Morgunblaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 12
FRÉTTASKÝRING Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Vaðlaheiðargöng eru fjórðu jarð- göngin sem virðast ætla að fara fram yfir kostnaðaráætlun á síðustu tutt- ugu og fimm árum. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Vegagerð- inni ásamt skýrslu Ríkisendurskoð- unar um vegaframkvæmdir á árun- um 1992-1995. Sex göng hafa farið í byggingu síðan 1991 og verið er að grafa tvenn göng; Vaðlaheiðargöng og Norðfjarðargöng. Vatnið veldur kostnaði Göngin sem áður hafa farið fram úr áætlun eru Vestfjarðagöng, sem fóru um 17% yfir kostnaðaráætlun samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoð- unar, og Héðinsfjarðargöng, sem fóru 19% fram úr áætlun. Ástæðan í báðum tilvikum, eins og í Vaðlaheið- argöngum, er rakin til vatnsleka sem upp kom við framkvæmdina. Sam- kvæmt upplýsingum frá Speli hf. fór kostnaður við gerð Hvalfjarðar- ganga tæplega 5% fram úr áætlun. Kom sá kostnaður til vegna þess að grafa þurfti dýpra við munna gang- anna en gert hafði verið ráð fyrir. Eru þau einu göngin sem farið hafa fram úr kostnaðaráætlun sl. 25 ár án þess að vatnsleki væri orsökin. Bolungarvíkurgöng voru á áætlun og samkvæmt Vegagerðinni eru Norð- fjarðargöng, sem nú er verið að grafa, einnig á áætlun. Almanna- skarðsgöng voru hins vegar 2% und- ir áætlun og Fáskrúðsfjarðargöng 6% undir. Erfitt að meta vatnsmagn „Almennt hefur gengið mjög illa að áætla vatnsrennsli inn í göng hér á landi og er þá bara verið að hugsa um kalt vatn. Ýmist er rennslið miklu meira en talið var líklegt eða mun minna. Skýringarnar eru að berg er almennt sprungið en ekki einsleitt og vatnsrennsli er mest í sprungum,“ segir í svari stjórnar Vaðlaheiðarganga við fyrirspurn fjárlaganefndar. Enn fremur að það sé tilviljunum háð hvernig gangi að finna vatn með borunum. Reglan er sú við gangaframkvæmdir að bergið sem sprengja á upp er þétt með steinsteypu áður en sprengt er þar sem vatnsæðar finnast. Ef það mis- ferst á einhvern hátt og ekki tekst að þétta bergið nægjanlega vel geta einstakir vatnslekar valdið milljarða tjóni enda um mörg hundruð lítra á sekúndu að ræða. Vatnsleki í Héð- insfjarðargöngum mældist til að mynda á tímabili 300 l/s og Fnjóska- dalsmegin í Vaðlaheiðargöngum var lekinn 550 l/s þegar mest var. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Héðinsfjarðargöng Vatnsleki var meginástæða þess að Héðinsfjarðargöng urðu dýrari en áætlanir sögðu til um. Vatnslekar valda framúrkeyrslum  Vatn er oftast orsök umframkostnaðar við göng Vaðlaheiðargöng þau 4. lengstu Göng Lengd Hvalfjarðargöng 5.770 m Göng undir Breiðadals- og Botnsheiði milli Ísafjarðar, Önundarfjarðar og Súgandafjarðar 9.120 m Bolungarvíkurgöng 5.400 m Arnardalshamar - milli Ísafjarðar og Súðavíkur 30 m Strákagöng - við Siglufjörð (taln. v. Almenningsnöf) 800 m Héðinsfjarðargöng 7.100 + 3.900 m Múlagöng - í Ólafsfjarðarmúla milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar 3.400 m Oddsskarð - milli Eskifjarðar og Norðfjarðar 640 m Fáskrúðsfjarðargöng 5.900 m Almannaskarðsgöng 1.300 m Vaðlaheiðargöng (í gangi) 7.200 m Norðfjarðargöng (í gangi) 7.900 m Húsavíkurhöfðagöng (fyrirhuguð) 1.000 m Dýrafjarðargöng (næst á áætlun) 5.700 m 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Meiri virkni Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Selaolía Meiri virkniEinstök olía Nýtt útlit „Það er alltaf gott að vera vitur eftir á,“ segir Soffía Pálsdóttir, yfirmaður frístundamiðstöðva og tengdrar þjónustu hjá Reykjavíkurborg, um að borgaryfirvöld hafi ekki brugðist strax við vanda sem upp kom síðast- liðið sumar þegar foreldrar fatlaðra barna í Klettaskóla gerðu ákall um að lengja frístundaþjónustu við börnin um tvær vikur. Nú stendur aftur til að loka frí- stundarþjónustunni í Guluhlíð, Öskju og Garði í tvær vikur í sumar, sem getur skapað alvarlegar að- stæður hjá þeim fötluðu börnum sem þurfa mesta festu í líf sitt. „Við treystum okkur ekki til að endurskoða starfsmannahaldið hjá okkur með svo skömmum fyrirvara, þegar starfsfólk er búið að gera ráð- stafanir með sumarfrí sín,“ segir Soffía. Leitað hafi verið til stjórn- enda frístundaheimilanna, sem hafi staðfest að ekki væri hægt að manna vikurnar tvær sem um ræðir. Spurð hvort ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir starfsmannaeklu ef gengið hefði verið í málið strax í fyrrasumar þegar vandinn gerði fyrst vart við sig segir Soffía svo vera. „Ég tek það á mig að þarna hefð- um við strax átt að setjast yfir hlut- ina. Ég var bara sannfærð um að menn væru sælir með fimmtíu vikna þjónustu,“ segir hún. Bregðast þurfi því hratt við nú með stofnun starfs- hópsins sem fara á yfir vistunar- möguleika þessara barna yfir sumartímann heildstætt, svo að allir gangi sáttir frá borði. laufey@mbl.is „Þarna hefðum við strax átt að setjast yfir hlutina“ Morgunblaðið/Þórður Lokar Komast hefði mátt hjá sumar- lokun frístundastarfs Klettaskóla.  Manna ekki frístundaþjónustu við fötluð börn Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Umhverfisstofnun hefur sent út ábendingu til byggingarfulltrúa sveitarfélaganna um auglýsinga- skilti meðfram vegum utan þétt- býlis, en auglýsingar við vegina eru bannaðar í náttúruverndarlögum. Samkvæmt lögunum er Umhverfis- stofnun eftirlitsaðili með auglýs- ingaskiltum utan þéttbýlis. Byggingarfulltrúar sjá þó ein- ungis um leyfisveitingar vegna aug- lýsingaskilta innan þéttbýlismarka. „Hugmyndin var að fá byggingar- fulltrúana með okkur í lið,“ segir Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri samþættingar hjá Umhverfis- stofnun. Auglýsingarnar spretti oft upp við þjóðvegi í námunda við þétt- býliskjarna. „Það er alltaf svolítið um þetta og við þurfum reglulega að senda áminningar vegna auglýs- ingaskilta,“ segir hún, en tilkynn- ingar til byggingarfulltrúa eru jafn- an sendar út á vorin í ljósi aukinnar umferðar um vegina yfir sumarið. Spurð hvort skiltunum hafi fjölg- að í samræmi við fjölgun ferða- manna hér á landi segir Sigrún að svo sé ekki. „Við höfum ekki tekið saman tölur þar sem við sjáum slíka þróun. Skiltin eru álíka mörg og verið hefur,“ segir Sigrún. Í náttúruverndarlögum er heimild til að sekta fyrir ólögleg auglýs- ingaskilti, en sektirnar verða hæstar hundrað þúsund krónur á dag. „Það er ekki mikið um sektir, yfirleitt eru skiltin tekin niður eftir ábendingu frá okkur,“ segir Sigrún. Lagaóvissa um þéttbýlið Í rannsóknarskýrslu sem unnin var fyrir Vegagerðina árið 2014 kemur fram gagnrýni á lagaumgjörð um auglýsingar við vegi utan þétt- býlis. Skýrslan fjallar um umferðar- merkingar á þjóðvegum landsins vegna fjölgunar ferðamanna á veg- unum, en þar er einnig minnst á aug- lýsingaskilti. Auk náttúruverndarlaga fjalla vegalög um auglýsingaskilti utan þéttbýlis, en í þeim er Vegagerðin tilgreind sem eftirlitsaðili. Í vegalög- um segir að án leyfis Vegagerðar séu auglýsingaskilti ekki heimil nema utan veghelgunarsvæðis, sem nær þrjátíu metra frá miðlínu stofn- vega og fimmtán metra frá miðlínu annarra þjóðvega. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsinga- fulltrúa Vegagerðarinnar, leyfir Vegagerðin engin skilti innan veg- helgunarsvæðisins. Undantekning í náttúruverndar- lögum heimilar hins vegar látlausar auglýsingar um atvinnurekstur í ná- grenni við staðsetningu auglýsingar- innar. Vegalög banna því auglýs- ingar sem falla undir undantekningu náttúruverndarlaga. Í skýrslunni er að lokum mælst til þess að við endurskoðun náttúru- verndarlaganna verði miðað að sam- ræmingu sjónarmiða lagabálkanna tveggja um bann við auglýsinga- skiltum við vegi landsins. Náttúruvá og umferðarógn við þjóðvegina  Auglýsingaskilti eru viðvarandi vandamál utan þéttbýliskjarnanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjóðvegur Auglýsingaskiltin rísa helst við þjóðvegi um allt land. Auglýsingaskiltin » Umhverfisstofnun hefur leit- að til byggingarfulltrúa um samstarf vegna auglýs- ingaskilta utan þéttbýlis. » Auglýsingaskilta hefur orðið vart við vegi um land allt, helst við þéttbýliskjarna. » Lög um bann við auglýs- ingaskiltum við þjóðvegi eru óljós miðað við ákvæði nátt- úruverndarlaga og vegalaga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.