Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 25
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Fótboltamaðurinn Magnús Már Einarsson er kempa vik-
unnar. Hann æfir með meistaraflokki Leiknis, stolti
Breiðholtsins.
Hversu oft æfir þú á viku?
Liðið æfir að jafnaði fimm til sex sinnum í viku allt árið
um kring. Aðallega er um að ræða fótboltaæfingar en inn
á milli koma hlaupa- og styrktaræfingar, sérstaklega á
veturna þegar undirbúningur er í gangi fyrir sumarið.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Að finna sér hreyfingu við hæfi. Hreyfing á að vera
skemmtileg og fólk á að njóta þess að hreyfa sig. Það eru
óteljandi möguleikar og allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi til að rækta líkama og sál.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí?
Í fótboltanum er yfirleitt frí í október. Maður reynir að
halda sér við á meðan með því að fara nokkrum sinnum í
fótbolta á sparkvelli með félögunum eða í ræktina. Eftir
nokkra daga í hvíld fer ég að sakna þess mikið að hreyfa
mig.
Ertu almennt meðvitaður um mataræðið?
Já. Ég reyni að borða mjög hollt þótt maður leyfi
sér að sjálfsögðu óhollustu af og til. Ég passa einn-
ig að drekka mikið vatn.
Hver eru erfiðustu meiðsli sem þú hefur orðið
fyrir?
Ég hef blessunarlega verið mjög heppinn með
meiðsli í gegnum tíðina. Hef þó lent nokkrum sinn-
um í akmeiðslum og tognun aftan í læri.
Hvaða óhollustu ertu veikur fyrir?
Ég reyni að borða hollt og það geng-
ur yfirleitt vel. Ég er lítið í gos-
drykkjum en ég er hins vegar mikill
súkkulaðikall og á oft erfitt með að
hemja mig þegar súkkulaði er í
boði.
Hvað eru algeng mistök hjá
fólki við æfingar?
Ég held að algeng mistök séu að
fara alltof geyst af stað og missa mátt-
inn í kjölfarið. Eins er algengt að fólk finni
ekki réttan vettvang fyrir sína hreyfingu.
Sumum líður best í hópi en aðrir vilja æfa
í einrúmi. Faðir minn var til dæmis ekki
mikið fyrir hreyfingu áður en hann fann
sig í fjölbreyttum og skemmtilegum ketilbjölluæfingum
hjá kettlebells.is. Ég hef prófað það líka og það er hreyf-
ing sem hægt er að mæla með fyrir fólk sem er að leita að
rétta staðnum.
Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum?
Hef spilað á móti fullt af góðum leikmönnum bæði á
yngri árum sem og í meistaraflokki. Gylfi Þór Sigurðsson
fær þennan titil. Hann var öflugur í 3. flokki Breiðabliks
áður en hann fór til Reading.
Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig?
Mikið. Ég finn mun á líkama og sál þegar ég hreyfi mig
og það er frábær tilfinning þegar maður er búinn að ljúka
erfiðri æfingu eða leik.
Hver er besti samherjinn? Hef spilað með virkilega
mörgum toppmönnum í gegnum tíðina bæði hjá Aftureld-
ingu og í Leikni. Alltof erfitt að gera upp á milli manna!
Hver er fyrirmynd þín?
Á yngri árum voru margir fótboltamenn í uppáhaldi en
þegar allt kemur til alls er það móðir mín, Hanna
Símonardóttir. Hún hefur kennt mér ótrúlega margt í líf-
inu og alið mig upp við hollt mataræði, mikilvægi þess
að hreyfa sig og hugsa jákvætt. Hugarfarið skiptir
nefnilega heilmiklu máli þegar kemur að hreyfingu.
Hver er besti íþróttamaður allra tíma?
Lionel Messi. Hann sýndi það enn og aftur í
liðinni viku þegar hann afgreiddi Þýska-
landsmeistara Bayern eins og að drekka
vatn. Þessi náungi er besti fótboltamaður
sögunnar og ég efast um að einhver í
líkingu við hann eigi eftir að stíga
fram á sjónarsviðið á næstu áratugum.
Hvar sérðu sjálfan þig eftir 10 ár?
Vonandi verð ég glaður og ánægður
á þeim stað sem ég verð á. Það kæmi
mér á óvart ef ég væri ekki að vinna
eitthvað í kringum fótbolta þar sem
það hefur verið ævistarfið hingað til.
Tíminn verður að leiða í ljós hvort ég
verð ennþá sjálfur að spila fótbolta þá eða
ekki.
Skilaboð að lokum?
Njótið þess að hreyfa ykkur á meðan lík-
aminn leyfir. Það eru ekki allir svo heppnir
að vera með fulla heilsu.
KEMPA VIKUNNAR ER MAGNÚS MÁR EINARSSON
Hugarfarið skiptir heilmiklu
Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
Afrókennararnir Mamady og Sandra Sano verða með afrónámskeið
við lifandi trommuslátt í Steps Dancecenter á Akureyri helgina 9. og
10. maí. Tímar verða báða dagana fyrir 6-8 ára, 9-12 ára og 13 ára
og eldri. Kjörið tækifæri fyrir dansara til að prófa eitthvað nýtt.
Afró á Akureyri*Elskaðu vorið og voninageym, þá verður þér sporlétt hver ganga.
Guðmundur Guðmundsson skólaskáld
manni finnst maður standa í stað fyrstu vikurnar en samt
er haldið áfram. Það er eitthvað við þetta sem er svo
hvetjandi og það eru þessir jákvæðu mannlegu eiginleikar
sem eru svo mikils virði,“ segir hún.
Þegar í keppni er komið líður henni eins og á balli eða
árshátíð. „Allir í sínu fínasta pússi og búnir að æfa sig.
Mitt mottó er að ég vil ekki koma algerlega uppgefin úr
keppni eða æfingu. Ég undirbý mig vel þannig að ég
gangi ekki frá mér og æfi þannig að ég ofbjóði mér
ekki,“ segir hún. Þá segir hún að einnig lærist það með
tímanum hvers lags hegðun valdi álagsmeiðslum. „Flestir
tala um að hafa þurft að hætta að hreyfa sig vegna
verkja. Verkir eru algjörlega ofmetnir að mínu mati, þeir
eru ekkert alltaf hættulegir heilsunni. Ef þú ert ekki bú-
inn að hreyfa þig lengi þá færðu verki. Haltu áfram og
alls ekki hætta. Eina leiðin til að styrkja þig er að halda
áfram,“ segir hún.
Þeim gengur best sem hafa engar væntingar
Kristjönu finnst það stórkostlegt, nú þegar hún lítur til
baka, að hún skuli hafa komið sér af stað. „Í byrjun var
ég bara glöð með að komast á milli ljósastaura því það
er eitthvað við það að vera úti, vera á hreyfingu, en í
raun og veru er þetta bráðnauðsynlegt fyrir hjarta og
lungu,“ segir hún og bætir við að í staðinn fyrir að fara
út að hlaupa með
hundinn fari hún út
að hlaupa með hjart-
að. Hún segir það
svo skrítið hvert lífið
geti leitt mann, í
upphafi hafði hún
ekki hugmynd um að
nokkrum árum síðar
yrði hún búin að
hlaupa Laugaveginn
nokkrum sinnum.
„Svo bara fer þetta
að raungerast smám
saman. Þeim gengur
best sem hafa engar
væntingar,“ segir
hún. Það hafi líka
gert henni gott að
brjóta upp það
mynstur sem hún
hafði verið í árum
saman. „Í stað þess
að fara heim að elda
fór ég út að leika og
hreyfa mig,“ segir
hún og hvetur fólk til
þess að koma sér af
stað. „Ég er að æfa
með yngra fólki og
er með sömu æfinga-
áætlun. Það gera allir
sitt besta. Fyrir þá sem eldri eru er gott að hlaupa og
labba,“ segir hún og bendir á að auðvelt sé að nálgast
æfingaáætlanir. Þá segir hún að einnig sé gott að hafa
samband við félagið sem eru hugsað fyrir alla, byrjendur
jafnt sem lengra komna, því það sé mikill kostur að
ganga í félag til þess að umgangast aðra, finna samherja.
Æfingarnar eru álagsskiptar í a, b og c hópa til að
tryggja að hver og einn geti stundað hreyfinguna á sín-
um forsendum.
Nokkur hundruð keppa
í þríþraut í Kópavogi í dag
Um hundrað einstaklingar taka þátt í einstaklingskeppni
og um 150 manns í fjölskyldu- og unglingakeppninni þeg-
ar Kópavogsþríþrautin, fyrsta þríþrautarmót ársins, fer
fram í dag, sunnudag.
B-flokkur einstaklingskeppninnar verður ræstur af stað
klukkan hálfníu um morgun og A-flokkurinn þremur kort-
erum síðar, klukkan 9:15. Einstaklingskeppnin saman-
stendur af 400 m sundi, 10,4 km hjólreiðum og 3,6 km
hlaupi.
Á eftir aðalþrautinni tekur fjölskyldu- og ungmenna-
þríþrautin við þar sem keppt er í helmingi styttri vega-
lengdum; 200 m sundi, 5,2 km hjólreiðum og 1,4 km
hlaupi, og geta fjölskyldur klárað þríþrautina í sameiningu
þar sem hver fjölskyldumeðlimur tekur sinn hluta. Engin
aldurstakmörk eru í fjölskylduþríþrautinni og geta því af-
ar, ömmur, mömmur og pabbar tekið þátt í henni ásamt
börnum sínum. Fjölskylduþrautin hefst klukkan 11:00 en
barnaþrautin klukkan 9:30. Allar frekari upplýsingar um
mótið má finna á heimasíðu Þríþrautarfélags Kópavogs,
sem stendur fyrir mótinu, www.thriko.is.
* Í staðinn fyrir að hlaupa með hundinnhleyp ég með hjartað
Ljósmynd/Örn Sigurðsson
Austurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri
Hafðu veisluna eftir
þínu höfði!
Skoðaðu úrvalið á
vefverslun okkar
bakarameistarinn.is.
Veisluþjónusta undir stjórn matreiðslumeistarans Skúla Hansen
Er veisla framundan?
Sími 533 3000 bakarameistarinn.is