Morgunblaðið - 27.06.2015, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.06.2015, Qupperneq 24
FRÉTTASKÝRING Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Óvissa ríkir um hvort Jöfn-unarsjóður sveitarfélagamuni njóta góðs af stöð-ugleikaskattinum sem fyr- irhugað er að leggja á kröfuhafa föllnu bankanna, en sjóðurinn fær 2,12% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs. Er það vegna þess að óvissa er um hvort stöðugleikaskatt- urinn muni í raun skila tekjum í rík- issjóð. Hann mun ekki gera það ef kröfuhafar undirgangast skilyrði um greiðslu stöðugleikaframlags til ís- lenska ríkisins. Samband íslenskra sveitarfé- laga (SÍS) vekur athygli á þessu í um- sögn sinni um stöðugleikaskatts- frumvarpið. Karl Björnsson, framkvæmdastjóri SÍS, segist treysta á að sveitarfélögin fái hluta af þeim tekjum sem ríkissjóður fær úr stöðugleikaframlaginu. Skuldir sveit- arfélaga hafi snarhækkað í kjölfar hrunsins, en farið lækkandi frá árinu 2011. 500 milljarðar til skiptanna Í stöðugleikaskattsfrumvarpinu kemur fram að skatttekjunum verði í fyrsta lagi varið til að mæta lækkun tekna af bankaskattinum sem leiðir af frumvarpinu og uppgjöri slitabú- anna. Í öðru lagi verður þeim varið til uppgreiðslu skuldabréfs sem ríkis- sjóður gaf út til endurfjármögnunar Seðlabanka Íslands. Þeim fjár- munum sem eftir standa verður ráð- stafað á sérstakan innlánsreikning ríkissjóðs í Seðlabankanum og gætu þeir numið tæplega 500 milljörðum króna eða 25% af vergri landsfram- leiðslu. „Verður þessum fjármunum, eftir því sem tækifæri gefast, varið til lækkunar skulda hins opinbera, enda hefur ríkissjóður borið mikinn kostn- að af hruni fjármálakerfisins,“ segir í frumvarpinu. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur haft tekjur af bankaskattinum og ef hann fellur niður í ársbyrjun 2016 verður sjóðurinn af tekjum sem nema um 1,1 milljarði króna. Í um- sögn SÍS segir að þar sem fram komi í skýringum frumvarpsins að það eigi fyrst að nota tekjurnar til að mæta lækkun tekna af bankaskatti geti það gefið til kynna að eitt af markmiðum frumvarpsins væri að áætlaðar tekjur jöfnunarsjóðs af bankaskatt- inum yrðu óbreyttar. Skuldir sveitarfélaga þreföld- uðust á árunum 2007-2011 Karl Björnsson leggur áherslu á að hið opinbera samanstandi bæði af ríkinu og sveitarfélögum. „Eins og fram kemur í frumvarpinu er hug- myndin að lækka skuldir hins opin- bera. Hið opinbera er auðvitað bæði ríki og sveitarfélög, þannig að við treystum á að það sé verið að hugsa til sveitarfélaganna líka. Langtima- skuldir þeirra nærri því þrefölduðust á árunum 2007 til 2011 og hækkuðu um rúma 100 milljarða króna. Þau urðu fyrir áfalli eins og ríkissjóður. Við fögnum því að það sé talað um hið opinbera í frumvarpinu,“ segir Karl, en sambandið viðurkennir í umsögn sinni að e.t.v. sé um að ræða ríkissjóð í frumvarpinu, þegar fjallað er um að lækka skuldir hins opinbera, því kostnaður ríkissjóðs af hruni fjár- málakerfisins er sérstaklega til- greindur. Karl er búinn að kynna sjónar- mið sambandsins á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem sambandið bauð fram aðstoð sína við að útfæra hvernig hægt sé að skipta tekjunum. Hann segir þó algjörlega óútfært hvaða sveitarfélög myndu fá mest. Fyrst þurfi að finna út úr því hvað hugsanlega komi til sveitar- félaganna til lækkunar skulda og síð- an þarf að finna út sanngjarna aðferð við að dreifa því til sveitarfélaganna. SÍS vill sneið af stöð- ugleikaframlaginu Morgunblaðið/Kristinn Skólaakstur Jöfnunarsjóður niðurgreiðir skólaakstur í dreifbýli. 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það dró til tíð-inda áfimmtudag þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna úr- skurðaði að mikil- vægur hluti lög- gjafar Baracks Obama Bandaríkjaforseta um sjúkra- tryggingar stæðist stjórnar- skrá landsins. Andstæðingar laganna töldu að ákvæði þeirra stönguðust á við rétt hinna ein- stöku ríkja til þess að ráða sín- um málum. Var þetta í annað sinn sem umdeild ákvæði lag- anna fóru fyrir réttinn, og hef- ur hæstirétturinn nú í tvígang talið lögin standast skoðun. Tilgangur laganna sem slík- ur er góður, að tryggja sem flestum Bandaríkjamönnum heilbrigðisþjónustu óháð efna- hag, en tilhögun tryggingamála þar í landi hefur verið mjög frá- brugðin því sem þekkist annars staðar í hinum vestræna heimi og hafa annmarkar þess kerfis oft stungið í augu. Er ljóst að mörgum þykir skjóta skökku við að í ríkasta landi veraldar sé ekki hægt að haga heilbrigðis- málum með öðrum hætti, þó ekki væri nema fyrir hina verst stöddu í samfélaginu, sem ekki eiga þess kost að kaupa sér dýra tryggingu. Hitt er síðan annað mál að útfærsla kerfisins hefur verið miklum erfiðleikum háð. Má þar til dæmis nefna vandræðin í upphafi við að opna heimasíðu þess, þar sem ætlast var til að fólk skráði sig fyrir tryggingum. Þá þótti orðspor for- setans bíða nokk- urn hnekki þegar fréttir fóru að ber- ast af því að fólk sem þegar hafði heilbrigðis- tryggingu sem því líkaði missti hana beinlínis vegna tilkomu Obamacare, eins og lögin eru kölluð, þvert á það sem Obama hafði lofað á eftirminnilegan hátt. Niðurstaða Hæstaréttar nú er því kærkominn sigur fyrir Obama, þar sem það hefði verið enn eitt áfallið fyrir hann ef rétturinn hefði tekið undir með andstæðingum frumvarpsins og sagt að lögin stæðust ekki stjórnarskrána. Sjálfur sagði Obama eftir dóminn að hið nýja heilbrigðiskerfi væri nú órjúfanlegur hluti af banda- rísku samfélagi. Hugsanlega er þar þó full djúpt í árinni tekið. Dómurinn sem slíkur er mikilvægur fyrir Obama en hann hefur með engu móti sefað óánægju pólitískra andstæðinga forsetans með lögin. Barátta repúblikana gegn lögunum mun því eflaust halda áfram og þeir munu reyna allt hvað þeir geta til þess að snúa lögunum við og fá þau afnumin. Heilbrigðiskerfi Obama er því engan veginn komið í örugga höfn jafnvel þó að hæstiréttur- inn hafi nú skotið skjólshúsi yfir það. Hæstiréttur Banda- ríkjanna staðfesti lög Obama um sjúkratryggingar} Lög látin standa Þegar bankarnirféllu vaknaði ótti um að viðvar- andi atvinnuleysi myndi grípa um sig á Íslandi. Heyrðust sérstaklega áhyggjur af því að ástandið myndi bitna illa á ungu fólki og hætta væri á að heil kynslóð myndi týnast líkt og dæmi væru um að gerst hefði í efnahagshremmingum annars staðar. Í Morgunblaðinu í gær birt- ist fréttaskýring undir fyrir- sögninni „Unga kynslóðin týnd- ist ekki á Íslandi“. Þar kemur fram að vel hafi gengið hjá ungu fólki hér á landi að fá at- vinnu á árunum eftir banka- hrunið og langtímaatvinnuleysi fólks undir 25 ára aldri sé lítið á Íslandi í samanburði við önnur Evrópulönd. Í greininni segir Tryggvi Haraldsson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, að úrræði á vegum stofnunarinnar á borð við Ungt fólk til athafna og At- vinnutorg hafi skipt sköpum í þessum efnum. Það er erfitt að gera of mikið úr afleiðingum atvinnuleysis. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er um 20% í Evrópusam- bandinu. Það er há tala. Ástandið er sérstaklega dökkt í þeim löndum sem gengið hafa í gegnum mestan efnahags- vanda. Í Grikklandi var at- vinnuleysi ungs fólks rúmlega 50% í apríl, rétt undir 50% á Spáni og rúm 40% á Ítalíu. Í þessum löndum hefur atvinnu- lífið verið drepið í dróma. - Evran á stóran þátt í þessum vanda. Gengi hennar miðast ekki við jaðarinn heldur miðj- una. Það þykir fínt að tala niður til krónunnar en hún á ekki síður þátt í litlu atvinnuleysi en úr- ræði Vinnumálastofnunar. Hún veitir sveigjanleika sem evran hefði útilokað. Með því að hafa mynt sem sveiflast í takti við ís- lenskan efnahag fremur en að stjórnast af fjarlægum hags- munum var auðveldara að tak- ast á við efnahagsvandann og koma í veg fyrir að eitur at- vinnuleysis flæddi um æðar at- vinnulífsins. Krónan átti þátt í að bægja frá hremm- ingum atvinnuleysis} Atvinna og ungt fólk Þ að vakti athygli í Bretlandi á dög- unum þegar upp komst að starfs- menn BBC höfðu auglýst nema- stöður hjá ríkismiðlinum í skiptum fyrir nemastöður hjá öðr- um fyrirtækjum á síðunni MyIntern- Swap.com. Einn starfsmaður BBC auglýsti til dæmis fjölbreytta starfsreynslu í fjölmiðlun og óskaði í staðinn eftir starfsreynslu fyrir 17 ára gamlan son sinn í lögmennsku eða listum, en þá mátti einnig á vefsíðunni finna auglýs- ingu þar sem nemastaða á lögfræðisviði BBC var boðin í skiptum fyrir stöðu hjá öðru fyr- irtæki. BBC staðfesti í kjölfarið að viðkomandi hefðu brotið gegn innanhússreglum, sem kveða á um jafnan aðgang að tækifærum inn- an fyrirtækisins. Vefsíður á borð við My- InternSwap.com hafa verið gagnrýndar fyrir að útiloka þá frá starfsreynslutækifærum sem eiga ekki foreldra sem eru í þeirri stöðu að geta boðið nemastöður í skipt- um fyrir stöður fyrir afkvæmi sín, og þá þykir tilvist vef- síðanna varpa ljósi á aukna erfiðleika við að brúa bilið milli náms og vinnumarkaðar. Þetta dæmi endurspeglar vaxandi vandamál í Bret- landi og víðar, þar sem börn sem erfa auðæfi og háa stöðu í samfélaginu hafa allt frá fæðingu mun fleiri tæki- færi til að blómstra en þau börn sem þurfa sjálf að byggja frá grunni. Ein birtingarmynd vandans var í um- ræðunni fyrr á þessu ári, þegar leikkonan Julie Walters og fleiri vöktu athygli á því hversu margir breskir leikarar úr forréttindastétt hefðu náð miklum frama, á meðan lítið færi fyrir leik- urum úr verkamannastétt. Walters gekk svo langt að halda því fram að fólk úr verka- mannastétt ætti sér vart lengur málsvara meðal leikara og höfunda. Í Bandaríkjunum virðist almenningsálitið hallast að því að „bandaríski draumurinn“ heyri sögunni til. Nýleg könnun sem gerð var fyrir New York Times og CBS News leiddi í ljós að 61% þátttakenda taldi að einungis fá- mennur hópur í efstu stigum samfélagsins ætti möguleika á því að ná frama (get ahead) og 66% töldu að dreifing fjármagns ætti að vera jafnari. Þá sögðu 67% svarenda að bilið milli ríkra og fátækra færi vaxandi og 65% sögðu vandamálið aðkallandi. Þegar maður setur niðurstöður og umræðu af þessu tagi í samhengi við þær fréttir sem fjölmiðlar flytja dag hvern, af tekjum viðskiptajöfra, Hollywoodleikara og íþróttastjarna annars vegar og af örbirgð og lífsbaráttu þeirra sem minnst mega sín hins vegar, sækir að manni sú hugsun hversu lengi hinar undarlegu og viðkvæmu þjóðfélagsaðstæður sem leyfa þetta ástand munu vara. Misskiptingin er reyndar rótgróin og kerfisbundin og erfitt að sjá fyrir endann á henni nema upp úr sjóði, en maður hlýtur að ætla að það sé ráðamönnum hugleikið þessa dagana að finna bremsuna frekar en gefa í. holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Misskiptingin sýnir sig víða STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga er að veita sveitar- félögum framlög til jöfnunar á mismunandi tekjumöguleikum þeirra og útgjaldaþörf ásamt því að greiða lögbundin framlög til samtaka og stofnana sveitar- félaga. Áætlað er að í ár nemi út- hlutun útgjaldajöfnunarfram- laga 6,050 milljörðum króna. Þar af nema framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli 575 milljónum. Mest fær Ísafjarð- arbær úr sjóðnum, 301 milljón. Átta sveitarfélög fá ekki krónu úr sjóðnum, öll fámenn sveit- arfélög á landsbyggðinni. Reykjavík fær rúmar 11 millj- ónir úr sjóðnum á árinu, þar af 1,6 milljónir fyrir skólaakstur úr dreifbýli. Þrjú sveitarfélög skera sig úr hvað varðar framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli; Borgarbyggð (50 m.kr.), Sveit- arfélagið Skagafjörður (45 m.kr.), Húnaþing vestra (56 m.kr.) og Fljótsdalshérað (45 m. kr.). Sveitarfélög niðurgreidd JÖFNUNARSJÓÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.