Fréttablaðið - 18.07.2015, Page 10
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
VIÐSKIPTI Bandaríska verslunarkeðjan
Costo skrifaði í gær undir samning um
kaup á húsnæði við Kauptún í Garðabæ.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að
búist sé við því að verslunin verði opnuð
sumarið 2016. Seljandi er félagið Sýsla,
sem er í eigu bræðranna Sigurðar Gísla
Pálmasonar og Jóns Pálmasonar.
Að lokinni undirskrift fóru full trúar
Costco hér á landi að Kauptúni til þess að
skoða húsakynnin betur. Steve Pappas,
svæðisstjóri Costco í Bretlandi og á
Íslandi, er hér í sinni fimmtu ferð til
landsins í tengslum við komu fyrirtæk-
isins. Hann sagðist í samtali við Frétta-
blaðið vera mjög spenntur fyrir því að
opna á Íslandi. Í tilkynningu sem Costco
sendi frá sér í gær kom fram að ráðnir
verða 160 starfsmenn héðan en stefnan
er að þeir verði orðnir 250 eftir þrjú ár,
þegar reynsla er komin á reksturinn. „Við
væntum þess að byrja ráðningarferlið
snemma á næsta ári,“ segir Pappas í til-
kynningunni.
Þegar Fréttablaðið náði tali af Pappas
við Kauptúnið í gær sagði hann engin
áform vera uppi um það að hefja rekstur
á öðrum stöðum en í Kauptúninu í Garða-
bæ. Þannig verður Costco frábrugðin
öðrum lágverðsmatvöruverslunum eins
og Bónus, Krónunni eða Nettó, sem allar
eru í íbúðahverfum. Pappas segir að
Costco muni keppa við aðrar verslanir
um verð og vöruúrvalið verði mikið. „Við
erum meira en matvöruverslun,“ segir
Pappas. Auk þess að bjóða upp á matvöru
verður boðið upp á raftæki, bílavarahluti,
dekk, húsgögn og fleira. Að auki er stefnt
á að opnuð verði bensínstöð fyrir framan
verslunina.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garða-
bæ, segir ágætt að fá öflugt fyrirtæki í
bæinn og að vonandi geti Costco rekið
sína verslun með sóma og borgað góð
laun. „En fyrst og fremst er þetta ávinn-
ingur, vonandi, fyrir neytendur á Íslandi
að fá lægra vöruverð og meira úrval,“
segir Gunnar. Hann segir að Costco hafi
áform um að stækka húsið örlítið í norður
um tvö þúsund fermetra. - jhh
Costco ætlar að ráða 160 starfsmenn á Íslandi til að byrja með en vonast til að þeir verði orðnir 250 að þremur árum liðnum:
Costco byrjar að ráða starfsmenn í upphafi næsta árs
GUNNAR OG PAPPAS Costco hefur áform um að
ráðast í framkvæmdir og stækka húsnæðið um
2.000 fermetra. Þeir Gunnar Einarsson og Steve
Pappas skoðuðu sig um í Kauptúni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
5
-9
6
C
C
1
7
5
5
-9
5
9
0
1
7
5
5
-9
4
5
4
1
7
5
5
-9
3
1
8
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K