Fréttablaðið - 24.01.2015, Side 56

Fréttablaðið - 24.01.2015, Side 56
Við leitum starfa fyrir fólk á atvinnuleysiskrá hjá nokkrum stéttarfélögum – hæft fólk sem er tilbúið til að takast á við margvísleg verkefni. Ef þú ert með starf á lausu gætum við haft rétta starfsmanninn. Kynntu þér málið á vefsíðu okkar: www.starfid.is – eða sendu okkur fyrirspurn: vinna@starfid.is STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu við fólk án atvinnu, atvinnuleitendur, sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 10 atvinnuráðgjafar STARFs. Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa. www.starfid.is Vinnu vantar Háskólatorgi, 3. hæð Sæmundargata 4 Sími 5700 700 fs@fs.is www.fs.is Menntunar- og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun og kennslureynsla er skilyrði • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg • Góð tök á Word og Excel • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar • Hæfni í mannlegum samskiptum Viltu vera með? Við erum stolt af skólunum okkar! Félagsstofnun stúdenta óskar að ráða til starfa leikskóla stjóra á leikskólann Sólgarð. Við leitum að einstaklingi með mikinn metnað og vilja til að leiða og starfa eftir stefnu leikskóla stúdenta, HighScope. Leikskólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á starfi leikskólans. Umsóknir sendist á starf@fs.is fyrir 5. febrúar. ásamt yfirliti um menntun, fyrri störf, upplýsingum um meðmælendur og annað sem umsækjandi telur skipta máli. Um HighScope stefnuna: HighScope stefnan er heildstæð hágæðastefna s em hefur það markmið að gera hverju barni kleift að nýta eigin áhuga og styrkleika t il að fá sem mest út úr eigin námi. Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) var stofnuð 1. október 2014, í víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins, við sameiningu Heilbrigðisstofnunar Suð-Austurlands (HSSa), Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja (HSVe). Formleg sameining tók gildi 1. janúar 2015. Heildarframlag til HSU á fjárlögum 2015 er um 3,6 milljarðar króna og hjá stofnuninni starfa ríflega 500 manns. Fjöldi íbúa í umdæminu eru um 26.000 manns. Hlutverk HSU er að leggja grunn að skipulagi almennrar heilbrigðisþjónustu og tryggja íbúum í heilbrigðisumdæmi Suðurlands og öðrum þjónustuþegum, s.s. ferðamönnum á svæðinu, jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er tök á að veita. Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir lausa til umsóknar sérnámsstöðu í heimilislækningum við starfsstöð á Selfossi. Um er að ræða 100% starf eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu við starfsstöðina. Aðalstarfsstöð verður heilsugæslan á Selfossi og verður námið byggt á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum en einnig er gert er ráð fyrir samstarfi við kennslustjóra sérnáms í heimilislækningum varðandi fræðilegt nám sem fer fram í reglulegu hópstarfi í Reykjavík. Til greina kemur að taka hluta af náminu erlendis í samráði við kennslustjóra. Starf veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi. Reiknað er með að staðan sé til þriggja ára. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Hægt er að aðstoða við að útvega húsnæði. Nánari upplýsingar veita Arnar Þór Guðmundsson, yfirlæknir og kennslustjóri, netfang arnar@hsu.is, sími 480-5100 og Hjörtur Kristjánsson framkvæmdastjóri lækninga, netfang hjortur.kristjansson@hsu.is, sími 481-1955. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar nk. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Umsókn óskast fyllt út á umsóknarblað á www.hsu.is og henni þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf og reynslu. Umsóknum er skilað rafrænt á hsu@hsu.is. Sérnámsstaða í heimilislækningum Helstu viðfangsefni og ábyrgð • Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd • Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda • Vaktþjónusta • Þátttaka í verkefnum innan starfsstöðvar Menntunar- og hæfniskröfur • Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf Heilbrigðisstofnun Suðurlands | Selfoss hefur þú áhuga á efnum? Akureyri - Egilsstaðir - Hella - Ísafjörður Mývatn - Patreksfjörður - Reykjavík Snæfellsnes - Vestmannaeyjar FAGMENNSKA SAMVINNA FRAMSÝNI VIRÐING Efnateymi Umhverfisstofnunar leitar að starfsmanni með brennandi áhuga á því að stuðla að ábyrgri notkun og markaðssetningu hættulegra efna. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu og samvinnu innanlands og utan. Ítarlegri upplýsingar um starfið og hæfniskröfur til þess er að finna á starfatorg.is og umhverfisstofnun.is/storf-i-bodi/ Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2015. Umsóknir skulu sendar til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið umhverfisstofnun@umhverfisstofnun.is Bókari óskast Cu2.ehf óskar eftir að ráða reyndan bókara. Um er að ræða 50% starf. Starfssvið: Bókhald í DK. Almenn skrifstofustörf. Kostir: Viðurkenndur bókari. Reynsla í Stólpa & DK. Rík hæfni í mannlegum samskiptum. Góð exelkunnátta. Vinnsamlegast sendið ferilskrá til: Harald Isaksen, framkvæmdastjóra á netfandið:harald@hos.is Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2015. Umsóknir sendast á trek@trek.is eða nánari upplýsingar í síma 571 3344. Við biðjum umsækjendur að senda ferilskrá ásamt upplýsingum um ferðareynslu. Spennandi störf á hálendi Íslands Trek Iceland óskar eftir að gönguleiðsögumönnum í fulla vinnu fyrir sumarið 2015. Starfstímabilið er frá 15. júní – 10. september 2015. Trek Iceland er ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í skipulögðum gönguferðum á hálendi Íslands. Starfið felur í sér leiðsögn í dagsferðum og lengri ferðum fyrirtækisins. Hæfniskröfur: • Jákvæðni í starfi • Þjónustulund • Leiðtogahæfni • Hæfni í mannlegum samskiptum • Gott líkamsástand • Tungumálakunnátta • Leiðsögunám 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 5 F B 1 1 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 8 4 -F A 3 C 1 7 8 4 -F 9 0 0 1 7 8 4 -F 7 C 4 1 7 8 4 -F 6 8 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.