Morgunblaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Þetta var allt tilviljunumháð,“ segir IngibjörgGeirsdóttir sem ásamt eig-inmanni sínum, Snorra
Guðmundssyni, rekur ferðaþjón-
ustufyrirtækið Skotgöngu í Skot-
landi, sem sérhæfir sig í skipulögð-
um gönguferðum fyrir Íslendinga.
„Þetta byrjaði þannig að ég fór
að fara með vinkonur mínar í göngu-
ferðir um svæðið eftir að við fluttum
til Skotlands. Á meðan karlarnir
fóru í golf þá skelltu golfekkjurnar
sér í göngu,“ segir Inga létt í bragði
en fyrirtæki þeirra hjóna blómstrar
sem aldrei fyrr nú tæpum tíu árum
síðar.
Bjóða þau bæði upp á hópferðir
þar sem þau skiptast á að sjá um far-
arstjórn og ferðir þar sem hóparnir
ganga leiðirnar á eigin vegum.
„Það er leikur einn að fara þetta
sjálfur. Við sjáum þá um að skipu-
leggja gistingar og farangursflutn-
inga á leiðinni. Leiðin er vel merkt
og fær hópurinn kort og allar hand-
hægar upplýsingar áður en lagt er af
stað.“
Fallegasta svæði landsins
„Aðalleiðin sem við förum kall-
ast West Highland Way en hún þyk-
ir langfallegust og skemmtilegust,“
segir Inga en leiðin er einir 153 kíló-
metrar og tekur það sjö daga að
ganga hana á enda. Liggur hún á
milli Milngavie, úthverfis Glasgow,
og Fort William.
Um 100 þúsund manns ganga
hana árlega en hún liggur í gegnum
eitt fallegasta svæði landsins.
„Farið er meðfram vötnum,
Skotgengur um
sveitir Skotlands
Hjónin Ingibjörg Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson fluttu til Skotlands fyrir tólf
árum og eiga nú og reka ferðaþjónustufyrirtækið Skotgöngu (Scot Walks Ltd.)
sem sérhæfir sig í fjölbreyttum gönguferðum fyrir Íslendinga. Vinsælasta leiðin
er sjö daga ganga um West Highland Way sem liggur um fallegustu svæði
landsins. Bæði er hægt að ganga með og án fylgdar hjónanna.
Fjör Inga og Snorri þykja afar fróð um staðhætti og menningu auk þess að
vera létt og skemmtileg, eins og fram kemur í umsögn göngugarpa.
Útsýn Hér horfa danskir göngugarpar í ferð með Skotgöngu yfir bæinn
Kinlochleven. Í fjarska sjá þau hvar þau höfðu komið niður daginn áður.
Í dag kl. 14 að Austurmörk 23, í húsi
leikfélagsins í Hveragerði, fer fram
glæsilegt bókauppboð á fornbókum í
tilefni af opnun bókamarkaðarins
Bókabæjanna austanfjalls í Hvera-
gerði.
Mun Anna Birna Þráinsdóttir, Sunn-
lendingur með meiru, stjórna uppboð-
inu með sínum einstaka hætti.
Verður ýmsa kjörgripi að finna á
uppboðinu, m.a. eftirfarandi:
Harmsaga ævi minnar eftir Birki-
land, Norsk lög Hrappseyjarprents frá
1779, Færeyingasaga frá 1832, Saga
Ólafs Tryggvasonar frá 1892, Grallari
frá 1739, Orðskviðasafn Guðmundar á
Staðastað frá 1809, Hauksbók frá
1892, Íslenskir sjávarhættir, Árituð
Hvalasaga Jóhannesar Kjarvals, Björn
og Sveinn eftir Megas, Enemond eftir
Dunganon, Kortasaga Íslands og
margt fleira. Heildarlisti yfir bækur
sem boðnar verða upp verður birtur á
heimasíðu Bókabæjanna austanfjalls:
www.bokabaeir.is.
Vefsíðan www.bokabaeir.is
Glæsilegt úrval Hluti þeirra bóka sem verða boðnar upp í dag.
Bókauppboð á fornbókum
Kjarval og töfraraunsæi nefnist
ritsmiðja fyrir 8-12 ára börn í
hugmyndasmiðjunni á Kjarvals-
stöðum sem verður í boði í dag
kl. 13-16. Kjarval málaði margar
myndir af vinum sínum og setti
þá gjarnan í ævintýralegt um-
hverfi. Í ritsmiðjunni skrifa börn-
in sögur um vini sína eða fjöl-
skyldur innan ramma
töfraraunsæis og gæða hvers-
dagsleikann ævintýrablæ. Ekki
þarf að skrá sig á námskeiðin og
þátttaka er ókeypis en gott er að
mæta tímanlega. Leiðbeinandi er
Markús Már Efraím en í haust
mun hann stjórna fleiri rit-
smiðjum.
Endilega …
… farið í ritsmiðju með börnin
Vinir Kjarval málaði margar myndir af
vinum sínum og skrifaði texta við.
Í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá
sögulegu kjöri Vigdísar Finnboga-
dóttur í embætti forseta Íslands
verður efnt til hátíðardagskrár á
Arnarhóli á morgun, sunnudag, kl.
19.40-21.10.
Fjöldi listamanna kemur fram, en
dagskránni er ætlað að höfða til
alls almennings, ekki síst ungs
fólks. Félagar úr blásarasveitinni
Wonderbrass leika, Edda Þórarins-
dóttir og Felix Bergsson flytja brot
úr sápuóperunni Leitin að Jörundi í
tónlistarstjórn Karls Olgeirssonar
og Hjörleifur Hjartarson kynnir
brot úr Sögu þjóðar.
Þá mun færeyska söngkonan Ei-
vør Pálsdóttir og dönsku og
sænsku óperusöngvararnir Palle
Knudsen og Ylva Kihlberg flytja
kveðjur frá frændþjóðum með söng
sínum. Hljómsveitirnar Baggalútur
og Samaris leika og syngja og ungt
tónskáld, Már Gunnarsson, flytur
frumsamið lag til Vigdísar. Sviðs-
höfundar og leikarar frá Listahá-
skóla Íslands og Stúdentaleikhús-
inu varpa með sínum hætti ljósi á
Þjóðin sem valdi Vigdísi - Hátíðardagskrá á morgun
Ungt tónskáld flytur frumsamið
lag til Vigdísar Finnbogadóttur
Ljósmynd/Róbert Ágústsson
Glæsilegur forseti Vigdís ávarpar fólk af svölum eftir forsetakosningar.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hágæða kristalglös frá Þýskalandi
Við bjóðum Spiegelau í fallegum
gjafaöskjum sem er tilvalin
brúðkaupsgjöf.
• Rauðvínsglös
• Hvítvínsglös
• Kampavínsglös
• Bjórglös
• Karöflur
• Fylgihlutir
• Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn
velur Spiegelau og nú getur þú notið þeirra
• Platinumlínan okkar er mjög sterk og
þolir þvott í uppþvottavél
Spiegelau er ekki bara glas
heldur upplifun
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–18