Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Side 21
Festival au Désert
Þegar komið er suður fyrir miðbaug eru
flestar tónlistarhátíðir tímasettar í radíus við
áramót, enda árstíðirnar á „röngunni“ þeim
megin á hnettinum. Þeir sem vilja fá tón-
listarupplifun sem vestrænu hátíðirnar geta
ekki hermt eftir ættu að skoða viðburði eins
og Festival au Désert í Malí.
Hátíðin fer fram í eyðimörkinni fyrir utan
Timbúktú og spannar þrjá daga í janúar. Alþjóðlegir listamenn mæta á svæðið og tónlistar-
fólk héðan og þaðan í Afríku. Hátíðin þykir mjög „exótísk“ og ætti ekki að koma á óvart ef
kameldýr og túrbanklæddir eyðimerkurbúar birtast á dansgólfinu.
Bayreuther Festspiele
Ekki eru allar tónlistarhátíðir fyrir unga og
spræka fólkið með stuttbuxurnar sínar og
snjallsímana. Þeir sem vilja sökkva sér ofan í
hámenninguna takast á hendur pílagrímsför
til Bayreuth í Þýskalandi. Þar er árlega haldin
hátíð til heiðurs Richard Wagner og óperur
hans fluttar, allar með tölu. Þá er bara að
hnýta á sig bindið og undirbúa sitjandann
undir margar klukkustundir í tónlistarhúsinu sem Wagner sjálfur hannaði og njóta
meistaraverka á borð við Tristan og Isolde,
Hollendinginn fljúgandi og innbyrða Niflungahringinn frá A til Ö. Að sögn Wikipediu
er aðsóknin svo mikil að fólk má vænta meira en fimm ára biðtíma eftir miða.
Hróarskelda
Ekki þarf að kynna Hróarskelduhátíðina
fyrir Íslendingum. Ár hvert heldur fjöldi
landsmanna til Danmerkur, með tjaldið og
góða skapið, og hefur það huggulegt með
kippu af Carlsberg í blíðunni. Í ár lendir
hátíðin á dögunum 27. júní til 4. júlí.
Af listamönnum sem troða upp má nefna
Nicki Minaj, Kendrick Lamar, Ryan Adams, Die Antwoord, Muse, Pharrell Williams,
The War on Drugs að ógleymdum Kippa Kaninus.
Splendour in the Grass
Ástralar halda fjölda tónlistar-
hátíða, enda líflegt fólk.
Splendour in the Grass er ein
af þeim sem þykja bera af. Í ár
lendir tónleikahaldið á 24.-26.
júli, sem strangt til tekið er
miður vetur hjá andfætlingum.
Hátíðarsvæðið er Belongil Fields, rétt hjá strandbænum Byron Bay, sem er suður af
Brisbane.
Íslandsvinurinn Damon Albarn mætir á svæðið með félögum sínum úr Blur, Death
Cab for Cutie og þokkadísin Azealia Banks. Og viti menn: Of Monsters and
Men ætla líka að sýna sig.
Fuji Rock Festival
Austur í Asíu má finna fjölda fólks með brennandi
rokk-bakteríu. Japanska hátíðin Fuji Rock Festival
er fyrir löngu komin á kortið sem spennandi
tónlistarviðburður og tefla skipuleggjendur fram
bæði japönskum og austurasískumstjörnum sem
og alþjóðlegum risum.
Þetta skiptið er hátíðin haldin 25.-26 júlí og fara
herlegheitin fram á Naeba-skíðasvæðinu í
Niigata-héraði, nokkurn veginn um miðbik
landsins, um það bil þriggja tíma lestarferð frá Tókýó. Þeir sem leggja á sig ferðina hringinn í kringum
hnöttinn uppskera tónleika með Foo Fighters, Motörhead, Muse, Deadmau5, Belle and
Sebastian og Noel Gallagher.
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Glamox Luxo
er leiðandi framleiðandi
LED lýsingarbúnaðar
og býður heildarlausnir fyrir
sjúkrahús og hjúkrunarheimili
Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum,
lýsingahönnuðum og arkitektum
Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta
meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi.
www.reykjafell.is