Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 8

Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015 Heimsmeistarakeppnin í fótboltakvenna fer um þessar mundir fram í Kanada. Augljóst er að kon- urnar eru miklir eftirbátar karlanna og virðast engan skilning hafa á íþróttinni.    Kvennafótbolti virðist fara framán allra stæla, leikmenn engj- ast ekki um í grasinu heldur hlaupa af stað eins og ekkert hafi í skorist þegar blásið er til leiks á ný.    Konurnar virðast halda að fót-bolti snúist bara um að spila fótbolta og gera sér ekki grein fyrir því að enginn verður stjarna án stjörnustæla.    Um leið og konurnar spila umheimsmeistaratitilinn fer í Síle fram keppni karlalandsliða um Suð- ur-Ameríkumeistaratitilinn.    Þar kemur sérstaða karlaboltansskýrt fram. Gott dæmi er leikur Síle og Úrúgvæ. Þar potaði Gonzalo Jara, leikmaður Síle, fingri í aftur- enda Edinsons Cavani, sem spilar með Úrúgvæ. Greip Jara síðan um andlit sér og lét sig detta eins og hann hefði verið sleginn niður. Dóm- arinn féll í gildruna, rak Cavani út af og tíu mínútum síðar skoraði Síle sigurmarkið. Nú hefur Jara reyndar verið settur í leikbann út keppnina, en liðið hans komst áfram.    Þessa vídd virðist alveg vanta íkvennaboltann. Á HM í Kanada er bara spilaður fótbolti án stæla og leikaraskapar. Stjörnurnar í karla- boltanum gætu lært sitthvað af því að fylgjast með konunum í Kanada. Þjóðverjar og Frakkar eigast við í gærkvöldi. Hvar eru stælarnir? STAKSTEINAR Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Guðlaug Kristjánsdóttir, bæjar- fulltrúi Bjartrar framtíðar í Hafnar- firði, forseti bæjarstjórnar og for- maður fjölskylduráðs Hafnarfjarðar, segist ekki óttast það að ekki sé rými á Sólvangsreitnum fyrir 60 rýma hjúkrunarheimili. Minnihlutinn í bæjarstjórn, þ.e. fulltrúar Samfylkingar og VG, hafa gagnrýnt staðarval meirihlutans fyrir nýtt hjúkrunarheimili og haldið því fram að ekki sé rými á reitnum til þess að reisa hjúkrunarheimili sem uppfylli nútímakröfur. „Væntanlega er minnihlutinn að vísa til þess hvort byggt verði á einni hæð, en ég tel að nýtt hjúkrunar- heimili á Sólvangs- reitnum muni að öllu leyti uppfylla nútímakröfur til slíkra heimila,“ sagði Guðlaug í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þetta val okkar byggist fyrst og fremst á faglegri greiningu sem Capacent vann fyrir okkur. Almennt höfum við fengið mjög jákvæð við- brögð við þessari ákvörðun, bæði frá bæjarbúum, ekki síst eldri borgurum og hagsmunaaðilum, enda hefur verið uppi sterk krafa um það hér í bænum að horft sé á þetta svæði,“ segir Guð- laug. Hún bendir á að þessi ákvörðun rími mjög vel við annað verkefni sem sé í vinnslu hjá skipulags- og bygg- ingaráði Hafnarfjarðar um þéttingu byggðar. „Við erum að hugsa inn á við og nýta þá innviði sem þegar eru til stað- ar á Sólvangsreitnum, sem býður upp á fjölmörg tækifæri til að styrkja starfsemina með tengdri þjónustu í nánasta nágrenni,“ sagði Guðlaug. Hún segir að stefnan í öldrunar- þjónustu Hafnarfjarðarbæjar til næstu áratuga tilgreini að horfa eigi til þriggja staða hvað varðar frekari uppbyggingu fyrir öldrunarþjónustu. Það séu Sólvangur, Skarðshlíð og Hrafnista. „Þessi ákvörðun núna úti- lokar alls ekki að í náinni framtíð komi að slíkri uppbyggingu í Skarðs- hlíð.“ Vilja nýta innviði og þétta byggð Morgunblaðið/Júlíus Sólvangur Bæjarstjórnin ætlar að þétta byggðina og nýta innviðina sem eru á Sólvangsreitnum.Guðlaug Kristjánsdóttir  Nýtt hjúkrunarheimili á Sólvangsreitnum muni uppfylla nútímakröfur Veður víða um heim 26.6., kl. 18.00 Reykjavík 18 skýjað Bolungarvík 15 heiðskírt Akureyri 20 heiðskírt Nuuk 12 léttskýjað Þórshöfn 8 skúrir Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 16 léttskýjað Helsinki 13 skýjað Lúxemborg 25 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 21 léttskýjað Glasgow 16 léttskýjað London 22 heiðskírt París 30 heiðskírt Amsterdam 23 heiðskírt Hamborg 21 heiðskírt Berlín 21 heiðskírt Vín 25 heiðskírt Moskva 22 léttskýjað Algarve 27 heiðskírt Madríd 33 heiðskírt Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 23 léttskýjað Winnipeg 23 léttskýjað Montreal 22 léttskýjað New York 23 skýjað Chicago 20 alskýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:59 24:03 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:15 23:47 3.-16. nóvember 2015 Sími 588 8900 transatlantic.is Verð kr. 549.900 á mann í tveggja manna herbergi Innifalið í verði: Hálft fæði, flug, hótel, skattar, íslenskur fararstjóri og allar ferðir m.a. Safarí ferð um Yala þjóðgarðinn. Einstök ferð Hrífandi náttúra, einstök menning og fjölbreytt dýralíf sem eiga varla sinn líkan, ævintýraleg upplifun í einstöku umhverfi. Við förum m.a. í Safaríferð á jeppum og skoðum villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi. Sri lanka er eyjan sem Sinbað sæfari og Marco Polo heimsóttu á ferðum sínum. Við kynntumst fram- andi og heillandi heimi sem tekur á móti ferðalöngum með opnum örmum. Verð kr. 568.320 á mann í tveggja manna herbergi Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri 4.-19. október 2015 Einstök ævintýraferð Við kynntumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna menningarheimi Maya indiána. Skoðum m.a. hin þekkta píramída Tulum, gamlar menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims og upplifum regnskóginn. Við tökum svo nokkra daga á lúxus hóteli við Karabíska hafið þar sem allt er innifalið. Á slóðir Maya Indiána Mexíkó, Guatemala og Belize Paradísareyjan Sri lanka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.