Fréttablaðið - 18.07.2015, Qupperneq 4
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
ÚTIVIST „Þetta er hryllingur og
þetta á að fjarlægja alls staðar,“
segir Vilborg Anna Björnsdóttir,
formaður Félags leiðsögumanna.
Unnið hefur verið að því síðustu
daga að fjarlægja örvörður nálægt
Þingvöllum og girða fyrir svæðið.
„Þetta er þannig að fólk fer í
ferðalag og því finnst það þurfa að
skilja eitthvað eftir sig til að segja
„ég var hér“. Þetta skemmir nátt-
úruna hvar sem það er. Ég þekki
engan sem er meðmæltur þessu
ógeði,“ bætir Vilborg við.
Ari Arnórsson leiðsögumaður
tekur í sama streng og Vilborg.
Hann tók þátt í að fjarlægja, að
eigin sögn, tugi tonna af grjóti af
svæðinu fyrr í vikunni.
„Þarna á ekki að vera neitt efni
eftir fyrir túrista.“
Aðspurður hvort vörðurnar séu
þetta slæmar og hvort þær gefi líf-
inu ekki lit segir Ari:
„Það gerir lífið skemmtilegra að
krota yfirskegg á Mónu Lísu en það
þýðir ekki að öðrum sem langar að
sjá Mónu Lísu eins og hún var upp-
runalega gerð finnist það. Þetta er
sami hluturinn. Þetta er graffítí.“
Vegagerðin vann í gær að því að
girða fyrir svæðið, sem er um þrjú
hundruð metra breitt og 250 metra
langt. Þá var komið upp skiltum
sem banna að hlaðnar verði fleiri
örvörður.
Fréttablaðið hafði samband við
Ásmund Ásmundsson myndhöggv-
ara og spurði hann álits á vörð-
unum.
„Er þetta ekki bara sjálfsagður
hlutur. Þegar það koma útlending-
ar þá þurfa þeir að kúka og þetta
er eins og að kúka, ákveðin tjáning
með frumstæðum hætti. Augljós-
lega er þetta ekki skemmdarverk.
Það er fólk sem kemur hingað og
skapar einhverjar fallegar vörður
fyrir Íslendinga að njóta. Það er
fáránlegt að kalla þetta skemmdar-
verk.“
Ásmundur segir að málið og
umræða um það sé ekki ósvipuð
umræðunni um kúkinn sem ferða-
menn skilja eftir sig á Þingvöllum.
„Það er mjög gott fyrir Íslend-
inga að þrífa skítinn eftir útlend-
inga. Bæði að hreinsa klósettpappír
og kúk. Það er spurning hvort þetta
hatur á vörðunum sé ekki dulbúið
útlendingahatur.“ snaeros@frettabladid.is
12.17.2015 ➜ 18.07.2015
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
25-50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM SUMARVÖRUM
KJARAMÁL BHM ákvað að áfrýja
niðurstöðu Héraðsdóms Reykja-
víkur til Hæstaréttar sem þing-
festi málið í gær.
BHM telur niðurstöðu héraðs-
dóms ranga. Bann við verkföllum
og svipting samningsréttar sé ekki
á meðal úrræða til lausnar kjara-
deilum sem stjórnvöldum á hverj-
um tíma standi til boða. Verkfalls-
rétturinn sem hluti samningsréttar
og sem órjúfanlegur þáttur félaga-
frelsis stéttarfélaga er varinn af
stjórnarskrá Íslands.
Gera má ráð fyrir því að mál-
flutningur fyrir Hæstarétti fari
fram í ágúst. - ngy
Þingfest hjá Hæstarétti:
Áfrýjun BHM
þingfest í gær
SAMFÉLAG Erlendir ferðamenn
vörðu mestu til kaupa á ýmsum
skipulögðum ferðum í júní, svo
sem hvalaskoðunarferðum, jökla-
ferðum og öðrum náttúruskoð-
unar- og ævintýraferðum. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Fjöldi ferðamanna í júní nam
rúmum 137 þúsundum samkvæmt
talningu Ferðamálastofu og vörðu
þeir alls 3,8 milljörðum króna í
slíkar ferðir.
Algengt er að verð fyrir náttúru-
skoðunar- og ævintýraferðir sé á
bilinu átta til tuttugu þúsund krón-
ur. - ngy
137 þúsund ferðamenn í júní:
Aukin ásókn í
skipulagðar ferðir
hafa verið veitt í umdæmi lög-
reglunnar á Suðurnesjum það
sem af er ári.
2 NÁLGUNARBÖNN
af dýrahræjum vill Kaupfélag
Skagfirðinga brenna við slátur-
hús sitt á Sauðárkróki.
2.000 TONN
króna aukalán fá
Grikkir samkvæmt
samkomulagi.
1.000
MILLJARÐA
Bandaríkjadala sekt fengu
eigendur leigubílafor-
ritsins UBER fyrir að veita
löggjöfum ekki nægar
upplýsingar um starfsemi
og þjónustu þeirra.
7,3 MILLJÓNA
skulda Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna
samtals 1,1 milljarð.
40 MANNS
þeirra hjúkrunar-
fræðinga sem
greiddu atkvæði um
nýjan kjarasamning
greiddu atkvæði gegn
honum.
88,4%
4.757
voru atvinnulausir í júní
samkvæmt tölum Vinnu-
málastofnunar.
BANDARÍKIN Bandaríkjamenn syrgðu í gær fjóra bandaríska land-
gönguliða sem féllu fyrir hendi árásarmannsins Muhammads Youssef
Abdulazeez, bandarísks ríkisborgara sem fæddist í Kúveit, kvöldið
áður. Abdulazeez réðst á skrifstofur Bandaríkjahers í bænum Chatt-
anooga í fylkinu Tennessee og skaut fjórmenningana til bana.
Barack Obama Bandaríkjaforseti minntist mannanna með því að
segja við fjölmiðla að hrikalegt væri að hugsa til þess að einstaklingar
sem hafi þjónað landi sínu með glæsibrag þurfi að láta lífið á þennan
máta. - þea
Bandaríkjamenn syrgja fórnarlömb skotárásar í Chattanooga:
Minntust fjögurra landgönguliða
SORG Þessi móðir lagðist á bæn með börnum sínum við minnisvarða til heiðurs
landgönguliðunum sem féllu í Chattanooga á fimmtudagskvöld. NORDICPHOTOS/AFP
Telur óbeit á vörðum
vera útlendingahatur
Um tuttugu tonnum af grjóti var ekið burt af landi Heiðarbæjar ofan við Þing-
vallavatn á fimmtudag. Vegfarendur höfðu hlaðið þar litlar vörður í stórum stíl.
HAFNARFJÖRÐUR Bæjarráðsfulltrúar Samfylking-
ar og Vinstri grænna í Hafnarfirði lýstu í gær yfir
furðu sinni og óánægju með fyrirhugaða samein-
ingu Iðnskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans. Í
bókun fulltrúanna, sem mynda minnihluta bæjar-
ráðs, er kvartað yfir samráðsleysi ráðuneytis við
bæjaryfirvöld.
Minnihlutinn segir sameininguna þvert á skýra
afstöðu bæjarstjórnar og ítrekuð mótmæli gegn því
að starfsemi Iðnskólans flytjist úr bænum.
Þá lýsir minnihlutinn einnig yfir óánægju með að
meirihluti Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks-
ins tilnefni fulltrúa í starfshóp ráðherra sem starfar
að sameiningu skólanna.
„Bæjarfulltrúar Bjartrar framtíðar og Sjálf-
stæðis flokks harma þær dylgjur sem minnihlutinn
setur fram í bókun sinni,“ segir í bókun meirihlut-
ans, sem segist ætla að beita sér fyrir öflugu iðn-
námi í Hafnarfirði. - þea
Minnihluti bæjarráðs Hafnarfjarðar er óánægður með sameiningu skóla:
Furðu lostin á samráðsleysinu
SAMEINING Ef af sameiningu verður færist starfsemi Iðn-
skólans í Hafnarfirði undir hatt Tækniskólans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MINNING Varðan sem Vana Ilieva frá Búlgaríu hlóð með foreldrum sínum í júní 2013
er horfin. Vörðunni var ekið burt með öðru grjóti á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BLÁTT BANN Nýja skiltið er skýrt.
Þarna er bannað að hlaða upp steinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
Þegar það
koma útlendingar þá
þurfa þeir að kúka og
þetta er eins og að kúka,
ákveðin tjáning með
frumstæðum hætti.
Ásmundur Ásmundsson
myndhöggvari.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-7
2
B
C
1
7
5
3
-7
1
8
0
1
7
5
3
-7
0
4
4
1
7
5
3
-6
F
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K