Fréttablaðið - 18.07.2015, Page 2
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRÉTTIR
FIMM Í FRÉTTUM VANHELGUN OG RIGNINGARTÍÐ
Verslunarmannahelgin á
Mallorca
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444
Verð frá 94.900 kr.*
*m.v. 2 fullorðna og 2 börn í eina viku
30. júlí. Verð fyrir 2 fullorðna 134.900 kr.
Einnig í boði 23. júlí í 2 vikur
SIGRÚN MAGNÚS-
DÓTTIR, umhverfisráð-
herra og formaður Þing-
vallanefndar, segir það
vanhelgun og vanvirð-
ingu að ferðamenn hægi
sér í rjóðri við þjóðargraf-
reitinn á Þingvöllum.
EDDA JÖRUNDSDÓTTIR
hefur sagt upp starfi sínu
sem hjúkrunarfræðingur
á Landspítalanum. Að
óbreyttu hyggst hún
starfa í Noregi eftir að
uppsögn hennar tekur
gildi þann 1. október.
JÓHANN G. JÓHANNSSON,
kúabóndi á bænum Breiða-
vaði á Austurlandi, hefur
áhyggjur af túnslætti þetta
sumarið. Ekki er byrjað að
slá vegna rigninga.
ÁSMUNDUR ÁSMUNDS-
SON myndlistarmaður er
ósáttur við að hafa verið
rekinn úr Myndhöggvara-
félagi Reykjavíkur. Hann
segist sæta ofsóknum og
einelti.
➜ Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs, sendi
bankastjóra Lands-
bankans bréf þess
efnis að bankinn
sé velkominn með
höfuðstöðvar sínar
í bæinn.
Mynduð af sjálfri
Annie Leibovitz
„Sjúklega mikið ævin-
týri og súrrealískt,“
sagði fyrirsætan Eva
Katrín Baldursdóttir
um að hafa verið
ljósmynduð af heims-
fræga ljósmyndar-
anum Annie
Leibovitz fyrir
franska fatamerkið
Moncler.
GLEÐIFRÉTTIN
Norðlæg átt 5-10 m/s með rigningu fyrir
norðan og austan og hita á bilinu 3 til
8 stig, en sumarlegra og bjartara veður
sunnan- og vestanlands með hita upp í 18
stig suðvestan til.
SJÁ SÍÐU 30
VEÐUR
SAMGÖNGUMÁL Óánægja er meðal
einka- og áhugaflugmanna með
nýjar reglur Isavia um skipulag
flugs til og frá Vestmannaeyjum
yfir verslunarmannahelgi.
Samkvæmt reglunum verður
afgreiðslutímum á flugvöllinn
úthlutað svo flugtök og lendingar
verði ekki fleiri en átta á hálftíma.
Auk þess mun atvinnuflug hafi for-
gang.
Fram til þessa hefur flugturn-
inn í Vestmannaeyjum séð um að
dreifa álagi á flugvöllinn. „Það
hefur bara gengið mjög vel,“ segir
Valur Stefánsson, formaður Félags
flugmanna og flugvélaeigenda.
Valur segir sambærilegt fyrir-
komulag hafa verið reynt fyrir
nokkrum árum en það hafi ekki
gengið sem skyldi. „Það var ekk-
ert af litlu vélunum sem fóru þá
helgina,“ segir Valur.
Valur spyr hvers vegna sé verið
að setja nýjar reglur nú þar sem
álagið á flugvellinum hafi verið
mun meira áður
en Landeyjahöfn
var tekin í notk-
un árið 2010.
„Það er miklu
minna af litlum
vélum sem eru
að fara núna
eftir að Land-
eyjahöfn kom
því að Herjólfur
er að ferja obbann af þessu fólki
í dag sem hann gerði ekki áður,“
segir Valur.
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi ISAVIA, segir ástæðu
breytinganna vera áhættumat sem
gert hafi verið síðasta haust.
„Þar komu í ljós öryggis legir
vankantar og það hefði verið
óábyrgt af okkur að bregðast ekki
við,“ segir Guðni.
Þá segir Guðni að eftir samdrátt
í flugi eftir hrun hafi flug til Vest-
mannaeyja tekið að aukast á ný
yfir verslunarmannahelgi.
Afgreiðslutíma á Vestmanna-
eyjaflugvelli um verslunar-
mannahelgi er úthlutað til þess
að koma í veg fyrir að hættu-
ástand skapist vegna of mikils
álags.
„Bæði er það til þess að
tryggja að ekki séu of margar
flugvélar í einu í loftrýminu og
vegna þess að stæði á flugvell-
inum eru takmörkuð.“
Guðni segir að miðað við grein-
ingu á umferðinni ættu flug-
menn og flugfarþegar að kom-
ast leiðar sinnar. „En mögulega
gætu þeir þurft að hliðra tímum
til þess að dreifa álaginu á flug-
völlinn betur,“ segir Guðni.
Guðni bætir við að algengt sé
að afgreiðslutímum sé úthlutað á
álagstímum á flugvöllum. „Þetta
á til dæmis við um Keflavíkur-
flugvöll en þar er afgreiðslu-
tímum úthlutað á helstu álags-
tímum sólarhringsins,“ segir
Guðni. ingvar@frettabladid.is
Gagnrýna takmörkun á
einkaflugi á Þjóðhátíð
Óánægja er á meðal áhugaflugmanna um takmarkanir á flugumferð í Eyjum um
verslunarmannahelgina. Isavia segir breytinguna gerða til að tryggja flugöryggi.
VALUR
STEFÁNSSON
VIÐ LENDINGU Flugvél lendir á flugvellinum í Vestmannaeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
LÖGREGLUMÁL Tvö rán í verslun-
inni Samkaup í Hófgerði í Kópa-
vogi á fimmtudag og síðasta
laugar dag hafa verið upplýst.
Karl á þrítugsaldri viðurkenndi
við yfirheyrslur hjá lögreglu að
hafa verið að verki í bæði skiptin.
Birtar voru myndir af ræningj-
anum í gær og bárust þá ábend-
ingar sem leiddu til handtöku.
Heimir Ríkarðsson hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu segir
að 15 til 20 þúsund krónum hafi
verið rænt í hvort skipti. - bo
Ránin í Samkaup upplýst:
Náðist á mynd
og játaði ránin
SAMFÉLAG „Við vorum með bænahald þar sem yfir 100 manns mættu
og veislu eftir á fyrir alla. Svo skemmtum við okkur og spjölluðum
og krakkarnir léku sér,“ segir Ahmad Seddeq, imam Menningarset-
urs múslima á Íslandi, en söfnuðurinn fagnaði Eid al-Fitr, fyrsta degi
eftir ramadan, föstumánuð múslima, í gær. Ahmad segir að öfugt við
ramadan sé harðbannað að fasta á Eid al-Fitr.
Aðspurður segir hann að ekki sé erfitt að fasta á Íslandi. Í söfnuð-
inum er til dæmis 82 ára gamall maður frá Sýrlandi sem fastaði allan
síðasta mánuð. Hann segir auðveldara að fasta hér en í Mið-Austur-
löndum þar sem hitinn hér er mun vægari. Ahmad segir líkamann þar
að auki venjast föstunni vel. - þea
Múslimar héldu upp á lok ramadan víða um heiminn:
Glöddust í hoppukastala í sólinni
GLEÐI Þessi börn í söfnuði Menningarseturs múslima fögnuðu Eid al-Fitr, fyrsta
degi eftir föstulok, með því að skoppa um í hoppukastala. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
REYKJAVÍKURBORG Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks í borgarráði segja
borgarstjóra ekki líta á borgar-
ráð sem stjórnvald sem taki sjálf-
stæðar ákvarðanir „heldur stimpil
sem hafi það hlutverk að staðfesta
ákvarðanir sem hann hefur þegar
tekið“ eins og segir í bókun þeirra.
Þar er einnig „flausturslegum
og gerræðislegum vinnubrögðum
borgarstjóra og formanns borgar-
ráðs“ við ráðningu sviðsstjóra
skóla- og frístundasviðs harðlega
mótmælt. - gar
Deilt á borgarstjóra:
Segja ráðningu
gerræðislega
LANDBÚNAÐUR Afnám eða lækkun stuðnings við
landbúnað gæti ógnað fæðu- eða matvælaöryggi en á
sama tíma myndi velferð samfélagsins í heild batna.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu
fimm viðskiptafræðinema við Háskólann á Bifröst.
Nemendurnir, Aðalheiður B. Sigurdórsdóttir, Guð-
jón F. Gunnarsson, Jóhannes B. Pétursson, Snorri
Guðmundsson og Svanberg Halldórsson, komast að
þeirri niðurstöðu að neytendur myndu njóta góðs af
slíkum breytingum með auknu vöruúrvali og lægra
vöruverði en hætta sé á því að staðbundnir erfiðleikar
á landsbyggðinni myndu fylgja slíkum breytingum.
„Raddir ólíkra hagsmunaaðila hafa ómað hátt
síðastliðin misseri í umræðunni um stuðning við
íslenskan landbúnað, en lítið hefur farið fyrir tals-
mönnum neytenda,“ segir í skýrslunni.
Skýrsluhöfundar sammælast um ágæti íslenskrar
landbúnaðarframleiðslu en telja brýnt að endurskoða
skilvirkni núgildandi fyrirkomulags. „Það að gagn-
rýna núverandi stuðningskerfi og óska þess að það
verði mótað að nýjum og breyttum tímum þýðir ekki
það sama og að vera á móti bændum. Í því samhengi
skora skýrsluhöfundar á stjórnvöld að vera leiðandi
afl í upplýstri umræðu í þágu samfélagsins,“ segir í
skýrslunni.
Telja þau varhugavert að að talsmönnum neytenda
eða launþega sé sjaldnast, eða aldrei, boðið til borðs
í þau ráð eða nefndir sem móta landbúnaðarstefnu
Íslendinga. - fbj
Ný skýrsla um stuðning við landbúnaðarkerfið kallar eftir upplýstri umræðu:
Afnám stuðnings bætir velferð
ENDURSKOÐUN BRÝN Skýrsluhöfundar um landbúnaðar-
kerfið telja brýnt að talsmenn neytenda fái pláss við borðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-2
8
A
C
1
7
5
3
-2
7
7
0
1
7
5
3
-2
6
3
4
1
7
5
3
-2
4
F
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K