Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015
Mér er sagt að þegar Sundlaug Vest-urbæjar í Reykjavík var reist upp úrmiðri síðustu öld hafi frumkvæðið
komið frá Framfarafélagi Vesturbæjar. Tilvist
þessa félags hafi borið vott um áhuga íbúanna
á því að taka ábyrgð á umhverfi sínu. Róður
þessa félags hefur þó að öllum líkindum ekki
verið mjög þungur því yfirvöldin á þessum
tíma litu á það sem hlutverk sitt að sjá fyrir
allri innri grunnþjónustu og aðstaða til íþrótta
og hreyfingar var þar ekki undanskilin. Sund-
laug Vesturbæjar var og er án íburðar en
glæsileg er hún. Það jók á glæsileikann að í
anddyrinu hafði verið komið fyrir fiskabúri
einu miklu með skrautfiskum ættuðum sunnan
úr álfum. Þessi viðbót við vatnaveröld Vestur-
bæjarlaugarinnar hreif gestina, ekki síst yngri
kynslóðina.
Svo leið tíminn og fiskabúrið var tekið niður,
þótti eflaust ekki svara kostnaði að gleðja aug-
að, eða til hvers ætti að gera það?
En nú gerist nokkuð merkilegt. Og það nú
alveg nýlega. Í anda gamla framfarafélagsins
taka nokkrir Vesturbæingar sig saman um að
ræða leiðir til að glæða nærumhverfið lífi.
Kaffihús Vesturbæjar mun vera af þessari rót
en áður kom fiskabúrið í sundlaug Vestur-
bæjar. Gamla fiskabúrið hafði lifað af í óljósum
endurminningum. En nú var ákveðið að safna í
nýtt búr. Þar með var sagt að sá tími væri
runninn upp að nýju þar sem menn tækju
ábyrgð á umhverfi sínu. Og borgin svaraði með
því að heita því að viðhalda búrinu.
Mér varð þetta tilefni nokkurra hugleiðinga.
Í fyrsta lagi spurði ég hvort það gæti verið að
við sem samfélag hefðum færst í þá átt að
skera svo við nögl í öllu sem er okkur sameig-
inlegt að við tímum ekki lengur að kosta annað
en það sem ýtrasta nauðsyn krefur? Gæti verið
að, nánast án þess að við tækjum eftir því,
værum við komin inn í veröld þar sem augað
er aðeins glatt innan veggja prívatheimsins en
síður í sameiginlegu rými? Ég minnist þess
þegar ég lenti í fyrsta skipti á JFK-flugvell-
inum í NewYork og bjóst við glæsilegu um-
hverfi en áttaði mig svo á að í ríkasta landi
heims er auðlegðin aðeins í takmörkuðum mæli
nýtt í almannarýminu.
Og hugurinn reikar til glæsilegra bygginga
sem fátæk íslensk þjóð byggði á tímum van-
efna á öndverðri öldinni sem leið og hvernig
örlætið á sameiginlegt manngert umhverfi
virðist síðan skreppa saman í öfugu hlutfalli
við aukna auðlegð þjóðarinnar.
En er þá allt að fara á versta veg? Nei, svo
er ekki. Fiskabúrið í Sundlaug Vesturbæjar er
til marks um að landið getur risið að nýju og
byrjað að hugsa stórt fyrir okkur öll – saman.
Fiskabúrið í Sundlaug Vesturbæjar
* Það jók á glæsileikannað í anddyrinu hafðiverið komið fyrir fiskabúri
einu miklu með skrautfiskum
ættuðum sunnan úr álfum.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Rithöfundurinn
Eiríkur Örn
Norðdahl skrif-
aði á Facebook:
„Það er merkileg
tilfinning að vera
vottað fjárhags-
legt svarthol.
Það verður nú
bara að viðurkennast. Ég skiptist á
að flissa að þessu og stara tóm-
eygur og vantrúa út í heiminn. Ein-
hverntíma reiknaði ljóðskáldið
James Sherry það út, svart á hvítu,
að ef maður tæki auða pappírsörk
– sem hefur eitthvert tiltekið
markaðsvirði, það er hægt að selja
pappír og græða á því – og prent-
aði á hana ljóð þá glataði hún ekki
bara virði sínu heldur yrði það
neikvætt. Ljóð eyða peningum,
skilja eftir sig sviðna jörð. Mikil-
fengleg brotlending mín í greiðslu-
matinu (sem ég hef áfrýjað) – er
enn ein sönnun þess að gildi lista,
metið í beinhörðum peningum, er
alltaf neikvætt, sama hvað annað
kemur til.“
Blaðamað-
urinn Friðrika
Benónýsdóttir
lagði orð í belg
eftir greinaskrif
þar sem pólitísk
framtíð Katrínar
Jakobsdóttir var
reifuð: „Sorry,
en er það kalla úti í bæ að ákveða
hvað Katrín J. tekur sér fyrir
hendur í framtíðinni? Hrikalegt
patronæs!“
Þorbjörg
Helga Vigfús-
dóttir, fyrrver-
andi borgar-
fulltrúi Sjálfs-
stæðisflokks,
skrifaði á Twitt-
er: „Verð að
hrósa Ms fyrir nýtt sykurminna
skólajógúrt. Takk kærlega sam-
keppnisaðilar. #arna #biobu
#mjolka“.
Grínistinn
Halldór Hall-
dórsson með
meiru, betur
þekktur sem
Dóri DNA,
færði draum sinn
í orð á Twitter:
„Ef ég væri mjög
ríkur myndi ég kaupa mér fót-
boltamann, eins og félagslið. Bara
láta hann hanga með mér.“
AF NETINU
Vettvangur
hina hamingjusömu hóru heldur verið beitt
miklu ofbeldi. Þá skín tvískinnungur þessa tíma
líka vel í gegn þar sem kúnnarnir voru þeir sem
fordæmdu vændiskonurnar í opinberri umræðu
að degi til en keyptu svo þjónustu af þeim á
nóttunni.“
Kvöldið er blanda af leik og söng en þó verður
enn bætt um betur og líka dansað þar sem Mar-
grét Erla Maack ætlar að setja sinn svip á
kvöldið. Bogomil Font, sem hefur gefið út plötu í
anda þessarar tónlistar, mun einnig stíga á pall.
Brynhildur lauk burtfararprófi frá Söngskól-
anum í Reykjavík og prófi í leiklist frá Drama
Studio. Undanfarin ár hefur hún þó fyrst og
fremst vakið athygli fyrir framleiðslu barna-
efnis í útvarpi og sjónvarpi. Aðalheiður lauk
prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og hef-
ur leikið á píanó með fjölmörgum einsöngvurum
og kórum.
„Ég hef verið mjög heilluð af þessari tónlist síð-
an ég var rétt um tvítugt og var í mínu söng-
námi,“ segir Brynhildur Björnsdóttir söngkona
sem ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur píanóleik-
ara skapar óvenjulega stemningu á Kaffi Rósen-
berg núna á mánudagskvöldið, 11. maí.
Staðnum ætla þær að breyta í ódýra og tötra-
lega knæpu þar sem þemað er vændiskonur,
viðskiptavinir og glasaguddur. Á tónleikunum
verða flutt lög eftir Kurt Weill við texta Ber-
tolds Brechts og fleiri en yfirskrift tónleikanna
er Hin ramma ánauð kynlífsins.
„Titillinn kemur úr einu laginu og er þýðing
Þorsteins Gylfasonar, sem þýddi mikið af þess-
um textum. Það sem er svo grípandi við þessi
verk er að þótt laglínurnar séu undursamlegar
fallegar eru textarnir afar óhugnanlegir þar
sem hver einasta kona sem talar er vændiskona
sem hefur upplifað allt annað en goðsögnina um
Breyta Rósenberg
í vændisbúllu
Brynhildur Björnsdóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir munu skapa sérstaka stemningu á Kaffi
Rósenberg á mánudagskvöld og sérstakir gestir eru Bogomil Font og Margrét Erla Maack.
Ljósmynd/Halla Kristín Einarsdóttir