Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015 Heilsa og hreyfing Varan Græðir frá Sóley Organics var tilnefnd til NOPE-verðlauna sem besta nýja lífræna náttúruvaran. NOPE stendur fyrir Natural and Organic Products Europe. Þrjár vörur kom- ust í úrslit en Græðir hreppti ekki verðlaunin að þessu sinni. Alls voru 325 vörur sendar inn en verðlaun voru veitt í mörgum flokkum. Þetta er ein stærsta heilsusýningin í Evrópu. Græðir tilnefndur til verðlauna Þ rátt fyrir að það hafi ekki verið fyrr en árið 2007 sem Kristjana Bergsdóttir, elsti iðkandi í Þríkó, Þríþrautarfélagi Kópavogs, hóf að stunda íþróttir af fullum krafti er hún á leiðinni í Ironman- þríþrautina í þriðja sinn núna í haust. „Þetta hófst með heilsuátaki í vinnunni. Ég vann hjá fyrirtæki sem var með heilsueflandi átak og leiðbeindi einn starfsmaðurinn okkur sem vorum að byrja að hlaupa,“ segir Kristjana, sem verður 63 ára á árinu. Hún greindist með beinþynningu á þessum tíma og þurfti af þeim sökum að fara á lyf, sem henni líkaði illa. „Það kom aftan að mér þó svo að ég hafði verið að brotna í 10 til 15 ár. Maður er alltaf í afneitun en svo endar það með því að maður þarf að horfast í augu við hlutina,“ segir Kristjana og bætir við að í fyrstu hafi hún aðeins hlaupið á milli ljósastaura. „Ég hafði alltaf gaman af því að hreyfa mig og hreyfði mig mikið sem krakki og unglingur. Mín kynslóð er þannig að maður gleymir sér í barnastandinu og í vinnu, maður hugsar ekkert um heilsuna,“ segir hún, og íþróttir voru bara fyrir fólk innan við tvítugt. Úrslit í almenningsíþróttakeppnum eru flokkuð eftir ald- urshópum, með fimm og tíu ára bili, og verðlaunasæti fyrir bestan árangur í hverjum flokki. Það gefur fólki á öllum aldri tækifæri til að keppa á jafningjagrundvelli og auðveldar íþróttaiðkendum að setja sér raunhæf en krefj- andi markmið og standa við þau. „Þannig er uppbygg- ingin á þessum almenningsíþróttagreinum. Á viðburðum er ég ræst á sama tíma og Kári Steinn Karlsson en árangur metinn á mínum aldursforsendum. Þetta eru almennings- íþróttir og allir eru gjaldgengir,“ segir Kristjana, sem er gangandi dæmi þess að allir geta notið hreyfingarinnar. Fór í þríþrautina árið sem hún varð sextug „Ég byrjaði bara rólega, 55 ára gömul, og síðan hef ég alltaf bætt við mig vegalengdum og hraða í hlaupunum,“ segir hún en tekur þó fram að hún, eins og aðrir, sé í misgóðu formi yfir árið og árangurinn í samræmi við það. Árið 2012, þegar Kristjana varð sextug, ákvað hún að finna sér nýjar áskoranir, m.a. þríþrautina. „Mig langaði að gera eitthvað skemmtilegt árið sem ég yrði sextug og hef síðan farið í tvo Járnkarla sem ég kláraði og erum við sex konur úr Þríkó að fara saman til Flórída í haust þar sem við tökum þátt í Járnkarlinum,“ segir Kristjana. Hún segir að æfingahópurinn í Þríkó sé ekkert endilega að keppa sín á milli, heldur snúist þetta frekar um félagsskapinn og að eiga saman ánægjulegar stundir á æfingum. „Það hafa allir sitt frelsi og hjálpar félagsskapurinn mikið upp á samstöðuna í þessu. Það er gaman og uppbyggilegt að vera innan um fólk sem vill leggja á sig erfiði til að ná settu marki. Kosturinn við æfingafélagana er að þeir standa við sín markmið, oft erfið markmið, og styðja við vinina líka,“ segir hún. Upp- byggilegast finnst henni að vera með fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í átt að heilbrigðari lífsstíl. Finnst henni mjög uppörvandi að fylgjast með nýjum æfinga- félögum í hlaupum og sundi. „Öndunin er ekki komin og Nokkrir starfsmenn hugbúnaðarfyrirtækisins Advania mynda hlaupahóp sem hleypur tvisvar í viku frá Guðrúnartúni 10. Kristjana Bergsdóttir er ein þeirra en hún fyrir miðju á myndinni. Morgunblaðið/RAX KÓPAVOGSÞRÍÞRAUTIN Í DAG KRISTJANA BERGSDÓTTIR VERÐUR 63 ÁRA Í ÁR. HÚN BYRJAÐI AÐ HLAUPA Í HEILSUEFLANDI ÁTAKI Á VINNUSTAÐ SÍNUM ÁRIÐ 2007 EFTIR AÐ HÚN GREINDIST MEÐ BEINÞYNNINGU. NÚNA ÁTTA ÁRUM SÍÐAR ER HÚN KOMIN Á FULLT Í ÞRÍÞRAUT OG Á LEIÐ Á JÁRNKARLINN Í FLÓRÍDA Í HAUST, Í ÞRIÐJA SINN. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is „Hæg braut“ stóð á skilti við eina sundbraut Kópavogslaugar sem var keppt á í Kópavogsþríþraut- inni í fyrra. Hvort keppendur hafi ekki séð skiltið skal látið ósagt, en skriðsundið syntu þeir hratt. „Eina leiðin er að halda áfram“ Ljósmynd/Örn Sigurðsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.