Fréttablaðið - 24.01.2015, Page 90
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 46
Útfararþjónusta síðan 1996
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGMUNDUR MAGNÚS JÓNSSON
læknir,
fæddur 29. desember 1917 á Ingjaldshóli,
Snæfellsnesi, lést á sjúkrahúsi í Springfield,
Massachusetts, laugardaginn 10. janúar 2015.
Útförin fer fram í Holyoke, Massachusetts,
laugardaginn 24. janúar. Jarðsett verður að Ingjaldshóli
á komandi sumri.
Ingveldur Jónsson Potter Clifford Mark Potter
Arndís Edda Jónsson Bergþór N. Bergþórsson
Gunnar B. Jónsson
Ásthildur H. Jónsson Bjarni Jónsson
Ómar G. Jónsson Rannveig H. Hermannsdóttir
Tryggvi S. Jónsson Jennifer H. Jónsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ARNFRÍÐUR KRISTÍN ARNÓRSDÓTTIR
(FRÍÐA)
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn
18. desember. Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. janúar
kl. 13.00.
Valgerður M. Guðmundsdóttir Ásgeir Sumarliðason
Ólafur G. Guðmundsson Ingibjörg Halldórsdóttir
Arnór Kr. Guðmundsson Helga Jónsdóttir
Magnús Guðmundsson Hrefna Halldórsdóttir
Guðmundur Guðmundsson Bergrún Bjarnadóttir
Sigurborg M. Guðmundsdóttir Jón Kristinn Jensson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
STEFANÍU JÓNSDÓTTUR
Neskaupstað.
Ari Sigurjónsson
Sigurjón Arason Margrét Sigurðardóttir
Jóna Katrín Aradóttir Benedikt Sigurjónsson
Ingibjörg Aradóttir Sigurður Friðjónsson
Eysteinn Arason María Ásmundsdóttir
Hilmar Már Arason Katrín A. Magnúsdóttir
Pjetur St. Arason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
BJÖRG PÁLSDÓTTIR
lést á heimili sínu miðvikudaginn
14. janúar. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum
starfsfólki heimahlynningar Landspítalans
og heimahjúkrunar Hafnarfjarðar frábæra
umönnun.
Guðjón Bjarnason
Bjarni S. Guðjónsson Ancharin Pechmanee
Halldór S. Guðjónsson Hrafnhildur Björnsdóttir
Guðjón Frans Halldórsson
Björn Breki Halldórsson
Útfararþjónusta
í 20 ár
Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G. Guðmundsson
Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker
Þjónusta allan sólarhringinn
Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300
Útför ástkærs sonar míns,
bróður okkar og mágs,
STEFÁNS ÞÓRS JÓNSSONAR
Hamraborg 34,
Kópavogi,
fer fram frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn
26. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent
á Von, styrktarfélag gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi.
Kt.: 490807-1010. Banki: 0513-26-3147.
Inge Löwner Valentínusson
Guðlaug Jónsdóttir Arnór Valdimarsson
Elísabet Jónsdóttir Grétar Árnason
Auðunn Jónsson María Níelsdóttir
Einar Árnason Karen Hilmarsdóttir
KRISTINN PÁLMASON
mjólkurfræðingur
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
miðvikudaginn 21. janúar sl. Útför Kristins
verður gerð frá Selfosskirkju föstudaginn
30. janúar kl. 15.00.
Salóme Þorbjörg Guðmundsdóttir
Gabríel Kristinsson
Rebekka Kristinsdóttir Björgvin R. Valentínusson
Alexander Örn Björgvinsson
Sigþóra Magnúsdóttir
Helgi Páll Pálmason Sólveig Á. Ísafoldardóttir
Guðný F. Pálmadóttir Guðbrandur Bjarnason
Skjöldur Pálmason María Ragnarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
„Mér finnst það bara ágæt tilfinn-
ing að vera að láta af embætti. Ég er
búinn að þjóna lengi sem prestur og
hef verið prófastur í 17 ár. Svo hef
ég næg verkefni fram undan,“ segir
séra Gunnar Kristjánsson, prófast-
ur á Reynivöllum í Kjós. Hann átti
sjötugsafmæli síðastliðinn sunnu-
dag og þeim tímamótum fylgja óhjá-
kvæmilega breytingar fyrir mann í
hans stöðu. Hann verður þó prestur
áfram til vors en lætur af embætti
prófasts nú 1. febrúar. Biskup skipar
í það embætti að fengnum uppástung-
um prestanna í prófastsdæminu. Það
fyrirkomulag hefur verið við lýði frá
upphafi siðbótartímans árið 1541, að
sögn séra Gunnars.
Séra Þórhildur Ólafs hefur verið
skipuð prófastur í Kjalarnesspró-
fastsdæmi frá og með 1. febrúar.
Hún er prestur í Hafnarfirði og telur
Gunnar embættinu vel komið í henn-
ar höndum.
Gunnar og kona hans, Anna Mar-
grét Höskuldsdóttir kennari, hafa
búið á prestssetrinu að Reynivöll-
um í Kjós frá árinu 1978 en færa sig
um set með vorinu. „Reynivellir var
eina prestakallið sem var laust þegar
við komum frá Þýskalandi haustið
1978 að afloknu doktorsprófi mínu,
við ætluðum að vera hér til að byrja
með, kannski eitt til tvö ár eða svo, en
höfum kunnað vel við okkur í Kjós-
inni,“ segir Gunnar og upplýsir að nú
ætli þau að flytjast í þéttbýlið.
„Við erum ekki enn búin að ákveða
hvar við setjumst að en verðum von-
andi búin að því með vorinu, búslóðin
verður hafin til klakks á fardögum,“
segir hann glaðlega.
Gunnar hefur alla tíð sinnt fræði-
störfum, haldið erindi og fyrirlestra
og skrifað, meðal annars kom nýlega
út eftir hann bókin Marteinn Lúther
– svipmyndir úr siðbótarsögu. Skyldi
hann hafa safnað verkefnum í sarp-
inn til að sinna þegar um hægist?
„Já,“ viðurkennir hann.
„Meðal annars hef ég lengi haft í
huga að sinna séra Matthíasi Joch-
umssyni svolítið betur en áður, því
hann var merkilegur brautryðjandi í
guðfræði, bókmenntum og menning-
armálum almennt og hefur átt hug
og hjarta þjóðarinnar alla tíð. Fyrir
nokkrum árum kom út ítarleg og góð
ævisaga en mér finnst komið að guð-
fræðingi að rekja hugmyndir hans og
hugsjónir í guðfræði, trúarheimspeki
og skáldskaparfræðum. Auk fræði-
mennskunnar munum við Anna halda
áfram að sinna því sem við höfum
gert, ferðalögum innan lands og utan,
hestamennsku og gönguferðum og
mun ekki skorta áhugaverð viðfangs-
efni.“ gun@frettabladid.is
Okkur mun ekki skorta
áhugaverð viðfangsefni
Séra Gunnar Kristjánsson prófastur ætlaði upphafl ega að vera skamman tíma á Reyni-
völlum í Kjós en árin þar eru að verða 37. Nú eru starfslok og fl utningar í vændum.
Á REYNIVÖLLUM „Mér finnst það bara góð tilfinning að vera að láta af störfum,“ segir séra Gunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jón Páll Sigmarsson vann keppnina um
sterkasta mann heims þennan mánaðardag
árið 1985. Keppnin fór fram í Mora í Svíþjóð
og Jón hlaut 57 stig af 60 möguleikum. Mótið
stóð yfir í tvo daga. Keppt var í átta greinum
og af þeim sigraði Jón Páll í þremur þrátt fyrir
meiðsl.
Meðal keppnisgreina var sleðadráttur þar
sem keppendur ýttu eða drógu 400 kílóa sleða
um 80 metra vegalengd en í þeirri grein varð
Jón Páll fyrir því óhappi að togna í baki.
Einnig áttu keppendur að lyfta stórum
trjástofnum og hlaða 80 kílóa þungum ís-
molum á vörubíl.
Jón Páll sagði í viðtali á eftir að hann drykki
mikið lýsi, vaknaði á nóttunni og drykki það af
stút með tóman belginn. Það smyrði vel alla
liði og gæfi honum mikinn kraft.
ÞETTA GERÐIST: 24. JANÚAR 1985
Jón Páll sterkasti maður heims
TÍMAMÓT
Við erum ekki enn
búin að ákveða hvert en
verðum vonandi búin að því
með vorinu, búslóðin
verður hafin til klakks á
fardögum.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
8
4
-4
D
6
C
1
7
8
4
-4
C
3
0
1
7
8
4
-4
A
F
4
1
7
8
4
-4
9
B
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K