Fréttablaðið - 24.01.2015, Qupperneq 50
| ATVINNA |
www.adal.is
Faggiltur skoðunaraðili í 20 ár
Aðalskoðun hf. óskar eftir að ráða bifvélavirkja til starfa við skoðun ökutækja á
höfuðborgarsvæðinu. Um framtíðarstarf er að ræða en einnig kemur til greina starf
í sumarafleysingum. Umsóknarfrestur er til 30. janúar.
Nánari upplýsingar veita Árni Stefánsson þjónustustjóri og Hörður Harðarson fagstjóri í
síma 590 6900. Umsóknir sendist til Árna, arni@adalskodun.is. Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
Aðalskoðun hf. er faggild óháð skoðunarstofa á ökutækjasviði og starfrækir í dag
fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt skoðunarstöð í Reykjanesbæ.
Aðalskoðun sinnir einnig skoðunum í Grundarfirði, Ólafsfirði og Reyðarfirði.
BIFVÉLAVIRKJAR
SKOÐUNARMAÐUR ÖKUTÆKJA
Akademískar stöður við lagadeild
Lagadeild Háskólans í Reykjavík leitar að tveimur öflugum starfsmönnum til að sinna kennslu og rannsóknum á sviði
annars vegar stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttar og hins vegar íslensks fjármunaréttar og skyldra greina.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag
með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir skólans eru fjórar: lagadeild, tölvunarfræðideild,
tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við
atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur háskólans eru
um 3500 og starfa um 230 fastir starfsmenn við skólann auk fjölda stundakennara.
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | www.hr.is
STARFSSVIÐ:
Starfsmennirnir munu sinna kennslu við lagadeild, stunda rannsóknir, leiðbeina nemendum í rannsóknarverkefnum
og sinna ýmsum tilfallandi verkefnum innan deildarinnar. Starfið veitir viðkomandi tækifæri til þess að hafa áhrif á
þróun rannsókna og kennslu í lögfræði við háskóla sem hefur nýsköpun og frumkvöðlastarf að leiðarljósi.
Ráðið verður í stöður sérfræðings, lektors, dósents eða prófessors, út frá hæfismati. Önnur staðan gæti,
ef þess er óskað, verið tímabundin til 12 - 18 mánaða.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Doktors- eða fullnaðarpróf í lögfræði.
• Reynsla af fræðiskrifum í lögfræði.
• Reynsla af kennslu á háskólastigi.
• Reynsla úr atvinnulífi.
• Áhugi á miðlun þekkingar til nema, fræðasamfélags og almennings.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Umsóknum skal skilað til Háskólans í Reykjavík á vefnum ru.is/lausstorf. Með umsókn skal fylgja ferilskrá,
skrá yfir birtar fræðilegar greinar, lýsing á rannsóknarsviði, upplýsingar um kennsluferil og um þrjá aðila sem
veitt geta meðmæli. Eintak af allt að þremur áhrifamestu ritrýndum birtingum umsækjanda má einnig fylgja með.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2015.
Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Helgadóttir, forseti lagadeildar, (ragnhildurh@ru.is) og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir,
mannauðsstjóri, (sigridureg@ru.is). Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
ÞJÓNUSTULIÐI
RÆSTING
í Menntaskólanum í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða
þjónustuliða til ræstinga og umsjónar með
umgengni í skólanum á dagvinnutíma.
Möguleiki á hlutastörfum.
Laun eru skv. sérstökum samningi Eflingar og
fjármálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
skólans í síma 594 4000 hjá skrifstofustjóra eða
ræstingastjóra.
Skólameistari
kopavogur.is
Spennandi störf
hjá Kópavogsbæ
Grunnskólar
· Stuðningsfulltrúi í Kársnesskóla
· Umsjónarkennari í ensku í Hörðuvallaskóla
Menntasvið
· Verkefnastjóri spjaldtölvuverkefnis
grunnskóla Kópavogsbæjar
Velferðarsvið
· Starfsfólk á heimili og hæfingarstöð fyrir
fatlaða
· Ráðgjafa í málefnum fatlaðra
Nánari upplýsingar og fleiri störf er að finna á
vef Kópavogsbæjar
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Vakin er athygli á að öll laus störf hjá bænum
eru auglýst www.kopavogur.is
Störf á heimilum
fatlaðs fólks
Þroskaþjálfar, félagsliðar og stuðningsfulltrúar óskast
til starfa á heimilum félagsins í Reykjavík.
Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
Um er að ræða framtíðarvinnu, einnig er möguleiki á
tímavinnu. Stöðurnar eru lausar strax.
Á heimili á Háteigsvegi vantar 25-30% stöðu á kvöld-
vaktir. Upplýsingar gefur Þóra Þórisdót tir í síma
551-0014 og 822-0158.
Umsókn sendist á thorath@styrktarfelag.is.
Á heimili í Víðihlíð vantar 80% starf á morgun-,
kvöld- og helgarvaktir.
Upplýsingar gefur Guðrún Guðmundsdót tir í síma
568-0242. Umsókn sendist á gunna@styrktarfelag.is
Hlutverk star fsfólks í búsetu er fyrst og fremst fólgið
í því að aðstoða íbúa í daglegu líf i og efla sjálfstæði
þeirra.
Upplýsingar um félagið og atvinnuumsókn má finna á
heimasíðu þess www.styrktarfelag.is.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss
styrktarfélags.
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR10
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
8
6
-8
F
1
C
1
7
8
6
-8
D
E
0
1
7
8
6
-8
C
A
4
1
7
8
6
-8
B
6
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K