Fréttablaðið - 24.01.2015, Síða 98
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 54
Opnunarmynd Frönsku kvik-
myndahátíðarinnar er mynd-
in Qu‘est-ce qu‘on a fait au Bon
Dieu? eða Ömurlegt brúðkaup sem
Philippe de Chauveron leikstýrði.
Tveir af aðalleikurum myndarinn-
ar, Noom Diawara og Medi Sadoun,
eru staddir hér á landi í tilefni af
hátíðinni.
„Maður vaknar klukkan tíu og
það er enn þá dimmt úti, það er
yndislegt. En það er bara af því
að mér finnst gott að sofa,“ segir
Sadoun hlæjandi þegar hann er
spurður hinnar klassísku spurn-
ingar um hvernig þeim félögum
lítist á landið.
„Við komum bara hingað í fyrra-
dag, en við munum prufa hákarl-
inn,“ bætir Diawara spenntur við.
Ömurlegt brúðkaup hefur átt
gífurlegum vinsældum að fagna í
heimalandi sínu og um tólf millj-
ónir hafa séð myndina sem fjallar
um Verneuli-hjónin, fjórar dætur
þeirra og jafnmarga tengdasyni.
Hjónin eru vel stæð, vel mennt-
uð og kaþólsk. Þeirra heitasti
draumur er að dætur þeirra gift-
ist kaþólikkum en þrjár þeirra
eru þegar giftar mönnum af ólík-
um uppruna og með ólíkar trúar-
skoðanir. Þau binda því allar sínar
vonir við yngstu dótturina. Þegar
hún tilkynnir þeim að hún sé trú-
lofuð kaþólikka eru hjónin í skýj-
unum en þurfa fljótlega að horfast
í augu við og takast á við fordóma
sína.
Í myndinni er gert stólpagrín
að fordómum og skilaboðin eru
skýr. „Raunverulegt viðfangsefni
myndarinnar er að burtséð frá því
hversu ólík við erum þá getum við
öll lifað saman í sátt og samlyndi.
En það verða að vera einhverjir
brandarar, sérstaklega af því að
fólk vill ekki láta sér líða eins og
það sé verið að predika yfir því. Ef
þú segir það í gegnum brandara þá
skilur fólk það. Og þá sér fólk hvað
það getur verið vitlaust stundum,“
segir Diawara hlæjandi og bætir
við: „Og hugsar með sér: ég geri
líka svona vitleysu, kannski þarf
ég að breytast? Og svo breytist það
kannski eitthvað smá.“
Tökur myndarinnar stóðu yfir
í um tvo mánuði og þeir segja
það hafa verið skemmtilegan
tíma sem einkenndist af hlátri.
„Við þekktumst aðeins fyrir
og þetta voru tveir mánuðir af
tökum, hlátri og vinskap,“ segir
Diawara og bætir við að eftir að
tökum lauk séu þeir í miklu sam-
bandi, hringist á og hittist oft.
Sadoun tekur í sama streng og
segir að þegar svo góð orka og vin-
átta verði til skili það sér í gæðum
myndarinnar. Í næsta mánuði
hefur hann tökur á nýrri mynd en
mótleikari hans er enginn annar
er franski stórleikarinn Gerard
Depardieu.
Diawara, sem er einnig uppi-
standari, hefur nýlega lokið við að
skrifa nýtt uppistand og er einnig
með gamanmynd í bígerð. „Fólk
þarf að hlæja. Ég held að það sé
mjög mikilvægt. Fara aðeins frá
veruleikanum. Þú kemur í bíó og
í einn og hálfan tíma gleymir þú
öllum vandamálum þínum og ferð
heim léttur og frjáls,“ segi Diaw-
ara og Sadoun bætir við: „Hlátur-
inn er besta meðalið.“
Franska kvikmyndahátíðin fer
nú fram í fimmtánda sinn hérlend-
is og stendur yfir til 2. febrúar.
Dagskrá hennar er hægt að nálg-
ast á vefsíðunni Fff-is.com.
Fólk þarf að hlæja.
Ég held að það sé mjög
mikilvægt. Fara aðeins
frá veruleikanum.
Noom Diawara
HARÐSNÚINN
blandari
FA
S
TU
S
_F
_0
3
.0
2
.1
4
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Veit á vandaða lausn
Þriðja kvikmyndin um Hungur-
leikana, The Mockingjay – Part
1, var sú kvikmynd sem skilaði
mestu í kassann í ár. Tekjur af
myndinni námu alls rúmum 333
milljónum dollara. Talningin
tekur aðeins til Bandaríkjanna.
Hungurleikarnir er eins og
stendur örlítið ofar en mynd
James Gunn, Guardians of the
Galaxy. Aðeins munar nú um
8.000 dollurum á myndunum. Það
bil gæti breikkað en fyrrnefnda
myndin er enn í sýningu í nokkr-
um kvikmyndahúsum.
Í næstu þrjú sæti röðuðu sér
Captain America: The Winter
Sold ier, The LEGO Movie og síð-
asta myndin í þríleiknum um
svaðilför Hobbitans Bilbó Bagga.
Allar skiluðu þær um 250 millj-
ónum dollara í tekjur.
Fyrri tvær myndirnar í flokkn-
um skiluðu öllu meiri tekjum eða
ríflega 400 milljónum dollara.
Áætlað er að fjórða og síðasta
myndin í myndaflokknum muni
koma út í nóvember á þessu ári.
Gert er ráð fyrir að hún muni
koma til með að skila viðlíka upp-
hæðum til framleiðanda síns.
- jóe
Hermiskaðinn hæstur
Hungurleikarnir orðin tekjuhæsta kvikmynd ársins.
SKYTTA Jennifer Lawrence ætti að geta lagt bogann á hilluna von bráðar.
Brandararnir fá fólk til þess að hugsa
Frakkarnir Noom Diawara og Medi Sadoun leika í myndinni Ömurlegt brúðkaup sem sýnd er á Frönsku kvikmyndahátíðinni. Þeir eru
staddir hér á landi og stefna á að smakka hákarl. Í myndinni er gert stólpagrín að fordómum enda kjósa þeir grín framyfi r predikun.
GÓÐIR FÉLAGAR Noom Diawara og Medi Sadoun eru góðir félagar og skemmtu sér vel við tökur myndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Gyða Lóa Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
LÍFIÐ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
8
2
-C
2
6
C
1
7
8
2
-C
1
3
0
1
7
8
2
-B
F
F
4
1
7
8
2
-B
E
B
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K