mannsprófs og starfaði sem sigl-
ingafræðingur í flugvélum Loft-
leiða á meðan sú stétt var við
lýði. Þegar flugvélarnar þróuð-
ust þannig að ekki þurfti lengur
nema flugstjóra og aðstoðarflug-
mann í hverri vél, söðlaði hann
um og gerðist starfsmaður
slökkviliðsins á Keflavíkurflug-
velli, sem hann síðan vann hjá
fram að starfslokum sínum.
Ekki var ég farinn að þekkja
hann á þeim tíma en heyrði síðar
margar sögur frá því tímabili
starfsævi hans ekki síður en
flugsins. Hann hafði mætur á
skemmtilegum karakterum og
mönnum sem fóru sínar eigin
leiðir í lífinu og sagði gjarnan frá
þeim.
Á blómatíma hans í fluginu á
sjöunda áratugnum var flug-
mannsstarfið hygg ég mikið æv-
intýri og yfir því sérstakur ljómi
sem ég er ekki viss um að við síð-
ari tíma fólk getum áttað okkur
alveg á, svo alvanalegt sem flugið
og flugferðirnar eru orðnar í dag.
Á þessum tíma fylgdu því nokkur
forréttindi að vera flugmaður,
starfinu fylgdu tíðar ferðir til út-
landa, bæði til Evrópu og Banda-
ríkjanna. Mér fannst Viðar alltaf
bera með sér nokkurn brag
heimsborgara þegar hann sagði
frá ferðum og ævintýrum úr
fluginu. Hann ræddi oft um er-
lendar heimsborgir rétt eins og
þær væru bara Siglufjörður,
hans gamli fæðingarbær. Hann
átti rætur að rekja í Fljótin í
Skagafirði en fæddist og ólst upp
á Siglufirði. Við áttum þess kost
að fara með honum á ættarmót
móðurættar hans árið 2013, sem
haldið var þar. Það var hans síð-
asta ferð á æskuslóðirnar og til
allrar lukku fengum við Auður
hann til þess að fara með okkur
um bæinn og rifja upp líf sitt og
helstu verustaði þar og er sú
fræðsluferð nú orðin að ljúfri
minningu. Hann ólst upp í miðri
hringiðu síldarævintýrisins sem
áreiðanlega hefur verið sérstök
lífsreynsla fyrir unglinga þess
tíma. Mín tilfinning er sú að Við-
ar hafi að mörgu leyti verið
gæfumaður í lífinu, eins og hann
hafði upplag til. Hann kynntist
og starfaði á slóðum tveggja af
stórævintýrum þjóðarinnar, síld-
veiðanna og upphafs millilanda-
flugsins.
Hafðu þökk, kæri Viðar, fyrir
skemmtileg og gefandi kynni á
okkar samleið. Þau munu ylja
um ókomin ár.
Guðjón Baldvinsson.
Jón Viðar
Gunnlaugsson
✝ Sigrún GíslaHalldórsdóttir
fæddist 30. maí
1942 á Halldórs-
stöðum í Seylu-
hreppi í Skagafirði.
Hún lést á Sjúkra-
húsinu á Akureyri
13. maí 2015.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Hall-
dór Gíslason, f.
10.9. 1909, d. 12.10.
1998, og Guðrún Sigurðardóttir,
f. 27.7. 1914, d. 25.3. 1986.
Systkini hennar eru Sigurður, f.
4.8. 1938, d. 25.8. 1938, Ingi-
björg Elín, f. 10.7. 1939, Björn
Halldór, f. 29.11. 1943, d. 5.9.
2000, Sigurður Jón, f. 27.9.
1947, d. 4.11. 1997, Efemía Guð-
rún, f. 10.6. 1952, Erla Sigríður,
f. 23.12. 1955 og Skúli, f. 1.11.
1957.
Þann 17. júní 1967 giftist Sig-
rún Sverri Sigurðssyni Svav-
arssyni, frá Sauðárkróki, f.
24.11. 1934, d. 27.9. 2011. Eign-
uðust þau tvö börn, Svavar Hall-
dór, f. 31.1. 1962, d. 8.1. 1978, og
Elínu, f. 6.8. 1963, d. 17.6. 1989,
gift Einari Erni Einarssyni, f.
Skógaskóla og Vestmanna-
eyjum. Hún vann við símstöðina
í Varmahlíð og fleiri störf hjá
Lindermann, sem rak þar hótel,
bensínsölu ásamt fleiru. Þá vann
hún á nokkrum stöðum á Sauð-
árkróki svo sem í eldhúsinu á
sjúkrahúsinu, við afgreiðslu-
störf í verslun Haraldar Júl-
íussonar, Matvörubúðinni og í
vefnaðarvörudeild Kaupfélags
Skagfirðinga. Hún var í nokkur
ár verkstjóri í unglingavinnunni
á vegum sveitarfélagsins. Þá
var hún í allmörg ár starfs-
maður Sauðárkrókskirkju sem
aðstoðarmaður við athafnir og
umsjón á þrifum á kirkju og
safnaðarheimili, en hafði svo yf-
irumsjón með kirkjugarðinum
allt til starfsloka í september
2011. Þá hafði hún til margra
ára ásamt eiginmanni sínum
umsjón með föndri eldri borg-
ara á Sauðárkróki og hélt því
áfram eftir fráfall hans allt til
æviloka. Sigrún hafði gaman af
söng og starfaði með Kirkjukór
Glaumbæjarsóknar í mörg ár.
Hún var virkur félagi í Sálar-
rannsóknarfélagi Skagafjarðar.
Þá var hún alla sína ævi frí-
stundabóndi og átti bæði kindur
og hesta, sem veittu henni
ómælda ánægju.
Útför Sigrúnar verður gerð
frá Sauðárkrókskirkju í dag, 26.
maí 2015, og hefst athöfnin kl.
14.
18.8. 1960, börn
þeirra eru Halldóra
Ragna, f. 30.6.
1980, gift Gunn-
laugi Eiðssyni, f.
11.7. 1979, og eiga
þau þrjú börn,
Katrínu Díu, f.
21.10. 2004, Elínu
Birnu, f. 19.3. 2006
og Eið Bessa, f.
11.4. 2009. Fyrir
átti Sverrir þrjá
syni, Magnús, f. 9.12. 1954, gift-
ur Ástu Pálínu Ragnarsdóttur, f.
3.6. 1953, eiga þau þrjá syni og
þrjú barnabörn. Ómar, f. 25.11.
1955, d. 20.1. 1985, giftur Aðal-
björgu Ólafsdóttur, f. 11.1. 1959,
þau skildu. Eignuðust þau tvö
börn sem bæði eru látin. Jóhann
Magni, f. 20.5. 1957, giftur
Leidy Karen Steinsdóttur, f.
21.11. 1957, eiga þau þrjú börn
og fimm barnabörn.
Sigrún ólst upp í foreldra-
húsum á Halldórsstöðum við öll
almenn sveitastörf. Sem ung-
lingur var hún í barnapössun
innan sveitarinnar. Þá vann hún
tímabundið við mötuneyti á
ýmsum stöðum, svo sem í
Hún Sigrún móðursystir mín
var, eins og allir vita sem henni
kynntust, athyglisverð kona. Sig-
rún var glæsileg ung kona og eft-
irtektarverð, hennar ævi og
reynsla er þvílík að fáir mundu
vilja upplifa slíkt. Sem barn og
unglingur ólst hún upp við ást og
alúð foreldra sinna og sjö systk-
ina á Halldórsstöðum, tveir
bræður hennar eru látnir. Hún
kynntist Sverri sem var stóra
ástin í hennar lífi þegar hún er
innan við tvítugt, þá var hann
fráskilinn og faðir þriggja sona,
Magnúsar, Ómars og Jóhanns.
Þau hófu sambúð og eignuðust
tvö börn. Svavar Halldór fæddan
31. jan 1962 sem þau missa 8.
janúar 1978 og Elínu fædda 6.
ágúst 1963 sem þau missa 17.
júní 1989, frá tveimur ungum
börnum. Hver gæti hugsað sér
meiri sorg? Þar fyrir utan missa
þau Ómar 30 ára og bæði börnin
hans Ólaf 18 ára og Söru 14 ára.
Sverri missti hún 27. september
2011.
Sigrún var kjarnakona, hrein-
skilin kjaftfor og hispurslaus.
Stundum þótti manni alveg nóg
um skoðanir hennar en hún lá
ekki á þeim og var sjaldnast nein
lognmolla í kringum hana . Hún
var dugnaðarforkur og mikill
dýravinur, þegar ég var stelpa og
var í sveitinni hjá afa og ömmu,
oft ásamt systrum mínum og
Svavari og Ellu, þá komu Sigrún
og Sverrir ásamt fleirum alltaf
um helgar í Halldórsstaði og var
hún þá jafnan ekkert að dunda í
inniverkum heldur úti í heyskap,
smalamennsku eða öðru, og oft
þótti okkur krökkunum hún tölu-
vert stjórnsöm. Þegar ég tók bíl-
próf gáfu þau Sverrir mér gamla
hvíta Moskvitsinn sinn. Á seinni
árum var hún svo með hesta og
kindurnar sínar, sem hún ann-
aðist af alúð meðan heilsan leyfði.
Barnabörnin hennar, Halldóra
og Gísli, voru hennar augasteinar
frá fyrstu tíð og áttu hjá henni at-
hvarf og ástúð þegar þau þurftu,
einnig barnabörn Sverris sem
henni þótti mjög vænt um.
Við vorum saman í gufuklúbb
hér í sundlauginni í nokkur ár og
margt gullkornið hraut af hennar
vörum á þeim stundum. Fórum
yfirleitt út að borða á hverju vori.
Einhverju sinni sagði hún við
okkur Stínu systur: „Það er ótrú-
legt hvað þið getið étið“. Hún var
skírnarvottur þegar Elín Petra
mín var skírð. Á hátíðisdögum
klæddi Sigrún sig upp í íslenskan
búning. Og ógleymanlegur var
brúðkaupsdagur Halldóru á Ak-
ureyri 6. ágúst 2011. Þar stóð
hún við altarið á upphlutnum sín-
um sem svaramaður Halldóru, og
Eiður Bessi tveggja ára leiddi
hana inn kirkjugólfið, svo söng
Sverrir Bergmann við brúðkaup-
ið, algjörlega ógleymanlegur
dagur. Oft sagði hún mér sögur
af litlu langömmubörnunum sín-
um og var oft að prjóna á þau
sokka og fleira. Sigrún vann við
kirkjugarðinn hér í mörg ár og
þau bæði, hún og Sverrir, við
kirkjuna, sinntu þeim störfum af
mikilli alúð og natni. Mér þótti
mjög vænt um Sigrúnu þó ég
haldi að henni hafi oft fundist ég
óttalegur bjálfi. Ég trúi því að
henni líði betur núna, laus við
kvalir og lasleika og ég veit að
það hafa margir tekið henni
fagnandi þegar yfir kom.
Elsku Maggi, Jonni, Halldóra,
Gísli, mamma, Effa, Erla, Skúli
og fjölskyldur. Mínar hjartanleg-
ustu samúðarkveðjur, minning
hennar mun lifa með okkur.
Sólveig Þorvalds.
Sigrún Gísla
Halldórsdóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
HAUKUR BREIÐFJÖRÐ
GUÐMUNDSSON,
Víðivöllum 20,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
laugardaginn 30. maí kl. 13.30.
.
Halldóra Sigmundsd.,
Guðmunda Laufey Hauksdóttir,
Guðjóna Kristín Hauksdóttir, Sveinn Þórðarson,
Ólafur G.R. Hauksson, Sigríður Pálsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR H. HAUKSSON,
Gússi,
Norðurfelli 7,
Reykjavík,
lést á líknardeild í Kópavogi
miðvikudaginn 20. maí.
Útför hans fer fram frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 29. maí kl. 13.
Sérstakar þakkir fá hjúkrunarþjónustan Karitas og starfsfólk á
líknardeild Landspítalans fyrir góða umönnun og alúð.
.
Haukur Gunnarsson, Valgerður Gunnarsdóttir,
Helgi Tómas Gunnarsson, Sandra Eðvarðsdóttir,
Gunnar Þór Gunnarsson, Lena Magnúsdóttir,
Kristín Gunnarsdóttir, Sverrir Steindórsson
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
HANNES HJARTARSON,
Hannes í Húsasmiðjunni,
Goðheimum 20,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn
17. maí.
Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 28. maí kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
.
Þórunn Pálsdóttir,
synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURLÍNA GUNNLAUGSDÓTTIR,
garðyrkjufræðingur,
áður Reykjum í Ölfusi,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 27. maí kl. 13.00.
.
Hulda Axelsdóttir,
Álfdís Elín Axelsdóttir, Martin Kennelly,
Erla Dís Axelsdóttir, Pétur H. Hannesson,
Ari Víðir Axelsson, Anna Margrét Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BJÖRN GÚSTAFSSON
frá Ásbyrgi, Djúpavogi,
síðast til heimilis á Höfða,
hjúkrunar- og dvalarheimili
á Akranesi,
lést 20. maí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 28. maí kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Höfða.
.
Hilmar Björnsson, Hanna Rúna Jóhannsdóttir,
Lea H. Björnsdóttir, Aðalsteinn Sigurgeirsson,
Jón Valdimar Björnsson, Selma Guðmundsdóttir,
Sigrún Björnsdóttir, Júlíus Ólafsson,
Hreinn Björnsson, Ingibjörg J. Ingólfsdóttir,
Hlíf Björnsdóttir, Magnús F. Ingólfsson
og fjölskyldur.
Fleiri minningargreinar
um Sigrúnu Gíslu Halldsórs-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.