Morgunblaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Með þessu ljóði kveðjum við
kæra vinkonu sem hvarf allt of
fljótt úr lífi okkar allra. Við erum
ríkari fyrir að hafa kynnst þeirri
einstöku manneskju sem Hulda
var. Minning hennar lifir með
okkur um ókomna tíð.
Hugur okkar er hjá fjölskyldu
Huldu.
Auður, Edda,
Guðrún og Ólöf.
Það var óraunverulegt símtal
sem ég átti við Birgi bróður
minn föstudagsmorguninn 5.
júní. Hann sagði mér að bróð-
urdóttir okkar, Hulda Hreiðars-
dóttir, hefði dáið í svefni um
nóttina. Mér hefur ekki brugðið
eins við nokkra frétt sem ég hef
fengið. Hvernig má það vera að
ung kona í blóma lífsins deyi
svona skyndilega og án nokkurs
aðdraganda, aðeins 32 ára að
aldri.
Hulda var næstyngst fjögurra
barna Hreiðars bróður og Katr-
ínar. Þau systkin ólust upp í
Mosfellsbæ, í nánu sambýli við
Birgi og Guðrúnu og börn þeirra
fjögur. Það hafa verið einhverjir
töfrar í jarðveginum eða loftinu
þarna, því þessi frændsystkina-
hópur er um margt óvenjulegur.
Öll hafa þau farið sína eigin leið
og gert það sem hugurinn hefur
staðið til, og gert það vel.
Hulda fór sína leið. Hún fór í
gegnum háskólanám, stofnaði
fyrirtæki og gerðist hönnuður og
útrásarvíkingur af betri sortinni.
Og í leiðinni eignaðist hún góðan
mann og 3 yndisleg börn. Hún
afrekaði þetta án þess að barma
sér eða berast á, þetta virtist
bara svo sjálfsagt að það tók því
varla að ræða um það. Hún var
virk í skólastarfi barnanna og
hélt vel utan um fjölskylduna,
alltaf jákvæð og í góðu skapi.
Hún hafði orku og skapgerð sem
gerði henni kleift að afreka allt
sem hún gerði án sýnilegrar fyr-
irhafnar.
Nú þegar Hulda er farin af
vettvangi er nauðsynlegt að
missa ekki sjónir á því sem hún
skilur eftir sig, að loknu lífs-
hlaupi sem var alltof stutt en þó
ríkulegt. Hún sýndi hvað hægt
er að gera ef vilji er fyrir hendi.
Hún sýndi að gott fólk getur allt.
Og hún skilur eftir handa börn-
um sínum og Halldórs dýmæt-
asta arfinn, minningu um móður
sem þau geta litið til sem fyr-
irmyndar alla ævi.
Við Anna Sigga vottum Hall-
dóri, Ólafi, Hreiðari og Heiðu,
Hreiðari og Kötu og systkinum
Huldu okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Huldu
Hreiðarsdóttur.
Jón Ögmundsson.
„Á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði,
líf mannlegt endar skjótt.“
(Hallgrímur Pétursson)
Þessar línur úr sálminum sem
við þekkjum flest og er enn
sunginn við jarðarfarir hafa setið
í huga mér síðan ég frétti af
ótímabæru og óréttlátu andláti
hennar Huldu. Hún sem var svo
frjó og hugmyndarík, hún sem
hafði bæði getu og vilja til að
fylgja hugmyndum sínum eftir.
Huldu kynntist ég fyrst í Hug-
myndahúsi háskólanna rétt eftir
hrun. Hún var þá að kynna Fafu-
hugmynd sína um opið leikefni
og ævintýraheim. Ég hef lengi
fylgst með bloggum og fésbók-
arsíðum um leikskólamál og allt í
einu tók ég eftir að á myndum er-
lendis frá sást glitta í grænar
skikkjur og strýtulaga húfur.
Fafu varð að fyrirbæri sem fólk í
hinum alþjóðlega leikskólaheimi
veitti eftirtekt og heillaðist af.
Ekki bara af flíkunum sem slík-
um heldur ekki síst hugmynda-
fræðinni og eldmóðinum sem að
baki þeirra lá. Í tengslum við
hugmyndafræði Fafu og óbilandi
áhuga Huldu á að leiða saman
fólk varð Play Iceland til, ráð-
stefna á Íslandi þar sem leik-
skólafólk sem leggur áherslu á
sköpun og leik alls staðar að hitt-
ist og deilir þekkingu og reynslu
nokkra daga á ári. Play Iceland
var hugarfóstur Huldu og henn-
ar leið til að koma íslensku leik-
skólastarfi á framfæri en ekki
síst leið til að skapa menntandi
samræðu milli ólíkra hugmynda-
heima. Það er nefnilega hollt að
fá gesti og skoða starfið með
þeirra augum. Bæði það sem vel
er gert en líka þar sem gestirnir
setja spurningarmerki. Hulda
lagði hug og hjarta í móttökurn-
ar og ég held að það hafi verið á
fyrstu ráðstefnunni að nær öll
stórfjölskylda Huldu var virkjuð
við ólík verkefni.
Hulda var talskona leiksins,
hugmynda og heilakenninga.
Hún var ötul talskona þess að
börn ættu rétt á að leika sér í fal-
legu umhverfi með margbreyti-
legan efnivið sem styddi við
þroska þeirra á allan hátt. Sér-
staklega lagði hún áherslu á
ímyndunaraflið sem hreyfiafl alls
annars. Fafu-hugarfóstur henn-
ar var leið til að koma þessum
hugmyndum í verk.
Það eru ekki nema rétt þrjár
vikur síðan ég hitti Huldu á fundi
með áhugakonum um ævintýri
leiksins og upplifunar. Það var
svo gaman hjá okkur að Hulda
varð of sein til veislu. Einhvern-
veginn held ég að það hafi verið
einkennandi fyrir hana. Að verða
svo gangtekin í núinu að tíminn
hvarf. Hún sagði okkur frá nýj-
asta verkefninu sínu, hönnun og
byggingu leikskóla í London. Við
ræddum heilmikið um Play Ice-
land í haust og þróun ráðstefn-
unnar. En líka um tónhreyfisk-
ynjunarkubba sem hana hefur
dreymt um að hanna og fram-
leiða. Þeir áttu að verða síðari
tíma verkefni, þegar hún hefði
tíma til að víkka út fókus sinn og
bæta við sig nýjum og spennandi
verkefnum.
Að lokum þakka ég Huldu fyr-
ir áhugaverða samfylgd undafar-
in ár, fyrir samræður og eldmóð.
Fyrir að vera boðberi hugmynda
um leikskólastarf, sem byggjast
á leik og ímyndun. Fyrir að hafa
gefið tíma sinn og orku til vinna
að betri framtíð fyrir börn.
Fjölskyldu hennar þakka ég
fyrir að hafa deilt henni með okk-
ur og sendi þeim mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Kristín Dýrfjörð.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
ÞORSTEINS J. SIGURÐSSONAR
frá Reykholti,
Fáskrúðsfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
deild 2b á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka hlýju og góða
umönnun.
.
Aðalbjörg Magnúsdóttir,
börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ELÍSABETAR KRISTINSDÓTTUR,
Seiðakvísl 3,
Reykjavík,
sem lést 19. maí.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deildum A6 og K1 á
Landspítalanum fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
.
Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir, Reynir Vignir,
Sveinn Guðmundsson,
Birna Guðmundsdóttir, Kolbeinn Finnsson,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför systur okkar og mágkonu,
KATRÍNAR SIGRÚNAR
GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Hemru í Skaftártungu,
síðast til heimilis í Langagerði 122,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins þar fyrir nærgætni og frábæra
umönnun.
.
Brynrún Bára Guðjónsdóttir,
Kristín Guðjónsdóttir, Rúnar Viktorsson,
Þórir Páll Guðjónsson, Helga Karlsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför okkar ástkæru
INGIBJARGAR MELKORKU
ÁSGEIRSDÓTTUR,
Vesturgötu 154,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans
við Hringbraut.
.
Fjölskyldan.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar móður minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU MAGDALENU JÓNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Höfða,
áður að Laugarbraut 23,
Akranesi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Höfða, dvalar- og
hjúkrunarheimilis á Akranesi.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Friðrik Vignir Stefánsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BIRNA HELGA INGIBJÖRG
BENEDIKTSDÓTTIR
frá Barkarstöðum, Miðfirði,
Vestur-Húnavatnssýslu,
til heimilis að Dalbraut 27, Reykjavík,
lést á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi 20. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk þjónustuíbúðanna að Dalbraut
27 fyrir umönnun, alúð og nærgætni.
.
Benný Þórðardóttir, Páll Sigurðsson,
Hjördís Kristinsdóttir, Haraldur Geir Hlöðversson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
SVEINBJÖRN JÓNSSON,
lést á heimili sínu 8. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
.
Erna Konráðsdóttir,
Elín Dóra Sveinbjörnsdóttir, Alex Páll Ólafsson,
Sveinbjörn Ingi Pálsson, Ásrún Karlsdóttir.
Þökkum auðsðýnda samúð og hlýju við
andlát og útför
SIGURJÓNS K. NIELSEN,
Hrafnistu í Hafnarfirði,
áður til heimilis að Lækjasmára 4,
Kópavogi.
.
Elín Elísabet Sæmundsdóttir,
Gísli Sigurjónsson, Jóhanna H. Bjarnadóttir,
Guðmundur Sigurjónsson, Þóra Björg Ágústsdóttir,
Birgir Sigurjónsson, Laufey Sigurðardóttir,
Ósk Sigurjónsdóttir, Stefán Örn Magnússon,
Sigurjón S. Nielsen, Helga Hillers,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega samúð og hlýhug vegna
andláts móður okkar,
SIGRÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR
vefnaðarkennara.
Þökkum sérstaklega starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir
umönnun og alúð.
.
Halldór Sigtryggsson, Herborg Sigtryggsdóttir,
Hrafnkell Sigtryggsson og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs
sambýlismanns, sonar, föður, tengdaföður,
afa, langafa og bróður,
ARNAR WILHELMS RANDRUP,
Keflavík.
.
Fjölskylda hins látna.