Morgunblaðið - 27.06.2015, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 7. J Ú N Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 149. tölublað 103. árgangur
Fyrir besta
vininn
Sími 698 7999 og 699 7887
FYRSTI FIÐLU-
KONSERT EFTIR
KONU Á ÍSLANDI
LUNKINN AÐ
VEIÐA STÓR-
FISKANA
STANGVEIÐI 16ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐ Á SIGLUFIRÐI 47
Sigurður Tómasson
sigurdurt@mbl.is
„Sala á almennum, venjulegum hjólum hefur dregist
saman en aukist á þeim dýrari,“ segir Jón Pétur Jónsson,
eigandi reiðhjólaverslunarinnar Arnarins, en hann segir
að reiðhjól séu orðin að ákjósanlegri samgöngukosti en
þau voru áður fyrr.
Fjöldi hjólreiðamanna á höfuðborgarsvæðinu hefur
nánast þrefaldast frá árinu 2009 en árlegur fjöldi inn-
fluttra hjóla hefur á sama tímabili lítið breyst á milli ára,
samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands og Reykjavíkur-
borg. Þrátt fyrir það hefur verðmæti innflutningsins tvö-
faldast. Ofangreindar upplýsingar gefa því til kynna að
eftirspurn eftir dýrari hjólum hafi aukist og að hjólin séu
meira notuð.
Að sögn Jóns hefur viðhaldsþjónusta og sala á auka-
hlutum og ýmsum klæðnaði tengdum hjólreiðum einnig
aukist til muna, sem má rekja til meiri notkunar á reið-
hjólum. »22
Meira hjólað á dýrari hjólum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á hjóli Frá árinu 2009 hefur átt sér stað 180% fjölgun hjólreiðamanna skv. upplýsingum Reykjavíkurborgar.
Aukin eftirspurn eftir dýrari hjólum og hjólabúnaði Með
bættu aðgengi hafa reiðhjól orðið raunhæfari samgöngumáti
Nokkir fyrrverandi starfsmenn
Kaupþings voru í gær dæmdir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir markaðs-
misnotkun og umboðssvik. Var þeim
gert að sök að hafa haldið uppi verði
hlutabréfa, haft milligöngu um
sýndarkaup á bréfum og lánað eigna-
lausum félögum fé án trygginga.
Ingólfur Helgason var dæmdur í
fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir
sinn þátt í málinu og Bjarki Diego í
tveggja og hálfs árs fangelsi. Birnir
Sær Björnsson og Pétur Kristinn
Guðmarsson fengu hvor um sig 18
mánaða skilorðsbundið fangelsi og
Einar Pálmi Sigmundsson tveggja
ára fangelsi skilorðsbundið.
Þá voru Hreiðar Már Sigurðsson og
Sigurður Einarsson hvor um sig
dæmdir til hegningarauka vegna fyrri
brota þannig að eins árs fangelsis-
dómur bætist við fjögurra ára
fangelsisrefsingu sem Sigurður hlaut í
Al Thani-málinu. Hreiðari Má verður
ekki gerð frekari refsing en sú sem
hann fékk í Al Thani-málinu, fimm og
hálfs árs fangelsi.
Magnús Guðmundsson og Björk
Þórarinsdóttir voru sýknuð af þeim
kröfum ákæruvaldsins sem eftir stóðu
eftir að nokkrum þeirra hafði verið
vísað frá dómi. brynja@mbl.is »6
Morgunblaðið/Eggert
Dómsuppsaga Verjendur ræða
málin á meðan beðið er dóms.
Misnot-
uðu að-
stöðu sína
Misvísandi mynd
gefin af eftirspurn
Framkvæmda-
stjóri Hreyfils-
Bæjarleiða segir
að lokaður Face-
book-hópur leigu-
bílstjóra, sem ber
heitið „Hreyfill-
Bæjarleiðir“,
tengist fyrirtæk-
inu ekki með nokkrum hætti. Hópur-
inn var kærður til Persónuverndar í
gær þar sem farið var fram á rann-
sókn á upplýsingasöfnun sem þar fer
fram. Hafa leigubílstjórar m.a. deilt
myndum af farþegum, af skilríkjum
þeirra og leynilegri myndbands-
upptöku skv. skjáskotum sem
Morgunblaðið hefur undir höndum.
»6
Leigubílstjórar
skiptast á upplýs-
ingum um farþega
Aldrei hefur verið hærra hlutfall
háskólamenntaðra á atvinnuleysis-
skrá en árið 2014. Þá voru 23% at-
vinnulausra á skrá hjá Vinnumála-
stofnun með háskólamenntun en
þetta hlutfall var 8% árið 2000. „Há-
skólamenntun á fyrsta stigi, þ.e. BA-
og BS-próf, er kannski farin að líkj-
ast því sem stúdentspróf var fyrir
30-40 árum,“ segir Karl Sigurðsson,
sérfræðingur hjá VMST. »12
Háskólamenntun
líkist stúdentsprófi
Efnt verður til
þjóðaratkvæða-
greiðslu í Grikk-
landi um það
hvort Grikkir eigi
að samþykkja
aukið aðhald sem
lánardrottnar
þeirra setja sem
skilyrði fyrir frek-
ari aðstoð. Alexis
Tsipras, forsætisráðherra Grikkja,
tilkynnti það í sjónvarsávarpi í gær-
kvöldi að atkvæðagreiðslan yrði
haldin sunnudaginn 5. júlí.
Greiða atkvæði
um aukið aðhald
Alexis Tsipras
„Það eru allir glaðir, vinka okkur og veifa,“ segir
Júlía Halldóra Gunnarsdóttir, sjúkraliði í Vogum,
sem lögð er af stað í hringferð um landið á gamalli
Farmall Cub-dráttarvél og kúrekakerru ásamt
manni sínum, Helga Guðmundssyni húsasmið.
„En þetta er bilun,“ bætir hún við.
Júlía og Helgi hafa áður lagt í langferð á trakt-
ornum, þau fóru yfir Kjöl fyrir fimmtán árum.
Þau sofa í kerrunni, hún er „tjaldvagn“ þeirra.
„Þetta er æðislegt. Við komumst í nána snert-
ingu við landið. Sjáum hreiðrin í vegkantinum og
allt það. Verst hvað við förum hægt yfir, traktor-
inn fer ekki nema á 10 kílómetra hraða,“ segir
Júlía. Það þýðir að þau taka sér heldur lengri tíma
í ferðina en WOW-hjólakapparnir sem þau mættu
í Krýsuvík í gær, en þau reikna með að verða
þrjár vikur til mánuð í ferðinni. helgi@mbl.is
Sjáum hreiðrin í vegkantinum
Hjón úr Vogum fara
hægt yfir í hringferð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hringferð Júlía og Helgi ferðast á Farmall Cub sem Helgi gerði sjálfur upp og fína „tjaldvagninum“.