Morgunblaðið - 27.06.2015, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Ljósmyndir/Skotganga
Fegurð Mikið er um dýrðir þegar leiðin West Highland Way er gengin. Gangan tekur sjö daga og er 153 km.
tignarlegum fjöllum, um skóga, dali
og heiðar,“ segir Inga en á meðan
gengið er fer hún einnig yfir sögu
svæðisins.
„Kvöldið áður en haldið er af
stað í gönguna þá held ég partý
heima hjá mér fyrir gestina,“ segir
Inga kát. Þá fá allir góðan mat og
drykk í boði hjónanna. „Það hristast
allir vel saman og eru verulega vel
stemmdir þegar lagt er af stað
næsta dag.“
Yfirleitt eru um tíu til tuttugu
manns í hverri ferð og segir Inga að
hóparnir tengist ótrúlega vel í ferð-
unum. „Það myndast öðruvísi
stemning þegar fólk er svona saman
í útlöndum. Samkenndin verður öfl-
ug og allir hugsa hver um annan.“
Aldrei fellt niður
Inga hefur sannarlega yndi af
ferðunum sem þau hjónin bjóða upp
á hjá Skotgöngu en það sést best á
því að hún hefur aldrei fellt niður
ferð, óháð því hve margir hafa verið
skráðir.
„Þegar kreppan kom þá var bú-
ið að uppbóka allt sumarið en svo féll
það allt eins og spilaborg. Þá var
bara að gefast ekki upp og halda
áfram,“ segir Inga sem fór í tvær sjö
daga göngur, sína með hvorum hjón-
um, það sumar. „Ég felli aldrei niður
ferðir. Þó ég þurfi að borga með
sjálfri mér þá fer ég samt, því það er
ekki það sem skiptir máli,“ segir
Inga.
Hjónin dóu ekki ráðalaus þegar
umsvifin minnkuðu í kringum efna-
hagshrunið heldur beindu sjónum
sínum að Skandinavíu. „Það reynd-
ist mjög vinsælt þar,“ en þau vinna
með ferðaskrifstofum á Norðurlönd-
unum til að komast í samband við
væntanlega ferðalanga.
Nýlega fóru hjónin að bjóða upp
á ferðir, í samvinnu við Úrval Útsýn,
um slóðir landnámskonunnar Auðar
djúpúðgu. Farið er um Suðureyjar
og Hálönd Skotlands þar sem tengsl
svæðanna við Ísland eru skoðuð.
Eyjarnar Mull, Iona, Skye, Eliean
Donan, Harris & Lewis eru heim-
sóttar.
„Þar dýpkum við þekkingu okk-
ar á svæðinu og sköpum létta,
skemmtilega stemningu og njótum
annálaðrar gestrisni Skotanna.“
Tryggvi Heiðar og Davíð Freyr starfa á
leikskólum í Vesturbæ Reykjavíkur og
þeir skipa líka dúóið Mömmustráka.
Þeir ætla að koma fram á Heimilis-
legum Sunnudögum á Kex Hosteli við
Skúlagötu á morgun sunnudag, kl.
13. Á dagskránni eru leikskólalög og
þetta verður notaleg stund með fjör-
ugu ívafi og kímnum blæ með anga af
bilaðri stemmningu og stuði. Allir eru
velkomnir og enginn aðgangseyrir.
Gítarinn er iðulega við hönd Davíðs
Freys þegar kemur að leik og starfi
með börnunum og er hann óspart
notaður í söng- og samverustundum.
Davíð leggur áherslu á að kynna sem
flesta kima tónlistar fyrir börnunum
og hvetur þau til að tjá sig í gegnum
hana.
Tryggvi Heiðar er söngvaskáld og
hefur komið fram undir listamanns-
nafninu The Friday Night Idols.
Heimilislegir sunnudagar á Kex Hosteli með Mömmustrákum
Davíð Freyr Hann starfar á leikskólanum Grandaborg meðfram liststörfum.
Notaleg stund með fjörugu ívafi
Bjartmar Guðlaugsson verður með
tónleika í Óðinshúsi á Eyrarbakka í
kvöld kl. 21. Bjartmar mun fara létt
yfir tónlistarsögu sína, flytja helstu
smelli og segja nokkrar skemmtisög-
ur tengdar þeim. Þarna munu mæta
kunningjar eins og Fúll á móti, Sum-
arliði, mamman með beyglaða munn-
inn og þeirra nánasta fólk.
Tónleikarnir standa í tvær klst.
með 15 mínútna hléi og aðgangseyrir
er 2.500 kr.
Óðinshús var byggt árið 1913 af
Kaupfélaginu Heklu á Eyrarbakka
sem pakkhús og er eina pakkhúsið á
Eyrarbakka frá þessum tíma og eitt
elsta steinsteypta hús á landinu. Til-
finningin fyrir sögu hússins, tímans
tönn ásamt myndlistinni er áþreif-
anleg og því geta gestir búist við
upplifun fyrir öll skilningarvitin.
Tónleikar í Óðinshúsi á Eyrarbakka
Bjartmar Fer yfir tónlistarsögu sína.
Bjartmar ætlar líka að segja
skemmtisögur í kvöld
viðtekin viðhorf í þjóðfélaginu og
hvernig framboð Vigdísar og for-
setakjör breytti hugsunarhætti
fólks. Rithöfundarnir Kristín Helga
Gunnarsdóttir og Jón Kalman Stef-
ánsson flytja enn fremur tveggja
manna tal.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, og Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti, flytja ávörp.
Allir eru hvattir til að fjölmenna
á Arnarhól, gleðjast saman og
heiðra Vigdísi á þessum merku
tímamótum.
Að dagskránni standa Stofnun
Vigdísar Finnbogadóttur í erlend-
um tungumálum og Háskóli Íslands
í samvinnu við Alþingi, ríkisstjórn
Íslands, Reykjavíkurborg, Samband
íslenskra sveitarfélaga, Skógrækt-
arfélag Íslands, Samtök atvinnu-
lífsins og tugi stofnana og fé-
lagasamtaka sem beita sér fyrir
málefnum sem Vigdísi eru hug-
leikin.
Vert er að taka fram að dag-
skránni verður sjónvarpað beint á
RÚV.
Morgunblaðið/Golli
Eivør Pálsdóttir Hún er meðal þeirra listamanna sem koma fram á hátíðinni.
Ferðir Ingu og Snorra hafa fengið góða dóma
á meðal þeirra sem hafa gengið með þeim í
gegnum tíðina.
„Ekki bara stóð ferðin undir væntingum
heldur miklu meira en það. Þar er við Ingu að
sakast, skemmtiferðalanginn þann arna,“
hafði einn gestur á orði á vefsíðu fyrirtækis-
ins, www.skotganga.co.uk, þar sem hægt er
að skilja eftir nokkur orð.
Í nóvember er dagskráin fyrir hvert göngu-
ár kynnt á vefsíðunni. „Þá eru strax farnar að
berast óskir frá fólki um gönguleiðir og reyn-
um við alltaf að koma til móts við alla. Þetta
er allt mjög frjálslegt,“ segir Inga.
Umfram allar væntingar
SKOTGANGA.CO.UK
Margir kastalar í Skotlandi.
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir
gluggana
á einum
stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp