Morgunblaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
✝ ValgerðurJónsdóttir
fæddist 30. ágúst
1932 á Skarði í
Dalsmynni, S-
Þingeyjarsýslu.
Hún lést 9. júní
2015 á dvalarheim-
ilinu Grenilundi á
Grenivík.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Jó-
hannsson bóndi á
Skarði, f. 26.8. 1889 á Skarði, d.
24.2. 1975, og Sigrún Guð-
mundsdóttir, f. 7.12. 1897 á
Hlöðum á Grenivík, d. 24.10.
1987. Systkini Valgerðar: 1) Jó-
hann Pétur, f. 27.2. 1922, d.
16.7. 1922. 2) Jóhann Pétur, f.
25.7. 1923, d. 27.1. 1924. 3) Ein-
ar, f. 23.12. 1924, d. 20.2. 1972.
4) Guðmundur Sveinn, f. 14.9.
1926, d. 17.5. 1969. 5) Skírnir, f.
10.3. 1928, d. 23.7. 2007. 6) Sig-
urður, f. 5.5. 1929, d. 15.4. 1931.
7) Sigurlaug. f. 15.7. 1931. 8)
Drengur, f. 13.7. 1943, d. 13.7.
1943.
Valgerður giftist 12.10. 1957
Daða Eiðssyni sjómanni, f. 17.1.
1932 í Sörlatungu í Hörgárdal,
d. 5.2. 1981. Faðir hans var Eið-
ur Jónsson, f. 1.6. 1898 í Syðra-
Kálfskinni, Árskógshreppi, d.
17.3. 1941. Móðir hans var Lí-
ney Guðmundsdóttir, f. 3.3.
1911 í Bandagerði í
Glerárþorpi, Glæsi-
bæjarhreppi, d.
24.2. 1988.
Valgerður og
Daði bjuggu lengst
af á Grenivík. Val-
gerður fluttist til
Akureyrar árið
1993 en fluttist aft-
ur til Grenivíkur er
hún flutti á Grenil-
und 2010. Börn
þeirra eru: 1) Jóhanna Sig-
urlaug, f. 5.10. 1953. Maki Ár-
mann Óskar Jónsson, f. 1.1.
1956. 2) Sigrún Jóna, f. 4.10.
1955. Maki Finnur Finnsson, f.
8.6. 1953. 3) Líney Soffía, f. 9.1.
1957. Maki Gísli Sigurgeir
Árnason, f. 17.12. 1949. 4) Her-
mann Skírnir, f. 4.8. 1958. Maki
Ólöf Tryggvadóttir, f. 3.6. 1958.
5) Jórlaug Valgerður, f. 10.7.
1960. Maki Jón Stefán Ingólfs-
son, f. 15.2. 1958. 6) Jón Heiðar,
f. 10.2. 1962, d. 4.9. 1964. 7) Jón
Heiðar, f. 18.8. 1964. Maki Lára
Svansdóttir, f. 21.2. 1965. 8)
Svava Guðrún, f. 1.9. 1965.
Maki Gestur Ragnar Davíðsson,
f. 22.8. 1964. Barnabörn Val-
gerðar eru 19 og barna-
barnabörnin eru 29.
Útför Valgerðar fer fram frá
Laufáskirkju í dag, 27. júní
2015, kl. 13.30.
Elskulega amma Klara, sem
langaði frá barnæsku að verða
gullsmiður, en fékk aldrei.
Amma var bæði stór og sterk-
ur persónuleiki sem ég leit alltaf
upp til. Mér fannst sem barni hún
vera stórmerkileg að eiga svona
mörg börn og barnabörn. Þetta
hlyti að vera einstakt. Ég komst
nú að því síðar að fjöldi afkom-
enda var ekki alveg einsdæmi, en
að mörgu öðru leyti var amma al-
veg einstök. Hún var fyrir það
fyrsta algjör snillingur í höndun-
um. Bæði í að skapa og búa til,
flíkur, – munir og handverk, jafn-
víg á allt. Einnig var hún iðulega
að laga, breyta og betrumbæta,
og þá var alveg sama hvort það
var smíðavinna, rafmagn eða
annað, í minningunni gat hún lag-
að allt. Amma að gera við eitt-
hvað var alveg dæmigert fyrir
annars vegar nýtnina og hins
vegar sjálfsbjargarviðleitnina.
Þessi atriði lærði ég af henni og
tel hafa verið afar hollt veganesti.
Annað sem ég lærði af ömmu er
að gefast aldrei upp. Amma var
mikið þráablóð og ef hún ein-
hvern tíma beit eitthvað í sig þá
var algjörlega vonlaust að reyna
að fá hana til að breyta því eitt-
hvað, hún gaf sig aldrei. Ég er
einmitt mjög þakklát fyrir það
veganesti frá ömmu að hafa
kennt okkur hinum þessa einurð
og staðfestu, sem einkenndi hana
og hjálpaði í mörgum aðstæðum.
Margar af skemmtilegustu
minningum mínum um ömmu
tengjast ferðalögum. Útilegur í
Fjörður og Flateyjardal, ferðir í
hjólhýsið í Skóginum, sumarbú-
staðaferðir eða dagsferðir í Mý-
vatnssveit. Ömmu var alveg sama
hvort var verið að fara stutt eða
langt, hún var algjör túristi og
vildi alltaf fara með í allar ferðir.
Svo sagði hún sögur út í eitt alla
ferðina, af alls konar fólki sem
hún hafði kynnst hér og þar eða
heyrt um. Hún varð aldrei uppi-
skroppa með sögur. Hún naut sín
algjörlega í þessum ferðum og
sagði alltaf þegar henni var skutl-
að heim „þetta var nú aldeilis
túr“, sama hvort var verið að
koma úr ferðalagi um Vestfjarða-
kjálkann eða bara Eyjafjarðar-
hringinn. Ég man eftir einu atriði
frá sokkabandsárum mínum. Þá
vorum við stórfjölskyldan í úti-
legu um verslunarmannahelgi á
Sigríðarstöðum. Við amma sátum
við varðeldinn og deildum bjór-
flösku og capri-sígarettu. Þá
fannst mér að ég ætti klárlega
svölustu ömmu í öllum heiminum.
Við amma gerðum þetta bara ein-
ar og sér og hún var ekkert að
klaga neitt í mömmu. Það var
nefnilega þannig að það sem
gerðist hjá ömmu, það var bara
hjá ömmu og hún kjaftaði aldrei
frá. Sérstaklega ef gengið var á
hana með spurningum, þá gat
maður treyst því að hún segði
ekkert.
Að lokum fylgir með þetta ljóð
sem ég samdi til ömmu að kvöldi
dánardags hennar:
Sofnuð og kvatt hefur þennan heim.
Friðsæl og hvílir nú rótt hjá þeim,
feðgum sem sárt var að sakna,
ljúft verður hjá þeim að vakna,
þeir taka þér höndum tveim.
(Lísbet Vala Snorradóttir)
Elsku amma, takk fyrir allt og
allt, sem í mínu tilfelli er ýmis-
legt. Þú verður bara gullsmiður á
himnum, þín var þörf í önnur
verkefni í þessu lífi. Með virðingu
og vinsemd.
Lísbet Vala Snorradóttir.
Valgerður
Jónsdóttir ✝ Bergljót Bald-vinsdóttir
fæddist í Reykjavík
26. febrúar 1938.
Hún lést 1. júní
2015. Foreldrar
Bergljótar voru
Baldvin Sigurðs-
son, f. 24. 6. 1906,
d. 6.5. 1980, og
Kristín Sigurð-
ardóttir, f. 26. 7.
1912, d. 19.11.
1988. Bergljót var elst fimm
systkina, næstur henni í röðinni
kom Sigurður Valberg, f. 1941,
d. 1980, Hrafnhildur, f. 1942,
Valborg Elísabet, f. 1944, og
Herdís Dröfn, f. 1954. Begga
kynntist eiginmanni sínum,
Arnþóri, árið 1954 og eignuðust
þau 5 börn. Börn Bergljótar og
Arnþórs; 1) Gylfi Þór, f. 1954. 2)
Sigríður Arna, f. 1957, maki
Sævar Siggeirsson, f. 1957,
börn þeirra; a) Arnþór Snær,
maki Elísabet Ólafsdóttir og
eiga þau tvo syni, Arnald Kjárr
og Patrek Kjárr. b) Bergrún Ír-
Ingvar Óskarsson, dóttir þeirra
er Eydís Björt og fyrir á Sigdís
soninn Einar Anton. b) Þórdís
Björt, sambýlismaður Einar
Kristinn Þorsteinsson. c) Arn-
þór Freyr, unnusta Ásdís Rún
Bjarnadóttir. 5) Kristján Freyr
Arnþórsson, f. 1964.
Bergljót stundaði hefðbundið
barnaskólanám í Miðbæjarskól-
anum fram til 10-11 ára aldurs
þegar hún fór í Austurbæj-
arskólann, þaðan sem hún lauk
unglingaprófi. Hún útskrifaðist
síðan úr Gagnfræðaskóla verk-
náms eftir 2ja ára nám. Þar
lærði hún ýmsar verklegar
greinar svo sem saumaskap,
matreiðslu og fleira. Utan heim-
ilis vann hún meðal annars við
saumaskap hjá Saumastofunni
Bót, þar sem hún saumaði há-
tískufatnað fyrir tískuversl-
unina Karnabæ. Vann hún eld-
hússtörf á Hótel Esju og hjá
Sjálfsbjörgu í Hátúni þar til hún
hætti störfum árið 2005.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
is, maki Andri Óm-
arsson og eiga þau
tvo syni, Darra
Frey og Hrannar
Þór og c) Sigrún
Erna, sambýlis-
maður Stefán
Breiðfjörð, sonur
hans er Tristan
Breiðfjörð 3) Bryn-
dís, f. 1961, maki
Bergþór Baldvins-
son, f. 1960, börn
þeirra; a) Baldvin þór, maki
Brynja Vilhjálmsdóttir og eiga
þau tvær dætur, Berglindi
Elmu og Kristrúnu Ýr. b) Birna
Dögg, sambýlismaður Hörður
Sveinsson og eiga þau tvær
dætur, Bryndísi Theodóru og
Margréti Viktoríu. c) Þorbjörg,
sambýlismaður Hörður Jó-
hannsson, Þorbjörg á eina dótt-
ur Söru Benediktu Elvan, sonur
Harðar er Hreiðar Ernir. d)
Bergþóra Hrund. 4) Kristín, f.
1963, maki Sigþór Sveinn Más-
son, f. 1959, börn þeirra; a)
Sigdís Þóra, sambýlismaður
Það er ekki auðvelt að setjast
niður og skrifa þessi orð. Begga
amma var svo stór hluti af lífi
mínu og að eiga að draga það
saman í örfáum orðum hvað hún
var mér mikils virði er ógjörn-
ingur. Ég á ótal góðar æsku-
minningar um ömmudekur í
Fífuhvamminum en það sem
virkilega situr eftir eru árin sem
við amma unnum saman í eld-
húsi Sjálfsbjargarheimilisins.
Það er dýrmætur fjársjóður að
hafa fengið að kynnast henni,
ekki sem ömmu, heldur Beggu;
þeim vandvirka vinnuþjarki sem
hún var. Daginn sem ég hóf
störf, 16 ára gömul í mínu fyrsta
alvörusumarstarfi, var mér sagt
að ég væri með hendurnar henn-
ar ömmu, ekki bara af því að við
værum með líkar hendur, heldur
þóttum við bera okkur eins að
við grænmetisskurðinn. Það
fannst mér eitt það besta hrós
sem ég hafði fengið því ef ég
líktist henni á einhvern máta þá
hlyti ég að vera alveg ágæt.
Amma var glæsilegasta kona
sem ég hef séð og kynnst. Henni
var annt um útlitið, fór aldrei
ómáluð út úr húsi og bar sig vel,
hvar sem hún kom. Vinnuklæðn-
aðurinn í eldhúsinu var hinsveg-
ar hvítur bolur, víðar pastel-
grænar bómullarbuxur og
óklæðileg svunta. Amma hefði
þó skammlaust getað hoppað
upp á tískupallana eftir vakt, því
hún var alltaf fallega förðuð,
hárið óaðfinnanlegt og eyrna-
lokkarnir á sínum stað. Það
skipti engu máli hverju hún
klæddist, það geislaði af henni
hvert sem hún fór. Brosið henn-
ar ömmu og dillandi hláturinn
lýsti upp herbergið og jafnt
heimilismenn og samstarfsfólk
sögðu mér að þau vonuðu alltaf
að Begga eldri væri á vakt.
Amma kom vel fram við alla sem
hún afgreiddi og aðstoðaði í mat-
salnum, sýndi þeim virðingu, og
lagði sig fram um að gera dag-
inn þeirra betri. Hún settist oft
niður hjá heimilisfólkinu til að
spjalla og ég, Begga yngri,
fylgdist með Beggu eldri og
gerði mitt besta í að líkjast
henni. Ég náði þó aldrei sömu
færni þegar kom að kökuskreyt-
ingum, en amma var algjör
meistari í eldhúsinu og gat töfr-
að fram dýrindis veislu á ör-
skammri stundu. Við unnum
saman í fimm ár, og ég hélt
áfram í tvö ár eftir að hún hætti
að vinna. Nær daglega var spurt
um Beggu eldri og var hennar
sárt saknað af heimilisfólki og
starfsfólki. Ég vissi því vel hvað
ég var heppin að eiga hana að og
geta leitað til hennar hvenær
sem ég vildi.
Þegar við vorum tvær saman
á vakt gátum við talað um allt
milli himins og jarðar og einn
daginn fórum við að ræða dauð-
ann. Ég, óharðnaður unglingur-
inn, vildi fá að eiga ömmu mína
eins lengi og mögulegt var en
amma sagðist örugglega myndu
kveðja áður en ég eignaðist mín
eigin börn. Ég sagði það vera al-
gjöra vitleysu, hún myndi að
sjálfsögðu mæta í fermingar-
veislu barnanna minna. Hvorug
okkar hafði rétt fyrir sér. Amma
varð langamma strákanna minna
tveggja. Sá eldri, fimm ára, á
yndislegar minningar um lang-
ömmu sína, faðmlögin, kexskúff-
una og dekrið. Sá yngri, tæplega
fimm mánaða, fær að heyra allar
sögurnar af fallegu langömmu
sinni, sem elskaði hann svo mik-
ið, þann stutta tíma sem þau
áttu saman.
Við Beggurnar fáum vonandi
að vera aftur saman á vakt
seinna.
Bergrún Íris Sævarsdóttir.
Bergljót Baldvinsdóttir
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KÁRI STEINGRÍMSSON
húsasmiður,
Breiðuvík 5,
andaðist á heimili sínu 16. júní.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 30. júní kl. 15.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
.
Sigríður Guðjónsdóttir,
Steingrímur P. Kárason, Þórhildur Einarsdóttir,
Guðjón G. Kárason, Sóley Ómarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Melabraut 9,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þann 29. júní kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bent er á að láta
Barnaspítalasjóð Hringsins njóta þess.
.
Guðmundur Jóhannesson, Bergljót Helga Jósepsdóttir,
Alexander Jóhannesson, Helga Hafsteinsdóttir,
Anna B. Jóhannesdóttir, Steingrímur Ellingsen,
Guðlaug I. Hecker, Gary Hecker,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR SVEINBJÖRN BJARNASON,
Barrholti 26,
Mosfellsbæ,
lést á líknardeild Landspítalans
föstudaginn 19. júní. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju
þriðjudaginn 30. júní kl. 13.
.
Lillý S. Guðmundsdóttir,
Aldís Sigurðardóttir,
Bjarki Sigurðsson, Anna Jódís Sigurbergsdóttir,
Birna Mjöll Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGMAR EYJÓLFSSON,
Hraunbæ 16,
Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Skógarbæ 22. júní.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju 1.
júlí kl. 13.
.
Ágústa Sigmarsdóttir, Ingvar Þorsteinn Þórðarson,
Jóna Kristín Sigmarsdóttir,
Eyjólfur Sigmarsson, Judit Schroth Sigmarsson
og barnabörn.
Frænka okkar,
GUÐBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
THORARENSEN,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 21. júní,
verður jarðsungin frá Þorlákskirkju í
Þorlákshöfn fimmtudaginn
2. júlí kl. 14.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
.
Sigríður Stefánsdóttir,
Ragnar Danielsen og Magnús Danielsen.
Elskulegi pabbi, tengdapabbi og afi,
GUÐMUNDUR ÞÓR ÁSMUNDSSON,
Teigagrund 4,
Laugarbakka,
varð bráðkvaddur 14. júní í Barcelona.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 30. júní kl. 15.
Minningarathöfn og jarðsetning duftkers fer fram á Melstað í
Húnaþingi vestra miðvikudaginn 8. júlí kl. 14.
Kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Ljósið, endurhæfingu fyrir krabbameinssjúka.
.
Guðbjörg I. Guðmundsdóttir, Hermann Hermannsson,
Katrín Guðmundsdóttir, Liam Molloy,
Almar Þór, Brónagh Rán og Berghildur Björt.