Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015
G
jarnan er sagt að
vísindamenn séu
meira viðutan en
aðrir menn. Dr.
Bjarni Már Magn-
ússon gerir ekkert til að kollvarpa
þessari kenningu þegar fundum
okkar ber saman á þriðju hæð Há-
skólans í Reykjavík. Um leið og við
höfum heilsast með virktum kemur
nefnilega í ljós að Bjarni er búinn
að læsa sig úti. Hefur gleymt að-
gangskortinu. „Afsakið, getið þið
opnað fyrir okkur?“ segir hann við
stúlkurnar í móttökunni. Lítið eitt
skömmustulegur. Þær bregðast
skjótt við – með bros á vör.
Bjarni leiðir mig inn í rýmið sem
hýsir skrifstofur kennara í HR og
við komum okkur makindalega fyr-
ir í sófum á kaffistofunni. Tilefni
heimsóknarinnar er að fræðast um
rannsóknarverkefnið Fulbright
Arctic Initiative sem Bjarni á aðild
að. Markmið þess er að styrkja al-
þjóðlegt vísindasamstarf á sviði
norðurskautsmála og munu sautján
vísindamenn frá öllum aðild-
arríkjum Norðurskautsráðsins taka
þátt í verkefninu næstu átján mán-
uðina. Fyrsti fundur hópsins verður
síðar í þessum mánuði í Iqaluit á
Baffinslandi sem tilheyrir Kanada.
Sá þetta bara auglýst
„Ég sá þetta bara auglýst og sótti
um,“ segir Bjarni sposkur á svip
þegar spurt er hvernig þetta hafi
komið til. Auglýsingin kom frá Ful-
bright-stofnuninni á Íslandi og
mælti hún í framhaldinu með
Bjarna við móðurstofnunina í
Bandaríkjunum sem valdi hann síð-
an í hópinn.
„Þegar maður fer yfir listann yf-
ir þessa sautján vísindamenn sýnist
manni Fulbright-stofnunin hafa
lagt upp með að hafa hópinn bland-
aðan, annars vegar reynda menn
og hins vegar menn sem eru að
stíga sín fyrstu skref á hinni aka-
demísku braut. Ætli ég teljist ekki
tilheyra síðarnefnda hópnum,“ seg-
ir Bjarni.
Rannsóknarverkefni verða unnin
á sviðum orku, vatns, heilsu og inn-
viða og mun Bjarni vinna verkefni
sem tengist orkumálum. Hann
kveðst ekki í annan tíma hafa tekið
þátt í eins áberandi verkefni, þar
sem sendar séu út fréttatilkynn-
ingar frá bandaríska utanríkisráðu-
neytinu til að greina frá því.
Áformað er að vísindamennirnir
hittist allir í þrígang á fundum á
þessum átján mánuðum en þess á
milli munu þeir bera saman bækur
sínar í netheimum í gegnum ein-
hvern rosalegasta fundarbúnað sem
Bjarni hefur augum litið. Hann
mun vera úr fórum bandarísku ut-
anríkisþjónustunnar.
„Orkuhópur verkefnisins er lang-
stærstur og á fyrsta fundinum á
Baffinslandi verður rætt hvernig
hægt verði að flétta saman rann-
sóknaráherslum okkar og þessum
einstaklingsverkefnum sem við ætl-
um að vinna að,“ segir Bjarni.
Fékk hárblásarann á sig
Verkefni Bjarna fjallar um tilkall
Bandaríkjanna til landgrunnsins
fyrir utan 200 sjómílur frá strönd-
um Alaska og ýmsar flækjur er
skapast fyrir þær sakir að Banda-
ríkin eiga ekki aðild að hafréttar-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Ég
hef haft mikinn áhuga á þessu máli
frá því ég stundaði meistaranám í
Miami. Tilkynnti þá prófessornum
mínum, Bernard Oxman, sem er
helsta nafnið í faginu í Bandaríkj-
unum, að Bandaríkjamenn gætu
ekki gert tilkall til landgrunnsins.
Fékk þá hárblásarann á mig í tutt-
ugu mínútur – og það kveikti enn
frekar í mér.“
Hann hlær.
Spurður hver niðurstaðan sé seg-
ir Bjarni málið afar flókið og í raun
ekkert eitt endanlegt svar til. „Það
á eftir að slá punkti fyrir aftan
málið en í stórum dráttum snýst
það um réttindi og skyldur ríkja
sem ekki eiga aðild að tilteknum
samningi.“
Bandaríkjamenn tóku nýverið við
formennsku í Norðurskautsráðinu
og tengist verkefnið því en stjórn
Fulbright-stofnunarinnar er skipuð
af forseta Bandaríkjanna. „Það er
mikil upphefð að komast inn í
svona Fulbright-verkefni og harð-
kjarna stimpill til lengri tíma litið.
Ég hef strax orðið var við það en
farnir eru að detta inn hjá mér alls
kyns tölvupóstar um að taka þátt í
hinu og þessu. Þetta virðist því
ætla að galopna fleiri dyr.“
Ekki þarf alltaf fína styrki til að
opna dyr í fræðasamfélaginu.
Bjarni mun til dæmis dveljast við
lagadeild Duke-háskóla í Banda-
ríkjunum sem gestafræðimaður á
vormisseri 2016 en sú dvöl er af-
leiðing karókí-kvölds í Japan.
Nema hvað? Bjarni ætlar þó að
nota tímann við Duke til að sinna
Fulbright verkefninu.
Gott að vera
sleipur í karókí
„Ég veit ekki hvort ég á að segja
þessa sögu í fjölmiðlum en látum
hana samt flakka,“ segir Bjarni
hlæjandi. „Þegar ég var í doktors-
námi í Edinborg var ég að vinna
aðeins með prófessornum mínum
að dómsmálum fyrir alþjóðlegum
dómstólum. Var til dæmis í laga-
teymi Bangladess gegn Myanmar í
dómsmáli um afmörkun hafsvæða í
Bengalflóa. Einn í teymi Myanmar
kennir við Duke-háskóla og ég hitti
hann aftur þegar ég var að halda
erindi í Tókýó nokkru síðar. Auð-
vitað enduðum við í karókí um
kvöldið. Fleiri virtir menn voru
með í för og þetta hefur líklega
verið eitt besta „career move“ sem
mér hefur flogið í hug. Það getur
borgað sig að hitta fólk og vera
sleipur í karókí.“
Hann hlær.
Bjarni er mjög spenntur fyrir
dvölinni við Duke. Ekki nóg með að
Duke sé háttskrifaður skóli á sviði
vísinda heldur er lið skólans líka
bandarískur meistari í háskóla-
körfubolta og úrslitakeppnin fer
fram í mars. „Þetta er skrifað í
skýin,“ segir Bjarni léttur í bragði
en hann er forfallinn áhugamaður
um körfubolta og iðkar þá ágætu
grein í frístundum sínum.
Málefni norðurskauts verða sí-
fellt fyrirferðarmeiri í hinni al-
þjóðlegu umræðu og Bjarni hlakkar
til að kynna sér þau mál frekar
gegnum verkefnið. Miklir hags-
munir geti verið í húfi fyrir okkur
Íslendinga. „Annars snúast norð-
urskautsmál ekki bara um tæki-
færi, þau snúast líka um ógnir. Við
megum alls ekki horfa of þröngt á
þessi mál enda ómögulegt að segja
fyrir um hver þróunin verður.
Hlýnun jarðar getur ekki bara haft
mikil áhrif á umhverfið heldur ekki
síður á líf frumbyggjanna. Það er
að ýmsu að huga og mikilvægt að
finna eitthvert jafnvægi sem flestir
geta fellt sig við.“
Miklu fé varið
í rannsóknir
Á sviði hafréttarmála segir Bjarni
mikla umræðu hafa átt sér stað um
norðurslóðir en varla sé hægt að
tala um átök í því sambandi. All-
tént ekki í samanburði við önnur
Upphefð að
taka þátt í
svona áber-
andi verkefni
BJARNI MÁR MAGNÚSSON, LEKTOR VIÐ LAGADEILD
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK OG DOKTOR Í HAFRÉTTI, HEFUR
VERIÐ VALINN TIL ÞÁTTTÖKU Í ÞVERFAGLEGA RANN-
SÓKNARSAMSTARFINU FULBRIGHT ARCTIC INITIATIVE SEM
HRINT VERÐUR AF STOKKUNUM Í VOR. VERKEFNINU, SEM
STYRKT ER AF BANDARÍSKUM STJÓRNVÖLDUM, ER ÆTLAÐ
AÐ VERA FLAGGSKIP NORÐURSKAUTSRANNSÓKNA.
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is
* Ég er mjög þakklátur fyrir viðtök-urnar sem þessar rannsóknir mínarhafa fengið, mér hefur verið boðið mjög
víða til að kynna þær og byggt upp gott
tengslanet í leiðinni. Það er gríðarlega
mikilvægt í mínu starfi.
Svipmynd