Fréttablaðið - 24.01.2015, Side 20
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
Á HEIMILISLEGA SUNNU-
DAGA á Kexi á morgun. Þar
munu Agnar Jón og María
Heba taka alla fjölskylduna í leik-
listartíma.
Á NÝJA PLÖTU BJARKAR
VULNICURA sem tónlistar-
gagnrýnendur keppast við að
lofa.
HEILSUBÓK RÖGGU NAGLA
og hættu að fara í skyndiátak
og gerðu heilbrigt líferni að
varanlegum lífsstíl.
Á JUNO á Stöð 2 í kvöld
klukkan átta. Yndisleg mynd
um unglingsstúlku sem verður
barnshafandi og samband hennar við
barnsföðurinn.
Guðrún Veiga sem nenn-
ir ekki að elda og skrif-
aði matreiðslubók fyrir
jól gefur uppskrift að ljúf-
fengri köku sem hægt er að
maula um helgina. Eins og
vaninn er með uppskriftir
Guðrúnar Veigu er inni-
hald kökunnar syndsam-
lega óhollt, kakan er dísæt
og ansi girnileg. Er ekki
annars nammi dagur í dag?
KaramelluKrispies
3 stykki Pipp með karamellu-
fyllingu
1 bolli síróp
½ bolli sykur
1 bolli fínt hnetusmjör
6 bollar Rice Krispies
2 pokar af ljósum súkkulaði-
dropum
Pippið, sykurinn, sírópið
og hnetusmjörið brætt
saman við vægan hita.
Þegar þetta er orðið að
silkimjúkri blöndu er Rice-
inu bætt við. Hrært mjög
vel. Blöndunni komið fyrir í
eldföstu móti sem klætt er
í bökunarpappír. Þjappað
vel. Súkkulaðidropar
bræddir og smurt yfir
kökuna.
Klístrað og dísætt góðgæti á nammidegi
Guðrún Veiga gefur einfalda uppskrift að karamellu-Krispies sem ekki tekur langan tíma að útbúa.
Steinunn Jónsdóttir, söngkona í Amabadama og Reykja-
víkurdætrum
Myndband og fj ölskyldu-afró
Ég er að fara að leikstýra og taka upp myndband fyrir tvær
systur mínar úr Reykjavíkurdætrum sem kalla sig Cyber. Við
ætlum að dunda okkur við að taka það upp um helgina,
en á laugardaginn fer ég líka í afró fyrir foreldra
og börn í Kramhúsinu með Magga og Jóni
Braga syni mínum.
Hrafn Jónsson,
kvikmyndagerðarmaður
Sófakúr og sannfæring
Ég er orðinn svo miðaldra að
mig langar bara að liggja uppi
í sófa. Við erum með tvo sófa
og markmið helgarinnar er
að sannfæra konuna um að
ýta þeim saman og hafa einn
stóran sófa.
Birgitta Haukdal,
söngkona
Tónleikar og rólegheit
Á laugardaginn er ég að
syngja á styrktartónleikum hjá
Herkastalanum hjá Hjálpræðis-
hernum í Reykjavík. Annars eru
bara rólegheit með strákunum
og fjölskyldu og svo spænsku-
tími á Skype.
Daniel Geir Moritz,
ritstjóri stúdentablaðsins
Verkefnayfi rferð,
fótbolti og bíó
Helgin fer í að fara yfir verkefni
hjá sjötta bekknum sem ég var
að taka að mér. Síðan stendur
til að skella sér á Ölver að sjá
Eið Smára skora á Anfield og
bíóferð er á teikniborðinu.
GIRNILEGT Þessi kaka er algjört nammi.
HELGIN
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Hlynur, Elísabet og Eygló
eru þrjú af níu sem kom-
ust inn á leikarabraut
Listaháskólans. Þau eru
rétt að ná sér niður á jörðina eftir miklar
tilfinningasveiflur síðustu daga, biðina og
svo spennufallið við að komast inn. Leiklist-
argyðjan er þeim alls ekki ókunnug enda
öll alin upp af listafólki. Þau segja það þó
engan bagga að vera leikarabörn, nema ef
til vill að mæta í viðtöl eins og þetta.
Foreldrar Hlyns eru Þorsteinn Guð-
mundsson, leikari og uppistandari, og
Jóhanna Halldórsdóttir söngkona. Elísabet
er dóttir Guðrúnar Gunnarsdóttur söng-
konu og Valgeirs Skagfjörð leikara og Eygló
Hilmarsdóttir er dóttir Sóleyjar Elíasdótt-
ur og Hilmars Jónssonar, sem bæði eru
leikarar.
Hafið þið alltaf stefnt að leiklistarnámi?
Elísabet: „Það var erfitt að komast hjá
því. Maður var alltaf í leikhúsinu að fylgj-
ast með.“
Hlynur: „Nei, raunar ekki. Ég er af stórri
leikaraætt og þau héldu mér eiginlega bara
frá þessu. Mér var bókstaflega haldið frá
leikhúsinu og bannað að fara á sýningar. Ég
uppgötvaði samt sjálfur með tímanum að
þetta væri rétta skrefið fyrir mig.“
Eygló: „Umhverfið mótar mann svo sann-
arlega.“
Þannig að þið vitið alveg hvað þið eruð
búin að koma ykkur út í?
Hlynur: „Já. Lág laun og svolítið hark.
Það er bara skemmtilegt. En það sýnir líka
að við völdum þetta nám út frá einskærum
áhuga.“
Þeim líst öllum mjög vel á bekkinn.
Segja þetta vera eðalmanneskjur og hlakka
óskaplega til að byrja í náminu næsta haust.
Elísabet: „Það eru níu mánuðir í þetta.
Þetta er heil eilífð. Heil meðganga.“
Eygló: „Við þekkjumst mörg og það eru
alls kyns tengsl í hópnum. Við Elísabet
erum að vinna saman og hinar þrjár stelp-
urnar sem komust inn eru allar að leika
með mér í Konubörnum.“
Hlynur: „Svo eru tvö pör í þessum hópi.“
Elísabet: „Þú sérð það. Leikarabörnin í
þessum hópi eru langt frá því að vera það
merkilegasta!“
Hlynur og Elísabet komust inn í skólann í
fyrstu tilraun en Eygló var að reyna í annað
sinn. „Það er gott að fá að berjast fyrir því
sem maður vill gera,“ segir hún og Hlynur
grípur orðið: „Já, þetta er ekki sjálfgefið,
þótt við séum leikarabörn.“
Feta í fótspor foreldranna
Hlynur Þorsteinsson, Elísabet Skagfjörð og Eygló Hilmarsdóttir fengu að vita í vikunni að
þau hefðu komist inn í leiklistarskólann. Þau eiga það sameiginlegt að vera með leiklistarbakter-
íuna í blóðinu enda alin upp af leikurum og vita því alveg hvað þau eru búin að koma sér út í.
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
LEIKLISTARNEMAR Eygló, dóttir Sóleyjar Elíasdóttur og Hilmars Jónssonar, Elísabet, dóttir Guðrúnar Gunnars dóttur
og Valgeirs Skagfjörð og Hlynur, sonur Þorsteins Guðmundssonar og Jóhönnu Halldórsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
8
3
-6
F
3
C
1
7
8
3
-6
E
0
0
1
7
8
3
-6
C
C
4
1
7
8
3
-6
B
8
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K