Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Side 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Side 50
Viðtal 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2015 S kákfélagið Huginn reit nafn sitt á rollu íslenskrar skáksögu með sigri á nýloknu Íslandsmóti skák- félaga. Fylgt var fimm ára bún- aðaráætlun Hermanns Aðalsteins- sonar, fjárbónda og formanns félagsins, er hann lagði fram á skerplu árið 2010, ásamt 200 lausavísum um strategíska hugsun í skák og ágæti framsóknarmennsku. Fengu sauða- menn í sveit Goðans sáluga skýr fyrirmæli um að hampa sigurverðlaunum á Íslands- mótinu á 10 ára afmæli félagsins árið 2015, félaginu til framdráttar og Framsókn- arflokknum til dýrðar, auk þess sem þeim var gert að læra lausavísurnar utanbókar. Her- mann vissi sem var að á tímum endalauss böl- móðs og upphafningar lágmenningar með gosi í Eyjafjallajökli í ofanálag, væri nauðsyn að blása liðsmönnum nýjum metnaði í brjóst.“ Þannig kemst einn félagsmanna í skák- félaginu Hugin, Jón Þorvaldsson, að orði í pistli á heimasíðu félagsins, skakhuginn.is, í tilefni af fræknum sigri Hugins á Íslandsmóti skákfélaga fyrr í vor. Hermann Aðalsteinsson mætir sjálfur í Há- degismóa til að gera grein fyrir afrekinu – vopnaður einhverjum stærsta bikar sem ég hef um ævina séð. Ekki svo að skilja að for- maður Hugins beri bikarinn með sér allt sem hann fer, hann var beðinn um mæta með hann í viðtalið vegna myndatökunnar. Her- mann býr norður í Reykjadal en er staddur í stuttri heimsókn hér syðra. Sonur hans, Jón Aðalsteinn, er að taka þátt í skákmóti á Sel- fossi. Eins og þeir feðgar færa taflmennina, færa taflmennirnir þá. Tefldi mikið í grunnskóla Hermann er fæddur árið 1968 og ólst upp í Bárðardal. Faðir hans kenndi honum ungum mannganginn og tefldi Hermann töluvert í æsku, ekki síst eftir að hann hóf nám við lít- inn heimavistarskóla í sveitinni. „Það voru engar tölvur á þeim tíma og fyrir vikið var mikið teflt í frístundum og spilaður fótbolti,“ segir Hermann en eftir það vék skákin fyrir öðrum hugðarefnum, námi og starfi. Það var síðan fyrir rúmum áratug að Her- mann vakti taflmennina upp af værum blundi. Hann var þá sestur að í Reykjadal og upp- götvaði sér til ánægju að fleiri skák- áhugamenn voru í sveitinni. „Við byrjuðum að hittast hálfsmánaðarlega, einhverjir átta karl- ar og héldum æfingar og mót fyrir okkur sjálfa. Þetta var árið 2004 og ári síðar stofn- uðum við formlegt félag sem nefnt var Goð- inn,“ segir Hermann. Spurður um nafngiftina upplýsir Hermann að hópurinn hafi komið saman í nágrenni Goðafoss og þangað sé nafnið sótt. „Það er nú ekki flóknara,“ segir hann brosandi. Fyrir sex árum flutti hópurinn sig yfir til Húsavíkur, þar sem teflt er í húsakynnum verkalýðs- félagsins Framsýnar. Tíu meðlimi þarf til að fá aðild að Skák- sambandi Íslands og Hermann og félagar ákváðu að hafa vaðið fyrir neðan sig, ellefu menn stofnuðu félagið. „Ég átti svo sem ekki von á því að við yrðum teknir gildir en við fengum aðild,“ segir hann. Við þetta færðist líf í tuskurnar og Her- mann fór að leita uppi menn nyrðra sem höfðu verið að tefla áður fyrr. Það gekk svona og svona. „Ég komst að því að sumir voru dánir og aðrir fluttir burt en fann þó fjóra eða fimm menn á Húsavík sem mér tókst að plata til að byrja aftur að tefla. Ég vissi að fé- lagið myndi fljótt deyja drottni sínum tækist okkur ekki að auka breiddina. Sem betur fer tókst það en af þessum ellefu stofnfélögum Goðans erum við bara tveir virkir í dag.“ Nýliðun og heimasíða Hermann gerði sér grein fyrir því að ekki væri nóg að draga gamlar kempur á flot, heldur yrði að tryggja stöðuga nýliðun. Þess vegna efndi hann til námskeiða í grunn- skólum, á Húsavík, Laugum og Stórutjörnum, og sinnir því starfi enn. „Til að byrja með var lítið kennsluefni til en það hefur lagast, þökk sé Smára Rafni Teitssyni, skákmanni frá Ak- ureyri.“ Næsta verkefni Goðans var að opna heima- síðu og var það gert gegnum Moggabloggið á mbl.is. „Þá fór boltinn að rúlla fyrir alvöru,“ segir Hermann en bloggið vakti greinilega at- hygli – og það í öðrum landsfjórðungum. „Í mig hringdi dularfullur maður í Hafnar- firði, Jón Þorvaldsson. Honum fannst greini- lega áhugavert að það væri svona mikið líf í skákíþróttinni á landsbyggðinni og óskaði eft- ir því að gerast félagi í Goðanum. Við höfðum sett okkur skýrar reglur um að enginn fengi aðild að félaginu utan héraðsins nema öll stjórnin veitti einróma samþykki sitt og tók- um okkur rúman umhugsunarfrest. Jón hefur eflaust ekki vitað hvaðan á hann stóð veðrið. Síðan hleyptum við honum inn, fyrstum íbúa á höfuðborgarsvæðinu og sjáum ekki eftir því. Jón er ekki bara liðtækur skákmaður heldur líka vel tengdur í skáksamfélaginu og fljót- lega fóru öflugir menn að streyma inn í félag- ið,“ segir Hermann en Jón fékk strax til liðs við Goðann Einar Hjalta Jensson, mjög sterk- an skákmann, skákkennara og núverandi þjálfara kvennalandsliðsins. Hló að stórum áformum Goðinn tók fyrst þátt í Íslandsmótinu vet- urinn 2007-08, sendi eina sveit til keppni. Þeim var fjölgað í tvær árið 2010. Hermann segir engin heimsyfirráð hafa verið í kort- unum en Jón hafi haft stóra drauma og hvatt til þess að stefnt yrði að Íslandsmeistaratitli árið 2015. „Ég hló bara að því á þeim tíma enda var það algjörlega óraunhæft. Við höfð- um engan mannskap í slík afrek.“ Það breyttist þó hratt. Fyrstu stórmeist- ararnir, Þröstur Þórhallsson og Helgi Áss Grétarsson, gengu til liðs við Goðann árið 2010 og að sögn Hermanns var félagið við það að springa úr vaxtarverkjum. Haustið 2012 var næsta skref tekið, þegar Goðinn sameinaðist skákfélaginu Mátum, sem samanstóð af Akureyringum búsettum á höf- uðborgarsvæðinu. Var það fyrsta sameining skákfélaga hér á landi í langan tíma. „Þarna bættist okkur góður liðsauki, Pálmi Péturs- son, Magnús Teitsson, Arnar Þorsteinsson, Jón Árni Jónsson og margir fleiri,“ rifjar Hermann upp. Þegar hér var komið sögu taldi skákfélagið Goðinn-Mátar rúmlega eitt hundrað félaga og gekk í daglegu tali undir nafninu GM sem á einkar vel við, enda enska skammstöfunin fyr- ir stórmeistara, Grand Master. GM náði prýðilegum árangri á Íslands- mótinu veturinn 2012-13, hafnaði í fjórða sæti í 1. deild. Veturinn áður var Goðinn í 2. deild. Fengu á sig ellefu kærur Þetta varð eini veturinn sem GM tók þátt í Íslandsmótinu því sumarið 2013 sameinaðist félagið öðru af stóru skákfélögunum í Reykja- vík, Helli. Einhverjir töldu þann gjörning raunar ólögmætan og kvörtuðu til Skák- sambands Íslands. „Þetta var mjög umdeilt, skömmu áður en Íslandsmótið hófst og við fengum á okkur hvorki fleiri né færri en ell- efu kærur. Þeim var öllum vísað frá. Það voru engar reglur sem bönnuðu sameininguna en eftir á að hyggja hefur hún eflaust orkað tví- mælis.“ Veturinn 2013-14 tefldi hið nýja félag, GM Hellir, fram níu sveitum á Íslandsmótinu og hafnaði A-liðið í öðru sæti 1. deildar. Kosið var um nafn og merki hins samein- aða félags á aðalfundi 2014 og varð skák- félagið Huginn fyrir valinu, eftir öðrum af hröfnum Óðins. Fyrir nýliðinn vetur gengu stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson og Stefán Krist- jánsson til liðs við Hugin, auk þess sem félag- ið kvaddi á vettvang tvo erlenda stórmeistara, svo sem heimilt er samkvæmt reglum. Mest voru það Gavin Jones frá Englandi og Robin van Kampen frá Hollandi en einnig hefur Kanadamaðurinn Eric Hansen teflt fyrir Hugin. Hann ku vera af dönskum ættum. Bæði A og B-lið Hugins tefldu í 1. deild í vetur og varð A-liðið Íslandsmeistari. „Ég er auðvitað mjög stoltur af þessum árangri,“ segir Hermann. „Það er ekki lítið mál að manna sextán borð í 1. deild Íslandsmótsins en þetta gekk eins og í sögu. Við erum með gríðarlega góðan mannskap.“ 370 skráðir félagar Hermann, Jón Þorvaldsson og Vigfús Ó. Vig- fússon, varaformaður Hugins, eru liðsstjórar og sjá að mestu um liðsvalið enda segir for- maðurinn það of mikið verk fyrir einn mann. Sjálfur teflir hann á Íslandsmótinu og var í F-liði Hugins í vetur. 370 skákmenn eru skráðir í Huginn, þar af um 200 virkir. Spurður hvort það sé ekki mikið mál að stýra svo stóru félagi að norðan hristir Hermann höfuðið. „Nei, það hefur ekki vafist fyrir mér. Ég sé um starfið fyrir norð- an og Vigfús ber hitann og þungan af starfinu hérna fyrir sunnan. Við höfum verið með skákkennslu fyrir börn í Mjóddinni og í sam- starfi við skákdeild Breiðabliks í Stúkunni í Kópavogi. Síðan fer ég áfram í skólana fyrir norðan. Það er nauðsynlegt að halda ungvið- inu við efnið.“ Hann segir frekari stækkun eða samein- ingar ekki á döfinni. „Félagið er mátulega stórt eins og það er en í ljósi sögunnar er lík- lega best að segja sem minnst um það mál.“ Hann brosir. Hermann segir Hugin að sjálfsögðu stefna að því að verja Íslandsbikarinn að ári. Langur vegur sé þó framundan og aldrei að vita nema breytingar verði gerðar á keppnisfyrir- komulaginu á aðalfundi Skáksambandsins sem haldinn verður í lok þessa mánaðar. Það geti haft áhrif. „En auðvitað stefnum við að því að halda okkur á toppnum. Þar viljum við vera.“ Að bæta úr skák ÁRIÐ 2005 STOFNAÐI HERMANN AÐALSTEINSSON, FISKELDISFRÆÐINGUR OG BÓNDI, ELLEFU MANNA SKÁKFÉLAG NORÐUR Í REYKJADAL. ÁRATUG OG TVEIMUR SAMEININGUM SÍÐAR TELUR FÉLAGIÐ 370 MANNS OG FAGNAÐI Á DÖGUNUM SÍNUM FYRSTA ÍSLANDSMEISTARATITLI. HERMANN ER AÐ VONUM AÐ RIFNA ÚR STOLTI YFIR ÞESSUM GÓÐA ÁRANGRI SKÁKFÉLAGSINS HUGINS OG LOFAR AÐ ÁFRAM VERÐI TEFLT TIL SIGURS, AUK ÞESS SEM HLÚÐ VERÐI VANDLEGA AÐ GRASRÓTINNI. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is * Það er ekki lítiðmál að mannasextán borð í 1. deild Íslandsmótsins en þetta gekk eins og í sögu. Við erum með gríðarlega góðan mannskap.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.