Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015 Matur og drykkir daga þurfti maður að bíða lengi. Ég hafði þó vit til að bíða og fór til Vest- mannaeyja á meðan að vinna í fiskvinnslu og skellti mér á sjó. Maður tók upp á ýmsu,“ segir hann hlæjandi. „En ég var oft spurður hvers vegna ég sækti ekki um á fleiri stöðum. Ég var hins vegar harðákveðinn í þessu. Fyrir einhverjum árum hafði ég séð auglýsingu frá Holtinu og fannst það sjarmerandi. Og ég er stoltur af því. Þetta var góður skóli,“ segir hann. Móðir hans helsta fyrirmyndin Mataráhugann segir hann hafa komið frá móður sinni, Guðrúnu Þórðar- dóttur. Hann ólst upp í Borgarnesi í sjö systkina hópi og á heimilinu var alltaf framreiddur morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. „Það var bara allur pakkinn. En ég byrjaði snemma að fikra mig áfram í eldhúsinu og það var í gegnum múttu. Það er kannski væmið að segja það en hún er auðvitað fyrirmyndin mín.“ Einnig var það föðurbróðir hans, Eggert Eggertsson, sem ýtti við unga manninum og hvatti hann áfram í náminu. „Eggert var bryti hjá Eimskip og var kallaður Lilli. Það var eiginlega hann sem kom mér í tengsl við Hótel Holt á sínum tíma og hann sparkaði í mig og lét mig klára þetta.“ Aðspurður út í opnun á staðnum segist hann ekki geta svarað því en spennan fyrir þeim tímapunkti sé orðin mikil. „Ég vildi að ég gæti sagt hvenær ég ætla að opna en það er ekki hægt. En ég veit að þetta verður flott og við höfum fengið til liðs við okkur glæsilegt teymi, m.a. Höllu Hamar, sem hannaði staðinn, og einnig Sigmund V. Kjartansson, sem hannaði húsgögnin. Ég er mjög stoltur af að hafa fengið að vinna með þeim. Sætin á stólunum sem hann hannaði eru svo þægileg að við ættum kannski að setja straum undir svo fólk sitji ekki alltof lengi,“ segir Jói að lokum í gríni og skellir upp úr. Jói spjallar við vinkonuhópinn. Við hlið hans, vinstra megin, er eiginkona hans, Hafdís. Krakkarnir taka við eftirréttinum, afskaplega girnilegri franskri súkkulaðiköku. Blóðappelsínusalsa, bakað hvítsúkkulaði, hjartafró og blóðappelsínusósa Frönsk súkkulaðikaka 400 g 55% súkkulaði 400 g smjör 400 g sykur 5 egg 70 ml kaffi Sykur og kaffi soðið sam- an í síróp þar til það fer að þykkna, þá er smjörið hrært saman við og þar á eftir súkkulaðið. Eggin eru pískuð vel saman og hrært saman við blönd- una. Kakan er sett í mót og höfð u.þ.b. 1½ sentí- metra þykk. Bökuð við 160°C í 40 mínútur og svo kæld niður. Best að baka daginn áður og leyfa henni að stífna vel. Blóðappelsínusalsa 3 stk blóðappelsínur 8 lauf fínt skorin sítrónumelissa Börkurinn er skorinn ut- an af blóðappelsínunum og allir bátarnir skornir úr þeim, svo eru þeir skornir í grófa bita og sítrónumel- issunni blandað saman við. Blóðappelsínusósa 200 ml ferskur blóðappelsínusafi 150 g sykur Safanum og sykrinum er blandað saman í pott. Soðið niður í síróp og svo kælt. Bakað hvítsúkkulaði 150 g hvítt súkkulaði Hvítsúkkulaðið er sett á smjörpappír og bakað við 130°C í 15-20 mínútur, svo er það kælt og leyft að stífna vel. Þá má ann- aðhvort skera það gróft niður með hníf eða setja í matvinnsluvél og mylja það. Frönsk súkkulaðikaka Það var skemmtileg stemning á meðal gesta og maturinn einstaklega góður. Morgunblaðið/Golli * Ég hafðiþó vit til að bíða og fór til Vest- mannaeyja á meðan að vinna í fisk- vinnslu og skellti mér á sjó. Maður tók upp á ýmsu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.