Fréttablaðið - 24.01.2015, Page 57

Fréttablaðið - 24.01.2015, Page 57
Staða skólastjóra við leikskólann Laut er laus til umsóknar Leikskólinn Laut er fjögurra deilda leikskóli með rúmlega 100 nemendur og fer starfsemin fram í nýlegu húsnæði. Leikskólinn starfar samkvæmt uppbygging- arstefnunni og er í samstarfi við félagsþjónustu sveit- arfélagsins um eflingu foreldrafærni á grundvelli PMTO. Sjá nánar á heimasíðu skólans. Meginhlutverk leikskólastjóra er að stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri leikskólans og er leitað eftir metnaðarfullum og áhugasömum leiðtoga sem veitir skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun er skilyrði • Reynsla af stjórnun leikskóla er skilyrði • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, uppeldis- eða kennslufræði er æskileg • Lipurð í mannlegum samskiptum • Metnaður og áhugi fyrir nýjungum • Frumkvæði og skipulagshæfni Nánari upplýsingar um starfið veita Nökkvi Már Jóns- son, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs í net- fang nmj@grindavik.is og Ragnhildur Birna Hauksdóttir, leikskólaráðgjafi í netfang ragnhildur@grindavik.is Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og FSL. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá með yfirliti um menntun og reynslu ásamt ítarlegri greinargerð um fyrirhugaðar áherslur í skólastarfi. Umsókn skal skilað á netfang sviðsstjóra félags- þjónustu- og, eigi síðar en 4. febrúar 2015. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf hið fyrsta. Jafnræði, jákvæðni, þekking, framsækni og traust Ríki Vatnajökuls óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur vilja til að ná árangri í starfi. Starfssvið: • Dagleg stjórnun og rekstur félagsins, ásamt verkefnastjórnun. • Gerð framkvæmda- og fjárhagsáætlana og eftirfylgni með þeim. • Virk þátttaka í stefnumörkun um starfsemi félagsins og framkvæmd hennar. • Virk þáttaka í markaðs- og kynningarmálum og umsjón með heimasíðu félagsins. • Samskipti við fyrirtæki, hagsmunasamtök og stofnanir innan félagsins (klasans) sem utan. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi og/eða víðtæk reynsla af rekstrar- eða markaðsmálum. • Reynsla af stjórnun og rekstri. • Þekking og reynsla úr ferðaþónustu kostur. • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta sem og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður í starfi. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Góð tölvukunnátta og geta til að hagnýta sér upplýsingatækni á fjölbreyttan máta. Ríki Vatnajökuls er einkahlutafélag um klasa samstarfsfyrirtækja og opinbera aðila sem tengjast ferðaþjónustu á Suð-austurlandi. RV stuðlar að öflugri og arðbærri ferðaþjónustu allt árið sem byggir á aðdráttarafli stórbrotinnar náttúru, matvælum og menn- ingu svæðisins. Skrifstofan er á Höfn í Hornafirði. Sjá nánar: visitvatnajokull.is Umsjón með ráðningunni hafa Ingibjörg tel. 899 7881 (job.rikivatnajokuls@gmail.is), Vala tel. 863 9199 (vala@hornafjordur.is), Ásmundur tel. 896 6412 (arnanes@arnanes.is) Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á job.rikivatnajokuls@gmail.com Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynn- ingarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) var stofnuð 1. október 2014, í víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins, við sam- einingu Heilbrigðisstofnunar Suð-Austurlands (HSSa), Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja (HSVe). Formleg sameining tók gildi 1. janúar 2015. Heildarframlag til HSU á fjárlögum 2015 er um 3,6 milljarðar króna og hjá stofnuninni starfa ríflega 500 manns. Fjöldi íbúa í umdæminu eru um 26.000 manns. Hlutverk HSU er að leggja grunn að skipulagi almennrar heilbrigðisþjónustu og tryggja íbúum í heilbrigðisumdæmi Suðurlands og öðrum þjónustuþegum, s.s. ferðamönnum á svæðinu, jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er tök á að veita. Við starfsstöðina í Vestmannaeyjum er sinnt heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu við íbúa Vestmannaeyja, sem eru um 4.300 talsins, auk ferðamanna. Heilsugæslan veitir almenna lækninga- og hjúkrunarþjónustu, forvarnir og heilsuvernd ásamt bráða- og slysaþjónustu. Við sjúkrahússvið er starfsrækt legudeild, hjúkrunardeild, skurðstofa og fæðingarhjálp. Vestmannaeyjar eru heillandi og fjölskylduvæn náttúruparadís með öflugt íþrótta- og menningarlíf. Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laust til umsóknar starf yfirlæknis heilsugæslu við starfsstöð í Vestmannaeyjum. Yfirlæknir hefur umsjón með daglegum rekstri á þjónustu sinnar sérgreinar við starfsstöðina auk þátttöku í almennum störfum heilsugæslulækna og vaktþjónustu. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga við HSU. Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laus til umsóknar störf heilsugæslulæknis við starfsstöð í Vestmannaeyjum. Um er að ræða 100% starf eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu við starfsstöðina. Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laus til umsóknar störf lyflæknis/sjúkrahúslæknis við starfsstöð í Vestmannaeyjum. Um er að ræða starf yfirlæknis í 100% starfshlutfalli eða samkvæmt nánara samkomulagi. Yfirlæknir hefur umsjón með daglegum rekstri á þjónustu sinnar sérgreinar og sjúkrahúslækninga við starfsstöðina auk þess að sinna hefðbundnum lækningum og vaktþjónustu. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga við HSU. Starf veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Hægt er að aðstoða við að útvega húsnæði. Starf veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Hægt er að aðstoða við að útvega húsnæði. Starf veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Hægt er að aðstoða við að útvega húsnæði. Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Kristjánsson framkvæmdastjóri lækninga, netfang hjortur.kristjansson@hsu.is, sími 481-1955. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar nk. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Umsókn óskast fyllt út á umsóknarblað á www.hsu.is og henni þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf og reynslu. Umsóknum er skilað rafrænt á hsu@hsu.is. Yfirlæknir heilsugæslu Heilsugæslulæknir Lyflæknir/sjúkrahúslæknir Helstu viðfangsefni og ábyrgð • Stjórn starfsemi lækna í heilsugæslu • Leiðandi hlutverk í faglegum málefnum og þróun starfsemi • Áætlanagerð og breytingastjórnun • Ábyrgð á rekstri og faglegri þjónustu heimilislækninga • Innleiðing nýjunga • Þátttaka í eflingu kennslu, fræðslu og endurmenntunar Helstu viðfangsefni og ábyrgð • Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd • Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda • Þátttaka í vaktþjónustu • Kennsla nema og starfsfólks • Þátttaka í þróun sinnar faggreinar innan starfsstöðvar Helstu viðfangsefni og ábyrgð • Stjórn starfsemi lækna á sjúkrahússviði • Leiðandi hlutverk í faglegum málefnum og þróun starfsemi • Áætlanagerð og breytingastjórnun • Ábyrgð á rekstri og faglegri þjónustu sjúkrahússviðs • Innleiðing nýjunga • Þátttaka í eflingu kennslu, fræðslu og endurmenntunar Menntunar- og hæfniskröfur • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í heimilislækningum eru skilyrði • Reynsla af stjórnun, áætlanagerð og rekstri er æskileg • Stjórnunar- og skipulagningarhæfni • Reynsla af umbótaverkefnum og teymisvinnu • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf Menntunar- og hæfniskröfur • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í heimilislækningum eru skilyrði • Reynsla af umbótaverkefnum og teymisvinnu • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf Menntunar- og hæfniskröfur • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi eru skilyrði • Reynsla af stjórnun, áætlanagerð og rekstri er æskileg • Stjórnunar- og skipulagningarhæfni • Reynsla af umbótaverkefnum og teymisvinnu • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf Heilbrigðisstofnun Suðurlands | Vestmannaeyjar 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 5 F B 1 1 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 8 4 -F A 3 C 1 7 8 4 -F 9 0 0 1 7 8 4 -F 7 C 4 1 7 8 4 -F 6 8 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.