Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Qupperneq 17
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Það vill stundum gleymast að það á ekki síður við að nota hjálma þegar farið er á hlaupahjólin sem eru sí- vinsæl. Börnin þeysast á hjólunum og lenda á steinum og öðru á stígunum og geta auðveldlega dottið. Líka hjálm fyrir hlaupahjól*Það er margt mikilvægara í lífinu en aðvinna gullverðlaun. Fjölskyldan er mérmikilvægari og hún stendur með mér. Ben Johnson íþróttamaður. Kattaeigendum, sem langar tilað skilja kettina sína betur,má benda á áhugaverða bók um tungumál katta sem National Geographic hefur gefið út og er eft- ir Bandaríkjamanninn Gary Weitzman en bókin er einnig einkar aðgengileg fyrir börn. Mjálm, mal, hvæs og ýmis hljóð eiga að sögn Weitzmann, sem hefur lengi rannsakað atferli katta, að tákna alls konar tilfinningar og blæ- brigðamunur hljóðanna getur skipt miklu máli. Kettlingar geta framkallað 16 tegundir af mjálmi og hvað hvert mjálm táknar er nær aldrei breyt- anleg milli katta og þýðir yfirleitt eitthvað svo sem; Hleyptu mér út, gefðu mér mat, ég er þyrstur og mig vantar knús en í bókinni er far- ið vandlega yfir hvað hvert mjálm þýðir alla jafna og hljóðinu lýst. En það eru ekki bara heyranleg hljóð sem kettir nota til að koma skoðunum sínum og óskum á fram- færi því það getur líka verið krafs og hvernig þeir nota augun og skottið sem hefur þýðingu. Til dæm- is tjáir kötturinn vináttu sína við manninn með því að blikka öðru auganu til hans hægt og Weitzman gengur svo langt að fullyrða að nær komist köttur því ekki að senda eig- anda sínum koss. Prófi eigendur að blikka köttinn sinn í góðu tómi mun kötturinn endurgjalda slíkt blikk samkvæmt bókinni. Þá er það á við handaband að rétta skottið beint upp í loftið. Eyrun og hvernig kettir hreyfa þau er líka partur af þeirra tján- ingu. Margir kattaeigendur þekkja það vel, ef þeir verða hræddir leggja þeir þau flöt niður. Þeirra leiðarvísir í lífinu, veiðihárin sjálf, eru þá beint út eins og hár á strákúst þegar kettir eru glaðir og ánægðir en því meira niður, því daprari og neikvæðari tilfinningar eru þeir að upplifa. Benda má á að á RÚV síðastliðið mánudagskvöld var þáttur um ýms- ar leyndar hliðar katta og atferli þeirra en hægt er að horfa á þátt- inn á Sarpinum. HEGÐUN KATTA Í BÓK NATIONAL GEOGRAPHIC 16 mismunandi mjálm og kossar Flestir kettir nota sömu mjálm fyrir sömu óskir og hvernig þeir nota til dæmis augun segir mikið um þeirra hug. Blikk er ástarjátning til eigandanna. Getty Images NATIONAL GEOGRAPHIC HEFUR GEFIÐ ÚT BÓK UM TUNGUMÁL OG LÍKAMS- TJÁNINGU KATTA EN KETTIR TJÁ SIG MEIRA EN EIGENDUR ÞEIRRA GRUNAR. Nú þegar sú stund nálgast að sólin varla sest verður bæði stöðugt auð- veldara að vakna á morgnana en einn- ig erfitt að fara að sofa stundum og jafnvel er vaknað of snemma á sum- um heimilum. Börnum reynist stundum erfitt að skilja af hverju það er nauðsynlegt að fara að sofa þegar það er ennþá „dag- ur“ og rífa sig svo jafnvel upp löngu áður en dagur er í raun runninn upp. Á kvöldin getur verið gott að hafa alltaf sömu rútínu svo þau skynji bet- ur að það er kominn háttatími þrátt fyrir sólina; lesa, fara í bað, hlusta á útvarpssögu eða annað og þá er ráð að reyna að myrkva herbergið eins mikið og hægt er. Þó er það fyrst og fremst að myrkva herbergið aukalega yfir sum- artímann og oft duga myrkv- unargluggatjöld ekki nógu vel því það skín inn meðfram köntunum. Þannig má setja upp tímabundna sólarfilmu á rúðurnar sem er glær að sjá utan frá en dempar birtuna talsvert en slíka filmu má meðal annars panta á netinu. Almenn gluggatjöld halda ekki nema brotabroti af sumarbirtunni úti og því þarf að gera aukalegar ráðstafanir á sumrin til að ná að sofa lengur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bjartar nætur reynast erfiðar REYNT AÐ SOFA LENGUR Erla Björg Gunnarsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, tekur lúdó og leir á daginn með yngsta barninu en kleppara og Friends á kvöldin með eldri börnunum. Best er þegar allir sameinast í sófakúr en hún á þrjú börn, Köru Björk 15 ára, Gunnar Tuma 11 ára og Kára 4 ára. Sjónvarpsþátturinn sem allir geta horft á? „Þessa dagana er Fríða og dýrið það eina sem öll fjölskyldan horfir saman á enda er yngsti fjölskyldumeðlimurinn mikill harðstjóri þegar það kemur að sjónvarpsfjarstýringunni. Við hin látum okkur hafa það og sönglum væmin Disney-lög daginn út og inn. Aftur á móti horfum við saman á Modern family og Friends þegar litla dýrið fer að sofa.“ Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? „Barbeque-kjúklingur er alltaf mjög vinsæll. En nýlega prófuðum við Doritos-kjúkling og var hann formlega kosinn nýi laugardags- matur fjölskyldunnar. Svo finnst okkur öllum makkarónugrautur voða góður. Með fullt af kanilsykri.“ Skemmtilegast að gera saman? „Við förum mikið í sund og svo hefur keilan verið að koma sterk inn. Nú með hækkandi sól munum við fara meira í göngu- og hjólatúra í Laug- ardalinn og svo langar okkur að labba svolítið á fjöll í sumar. En svo erum við líka algjör kúrudýr og því allra notalegast að draga svefnsófann út í stofunni og kúra í klessu.“ Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? „Við erum mikið fyrir að spila. Lúdó og slönguspil eru í uppáhaldi á daginn. Kleppari og rommý á kvöldin. Svo finnst okkur voða gaman að leira, það er dásamlega róandi iðja og þar sem við erum öll frekar hvatvís og óþolinmóð tökum við leirinn fram yfir púsl. Svo erum við ágætis bakarar.“ Eigið þið eftirlætisstað sem þið skreppið á um helgar? „Við reynum að hitta fólkið okkar sem mest um helgar enda virku dagarnir afar annasamir með öllum tómstund- unum, vinnu og heimalærdómi. Þannig að um helgar njótum við þess að vera í faðmi vina og fjölskyldu, annaðhvort heima hjá okkur eða þeim. Eftirlætisstaðurinn er eig- inlega bara þar sem við getum átt fallega samveru.“ EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Disney-lög söngluð daginn út og inn Erla Björg Gunnarsdóttir með Kára, Kötu og Gunnari Tuma. FERÐASUMAR 2015 ferðablað innanlands SÉRBLAÐ PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 18. maí. Í blaðinu verður viðburðardagatal sem ferðalangar geta flett upp í á ferðalögum um landið og séð hvað er um að vera á því svæði sem verið er að ferðast um í. –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út sérblað Ferðasumar 2015 ferðablað innanlands föstudaginn 22. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.