Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Síða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Síða 64
SUNNUDAGUR 10. MAÍ 2015 Fótboltaverkefnið Geðveikur fótbolti og fótboltaliðið FC Sækó byrjaði árið 2011 og er samstarfsverkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, geðdeildar Land- spítalans og Hlutverkaseturs. Þrjú undanfarin sumur hefur geðsvið Landspítalans gengist fyrir knatt- spyrnumóti á grasvellinum við Kleppsspítala og hef- ur FC Sækó verið með í því en í vikunni var ákveðið að færa út kvíarnar og efna í fyrsta skipti til innanhússmóts, í Vodafonehöllinni. Að sögn Berg- þórs G. Böðvarssonar, talsmanns FC Sækó, heppn- aðist mótið afskaplega vel en sex lið mættu til leiks. „Mótið fór vel fram og þetta var drengileg keppni,“ segir Bergþór en Sækó-liðar sáu um undirbúning í samstarfið við aðra og kunna þeir Valsmönnum bestu þakkir fyrir samstarfið. „Þetta mót á örugg- lega eftir að verða árlegur viðburður héðan í frá,“ segir Bergþór. Skammt var stórra högga á milli hjá Bergþóri og félögum á fimmtudag en strax að móti loknu var farið fyrir hönd FC Sækó til að taka á móti hvatn- ingarverðlaunum velferðarráðs Reykjavíkur í flokki verkefna. Bergþór tileinkar Hlutverkasetri verðlaun- in því í gegnum þá vinnu fæddist hugmyndin að verkefninu. FC Sækó fór í sína fyrstu keppnisferð til útlanda í fyrra og staðfestir Bergþór að farið sé að huga að annarri ferð sem farin yrði á næsta ári. Hart var barist á knatt- spyrnumóti FC Sækó. Morgunblaðið/Kristinn KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ FC SÆKÓ Velheppnað innanhússmót HART VAR BARIST Í VODAFONE-HÖLLINNI Á HLÍÐARENDA SÍÐASTLIÐINN FIMMTUDAG ÞEGAR KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ FC SÆKÓ HÉLT SITT FYRSTA INNANHÚSSMÓT. „Þetta er Haraldur Örn Ólafsson sem talar. Ég er á toppi tilver- unnar. Ég er búinn að ná norður- pólnum,“ sagði Haraldur pólfari í símtali við Davíð Oddsson í höf- uðstöðvum bakvarðasveitar pól- farans í gærkvöldi laust fyrir klukkan hálftíu. Með þessum orðum hófst frétt á baksíðu Morgunblaðsins fimmtu- daginn 11. maí 2000. „Haraldur hefur skipað sér í fá- mennan hóp manna í heiminum sem tekist hefur að ganga bæði á suður- og norðurpólinn en sá fjöldi hleypur á örfáum tugum manna,“ sagði ennfremur í fréttinni. Haraldur var þreyttur er hann hringdi úr gervihnattasímanum af norðurpólnum en lýsti því yfir að þreytan viki fyrir sigurgleðinni. „Þetta er alveg stórkostleg stund,“ sagði Haraldur um ferðalokin í samtali við forsætisráðherra. „Þessi fagnaðarlæti sem hér eru endurspegla þá ánægju og það stolt sem býr nú í hugum lands- manna allra,“ sagði Davíð við Har- ald, en talsverður fjöldi fólks fylgdist með samtalinu. „Það kem- ur í minn hlut að óska þér til ham- ingju fyrir hönd samlanda þinna, ríkisstjórnarinnar og þingsins.“ GAMLA FRÉTTIN Kominn á pólinn Haraldur Ólafsson kampakátur á norðurpólnum fyrir fimmtán árum. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Haukur Morthens dægurlagasöngvari Tryggvi Ólafsson listmálari Gissur Sigurðsson fréttamaður AVIS bílaleiga sími 591 4000 – avis.is HÚSAVÍK AKUREYRI SAUÐÁRKRÓKUR ÍSAFJÖRÐUR REYKJAVÍKKEFLAVÍK HÖFN EGILSSTAÐIR Avis býður upp á sveigjanlega og áreiðanlega þjónustu, sérsniðna að þörfum þíns fyrirtækis. Hvort sem fyrirtækið þitt þarf skammtíma- eða langtímaleigu getum við fundið lausn sem hentar. Af hverju að binda fjármuni í tækjum, þegar þú getur látið þá vinna fyrir þig annars staðar? EKKI EYÐA Í ÓÞARFA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.