Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Page 39
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* Darwin hefur vakið athygli okkar á söguþeirrar tækni sem í náttúrunni felst. Karl Marx
Búist er við því að tæknirisinn Apple kynni til sög-
unnar nýja tónlistarveitu, endurbætta útgáfu af Beats
Music, í sumar. Freistar fyrirtækið þess að ná hlut-
deild í þeim ört vaxandi markaði sem tónlistarveitur
á netinu eru, þar sem Spotify og YouTube ráða nú
ríkjum.
Einhverjar efasemdir eru um ágæti viðskiptahátta
Apple þar sem alríkisráð viðskiptamála Bandaríkja
hefur hafið rannsókn á viðskiptaháttum tæknirisans
og bætist alríkisráðið þannig í hóp dómsmálaráðu-
neytis Bandaríkjanna og samkeppnisráðs Evrópusam-
bandsins en stofnanirnar tvær hafa áður rannsakað
viðskiptahætti Apple í tengslum við tónlistarveituna.
Fjölmiðlar vestanhafs sögðu í vikunni rannsóknina
beinast að Apple þar sem fyrirtækið er sagt hafa
þrýst á tónlistarrétthafa- og útgefendur með það fyrir
augum að þeir endurnýjuðu ekki samninga sína við
tónlistarveitur sem bjóða upp á hlustun á tónlist án
endurgjalds. Takist Apple ætlunarverkið gefur það
augaleið að tónlistarveita Apple stendur mun betur í
samkeppni þegar hún verður kynnt til sögunnar. Hátt
settir einstaklingar innan tónlistargeirans hafa verið
yfirheyrðir vegna málsins í rannsóknum stofnananna
þriggja, þar sem það virðist sem Apple hafi notað ítök
sín innan tónlistargeirans til þess að koma í veg fyrir
endurnýjun samninga um að tónlistarveitur megi
bjóða upp á endurgjaldslausa spilun á tónlist þeirra.
Ljóst er að miklir hagsmunir eru í húfi. Fjöldi Spo-
tify-notenda er 60 milljónir, en aðeins fjórðungur
þeirra greiðir fyrir þjónustuna. Um 900 milljörðum
króna var varið í tónlist á netinu á síðasta ári á sama
tíma og sala á tónlist á síðum á borð við iTunes dróst
saman um 8 prósent. Búist er við að greiða þurfi fyrir
þjónustuna hjá Apple.
„Þessir gaurar eru harðsvíraðir, alla leið upp að
Tim Cook,“ sagði ónefndur heimildarmaður innan úr
tónlistarheiminum við fjölmiðla Vestanhafs í vikunni.
Einnig hefur því verið haldið fram í fjölmiðlum að
Apple sé búið að bjóðast til að greiða Universal Mu-
sic Group sömu fjárhæð og YouTube greiðir tónlist-
arrisanum, gegn því að UMG banni YouTube að spila
lögin sín.
VIÐSKIPTAHÆTTIR APPLE RANNSAKAÐIR
Ókeypis
tónlist
ei meir?
Apple er sagt hafa beitt sér fyrir því að tónlistarrétthafar
endurnýjuðu ekki samninga við Spotify og YouTube.
AFP
Um þúsundir ára hefur mannfólk
stuðst við smurningu af einhverjum
toga til þess að koma í veg fyrir að
líkamar hinna dauðu brotni niður.
Hins vegar slær viðleitni Rússa til
þess að viðhalda líkama Vladimirs
Leníns, upphafsmanns Sovétríkj-
anna, allt annað út. Margar kyn-
slóðir vísindamanna hafa varið
næstum heilli öld í að fínstilla þær
aðferðir sem beitt er til þess að
halda við útliti, sveigjanleika og
trúverðugleika líkamsleifa bylting-
arleiðtogans. Á þessu ári var skellt
í lás í grafhýsi Leníns á Rauða
torginu í Moskvu í því skyni að vís-
indamenn gætu hresst upp á líkið
svo það gæti aftur verið til sýnis og
í sínu besta formi á 145 ára afmæli
Leníns, hinn 22. apríl síðastliðinn.
Fjallað er um málið á vef Scientific
American.
Umsjón með því að viðhalda lík-
ama Leníns er í höndum stofnunar
sem kallast Miðstöð um vísinda-
rannsóknir og kennsluhætti í líf-
tækni (e. Center for Scientific
Research and Teaching Methods in
Biological Technologies) í Moskvu.
Hópur ólíkra vísindamanna hefur
umsjón með líkamsleifum Leníns.
Þeir hjálpa einnig til við að halda
við líkömum þriggja annarra
þjóðarleiðtoga, nánar tiltekið Ho
Chi Minh og þeirra feðga Kims Il-
sungs og Kims Jong-ils. Aðferðir
Rússanna í dag þykja byltingar-
kenndar að því leyti að lögð er
áhersla á að viðhalda útliti, lögun,
litum og sveigjanleika útlima Len-
íns en ekki endilega að sjá til þess
að líffræðilegar leifar hans haldi
sér. Að þessu leyti hafa þeir skapað
ferli sem er hálfvegis líffræðilegt og
er ansi frábrugðið annars konar og
hefðbundnari aðferðum við að
smyrja lík. „Þeir skipta öðru hverju
út hlutum af skinni og holdi Leníns
fyrir plastefni og annars konar
ónáttúrulegt efni svo hvað líffræði
varðar er sífellt minna og minna af
upprunalega líkamanum eftir,“ seg-
ir Alexei Yrchak, prófessor í mann-
fræði við Berkeley. „Það gerir að
verkum að ferlið er allt öðruvísi en
það sem hefur tíðkast til þessa, þar
sem áherslan var alltaf á það að
viðhalda upprunalega efninu á með-
an lögun líkamans breytist.“
Lenín dó árið 1925 og flestir sov-
éskir leiðtogar voru andsnúnir því
að líkami hans yrði geymdur svo
hægt yrði að sýna hann almenningi,
nema þá aðeins tímabundið. Margir
sáu fyrir sér að hann yrði grafinn í
lokaðri gröf á Rauða torginu. Kald-
ur vetur varð hins vegar til þess að
líkamsleifar Leníns héldu sér í
nokkuð viðunandi ástandi í næstum
tvo mánuði og mikill mannfjöldi
lagði leið sína á torgið til að berja
þær augum.
Á þessu tímabili fékk sú hug-
mynd að smyrja líkið byr undir
báða vængi. Til að forðast hvers
kyns hugrenningatengsl við jarð-
neskar leifar trúarleiðtoga var sú
staðreynd gerð opinber að sovéskir
vísindamenn bæru ábyrgð á því að
halda líkinu við.
MEÐ NÝJUSTU TÆKNI ER ÝMISLEGT HÆGT
Grafhýsi Leníns er á besta stað við Rauða torgið.
Lappað upp á Lenín
Birt með fyrirvara um prentvillur og verðbreytingar.
*Tilboð gildir til 4. maí 2015 eða meðan birgðir endast.
iPhone 6Plus
16GB
Tilboðsverð
124.990.-*
Fullt verð: 139.990.-
Grár | Gull | Silfur