Fréttablaðið - 18.07.2015, Síða 30
FÓLK|HELGIN
Laugardagur er nammidagur
hjá mörgum og því viðeigandi
að fá sér eitthvað gott í dag. Á
vefsíðunni simnet.is/uppskriftir
má finna fullt af uppskriftum að
ýmsu góðgæti, meðal annars
þessar tvær sem eru auk þess
frekar einfaldar.
DÖÐLUMARSIPAN
100 g súkkulaði
Döðlumauk
50 g döðlur
15 g púðursykur
6 msk. vatn
Kartöflumarsipan
1-2 stór soðin afhýdd og köld kartafla
100-200 g flórsykur
¼ tsk. möndludropar
Bræðið 50 g súkkulaði, fóðrið lítið
box eða form með smjörpappír, hellið
súkkulaði í svo það hylji botninn,
setjið í ísskáp og látið storkna.
Sjóðið döðlumaukið í gróft, ekki of
blautt mauk.
Búið til marsipan úr kartöflum eða
kaupið tilbúið. Bætið flórsykri í þar
til hnoðunar hæft, fletjið út. Sniðugt
er að nota filmu eða hafa plastpoka
á milli þegar marsipanið er flatt út.
Setjið marsipanið ofan á kalt súkkul-
aðið og svo döðlumaukið ofan á það.
Hyljið síðan með súkkulaði. Kælið og
skerið í viðráðanlega bita.
KRYDDAÐ SÆLGÆTI
50 g súkkulaði
2 msk. appelsínubörkur
12 saltstangir
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði,
blandið berkinum í og svo gróf-
brotnum saltstöngunum.
Fletjið út á smjörpappír, ekki of
þunnt. Látið kólna og skerið niður.
Til tilbreytingar er hægt að nota
sítrónubörk í stað appelsínubarkar og
annað snakk eins og Doritos, popp,
kornflögur eða Ritzkex í staðinn fyrir
saltstangir.
LJÚFFENGT HELGARNAMMI
Það er skemmtileg tilbreyting að búa sér til sitt eigið laugardagsnammi í stað
þess að kaupa það á nammibarnum. Hér eru tvær gómsætar uppskriftir.
SÆTT OG SALTAÐ
Þessir bitar samanstanda af súkkulaði,
appelsínuberki og saltstöngum.
DÖÐLUGOTT
Döðlumarsipan rennur ljúflega niður.
Tólf klukkutíma maraþontónleikar, KEXPort, verða haldnir úti í portinu fyrir aftan Kex Hostel í dag og hefjast þeir klukkan tólf.
„Þetta verða fyrst og fremst dúndur tónleikar. Það
verða hér tólf bönd og er þau mjög fjölbreytt, það
verða nokkur stór nöfn eins og Sóley, Hljómsveitin
Valdimar, Agent Fresco, Ojbarasta og Emmsjé
Gauti. Svo verða nokkur minni inn á milli líka,
til dæmis Gísli Pálmi, Rökkurró, Kælan mikla og
Teitur Magnússon. Þannig að þetta eru upprenn-
andi og ráðsettari bönd í bland,“ segir Benedikt
Reynisson, tónlistarstjóri á Kexi.
ALLT ÞAÐ BESTA Í BEINNI
KEXPort er haldið í ár í fjórða skiptið en tónleik-
arnir komu til vegna samstarfs Kex Hostels og
bandarísku útvarpsstöðvarinnar KEXP. „KEXP
hefur sent beint út frá tónleikum á Kexi Hosteli frá
því í október 2011 eða nokkrum mánuðum eftir
að staðurinn var opnaður. Útsendingarnar vöktu
athygli á Kexi og vildu aðstandendur staðarins
þakka stöðinni fyrir og ákváðu því að halda tón-
leikana KEXPort til heiðurs KEXP. Stöðin hefur
síðan sent beint út frá tónleikum sem hér hafa
verið haldnir, allt það besta úr íslensku tónlistar-
flórunni, meðal annars frá Iceland Airwaves og
ætla þeir að gera það aftur í ár.“
Tónleikunum verður streymt í beinni á netinu
þannig að þeir sem komast ekki til að fá stemn-
inguna beint í æð geta fylgst með á netinu. „Við
eigum von á að færri komist að en vilja í dag en
við bjóðum að sjálfsögðu alla velkomna að koma
með góða skapið með sér. Það er ókeypis inn og
yfir þrjú þúsund manns búnir að tilkynna komu
sína á Facebook. Á KEXPort í fyrra voru mest um
fimmtán hundruð manns hér í portinu í einu. Það
verður góð stemning í allan dag og veðrið lítur
út fyrir að verða okkur hagstætt þannig að þetta
verða án efa flottustu tónleikarnir í Reykjavík í
dag,“ segir Benedikt og brosir.
UMFANGSMIKIL FRAMKVÆMD
Hann segir svona maraþontónleika vera umfangs-
mikla í framkvæmd og marga sem koma að þeim.
„Undirbúningurinn fyrir þessa tónleika tók um tvo
mánuði í heild. Það er margt og margir sem þurfa að
stilla sig saman, tónlistarmenn, hljóðmenn, mynda-
tökumenn, tæknimenn og fleiri því sent verður beint
út í Seattle í gegnum KEXP. Stöðin hefur, eins og
áður segir, unnið flott starf fyrir íslenska tónlist og
kynnt hana vel í Bandaríkjunum. Hún er með eigin
Youtube-rás sem er með yfir sex hundruð þúsund
áskrifendur þannig að þetta er gott tækifæri fyrir ís-
lenskar hljómsveitir til að vekja athygli á sér.“
TÓNLEIKAR UNDIR
BERUM HIMNI
TÓNLEIKAR KEXPort verður haldið í fjórða skiptið í dag en þar koma fram
tólf bönd á tólf klukkustunda löngum tónleikum. Ókeypis er inn fyrir alla.
Í PORTINU Benedikt Reynisson, tónlistarstjóri Kex, er einn af þeim
sem hafa veg og vanda af skipulagningu KEXPort. MYND/ERNIR
GÓÐ STEMNING Það var mikil stemning á KEXPort í fyrra og
um 1.500 manns í einu í portinu þegar mest lét.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
P
R
E
N
T
U
N
IS
Bestu meltingargerlar
sem ég hef prófað
Víðir Þór Þrastarsson,
íþrótta- og heilsufræðingur
frá Háskóla Íslands.
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Rauðrófu kristall 100% náttúrulegt
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
Nitric Oxide Superbeets
allt að 5 sinnum öflugri
1. dós superbeets jafngildir
30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Íslensk vottun á
virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar
Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð
áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi.
ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
5
-C
8
2
C
1
7
5
5
-C
6
F
0
1
7
5
5
-C
5
B
4
1
7
5
5
-C
4
7
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K