Morgunblaðið - 27.06.2015, Page 25

Morgunblaðið - 27.06.2015, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015 Pyntingum mótmælt Félagar í ungliðahreyfingu Íslandsdeildar mannréttindasamtakanna Amnesty International sýndu fórnarlömbum pyntinga stuðning í verki og settu upp pyntingasýningu á Austurvelli í gær í tilefni af alþjóðlegum degi Sameinuðu þjóðanna til stuðnings þolendum pyntinga í heiminum. Ungliðahreyfingar Amnesty settu upp slíkar sýningar á götum borga í 55 löndum. Eggert Tímabært er að endurskoða fyr- irkomulag allrar þjónustu við eldra fólk. Hluti þeirrar vinnu er stefnu- mörkun til framtíðar þar sem mið er tekið af þörfum einstaklinga og þeirri staðreynd að fjármunir eru takmark- aðir. Möguleikar á stórbættri þjónustu Með teymisvinnu fagfólks í öldr- unarþjónustu heilsugæslu, sjúkra- húsa og félagsþjónustu skapast möguleikar á að stórbæta þjón- ustuna. Fyrst þarf að greina heild- arþarfir, ákveða hvaða þjónusta verð- ur boðin, hver veitir hana og hvenær. Hanna þarf þjónustuna með tilliti til þess að ná fram hámarksgæðum og nýtingu þeirra auðlinda sem hún krefst en það eru einkum starfs- kraftar. Gæði og öryggi þjónustunnar skipta mestu, að hún sé áreiðanleg, fylgja megi eftir framkvæmd hennar og tryggja að hún sé aðgengileg fyrir þá sem njóta hennar. Þá þarf að skil- greina hvaða viðmið eiga að gilda um gæði. Oft eru þeir sem njóta þjónust- unnar sjálfir illa færir að meta gæði hennar eða gera athugasemdir. Þá er mikilvægt að aðstandendur séu hafð- ir með í ráðum, þeir upplýstir og þeim gert kleift að styðja sitt fólk eins og aðstæður leyfa. Undanfarin ár hefur þróun á sviði upplýsinga- og mælitækni verið afar hröð. Þær þjóðir sem eiga þess kost að nýta þessa þróun geta stórbætt þjónustu við eldra fólk og aukið um- fang hennar án þess að kostnaður hækki að sama skapi. Hér ber fyrst að nefna nútímavæðingu í meðferð heilbrigðisupplýsinga. Hægt er að gera heilbrigðisgögn aðgengileg fyrir mun fleiri heilbrigðisstarfsmenn en nú er og á mun þægilegri hátt en áð- ur. Grunnur að góðri ráðgjöf og með- ferð er að hafa réttar og ítarlegar upplýsingar. Bent hefur verið á að heildrænt öldrunarmat er sannreynd aðferð til að ná utan um hin marg- þættu viðfangsefni eldra fólks, s.s. aldurstengdar breytingar, marga sjúkdóma, lyf, færnitap og fé- lagslegar aðstæður. InterRAI er al- þjóðlegur félagsskapur vísindamanna án hagnaðarsjónarmiða sem hefur beitt sér fyrir þróun matstækja sem nýta má á öllum sviðum heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir eldra fólk og fólk með langvinna sjúkdóma óháð aldri. Með þessari nálgun sem fóstrar teymisvinnu er upplýsingum safnað á samræmdan hátt þannig að upplýs- ingarnar geti flætt hindrunarlaust milli þjónustuaðila. Matskerfi það sem vís- indamenn hafa þróað innan InterRAI skil- greinir alla veitta þjón- ustu sem virk viðfangs- efni, gefur vísbendingar um umönnunarleiðir, hefur innbyggða gæða- vísa, flokkar fólk eftir umönnunarþörfum, umreiknar umönn- unarþyngd yfir í kostn- að og getur stuðlað að rannsóknum. Upplýsingar af því tagi sem hér er lýst eru afar hjálpleg- ar við ákvarðanatöku í daglegu starfi og stuðla að markvissri stefnumótun og mati á öryggi, gæðum og árangri þjónustunnar. Velferðarráðuneytið hefur samið um nýtingu þessara matstækja við InterRAI sér að kostnaðarlausu. Fyrirtækið Stiki ehf. hefur tölvuvætt notkun mats- tækjanna en með því móti má fá heildarsýn á viðfangsefni og for- gangsraða þeim á augabragði. Þessi tækni er þó hvergi nærri fullnýtt. Sjúkrahús án veggja Alkunna er að starfsrými Land- spítalans er takmarkað á bestu dög- um, hvað þá þegar álagstoppar eru í starfseminni. Til marks um þetta var gámum nýlega bætt við sjúkrahúsið og þar útbúin starfsaðstaða fyrir lækna og annað starfsfólk. Með „heimasjúkrahúsi“ er sjúkrahúss- þjónusta útfærð í heimahúsum með því að blanda saman hugviti og tækni. Slík heimaþjónusta hefur rutt sér til rúms víða erlendis. Fólk dvelur heima eftir að sjúkdómur hefur verið greindur og áætlun um meðferð hef- ur verið gerð. Þessi nálgun hentar vel miðaldra fólki og eldra fólki sem er að öðru leyti við góða heilsu en þyrfti ella tímabundna stutta sjúkra- húsþjónustu. Þjónustan nýtir sér að öflun heilbrigðisupplýsinga er nú auðveldari en verið hefur og sumt er nú mælanlegt án inngrips þar sem áður þurfti t.d. blóðprufu eða aðra sýnatöku. Einnig eru nýttar framfar- ir í fjarskiptum sem auðvelda sam- skipti og stuðla að öryggi, til dæmis eftirlit með blóðþrýstingi, hjartslátt- artakti og -hraða. Daglegt eftirlit hjúkrunarfræðinga og lækna er með svipuðum hætti og á sjúkradeild, þ.e. í formi heimavitjana. Spítalasýkingar eru ekki vandamál og rannsóknir hafa sýnt fram á gæði, öryggi og hag- kvæmni. Ætla má að Landspítali gæti nú þegar bætt við um 20-30 rúmum með þessum hætti og þannig jafnframt dregið talsvert úr álagi á móðurstöðinni. Annað nýsköpunarverkefni væri að blanda InterRAI-matstækninni saman við notkun öldrunarlækna á fjarfundabúnaði og öðrum tækjum á Landspítala og styðja þannig við öldrunarþjónustu á heilbrigðisstofn- unum um allt land. Ástralir hafa sýnt fram á fýsileika þessa. Í raun gætu ýmsar aðrar sérgreinar nýtt sér sam- bærilega nálgun. Þannig gæti Land- spítali og fleiri spítalar, s.s. Sjúkra- húsið á Akureyri, gert sérfræðiþjónustu enn aðgengilegri á landsvísu. Öryggisnet fyrir eldra fólk Hægt er að hugsa sér margs konar lausnir til hjálpar eldra fólki sem vill búa heima þrátt fyrir skerta færni. Auðvelt er að mæla margs konar virkni fólks, telja skref, mæla ferðir upp og niður stiga og jafnvel að skynja þegar fólk fellur til jarðar. Fram eru komnar aðferðir til þess að staðsetja fólk sem hægt er að nýta t.d. fyrir fólk með heilabilunar- sjúkdóm. Einnig fást nú úr sem gam- alt fólk getur borið og notað sem far- síma með innbyggðri staðar- ákvörðun. Þá fást hurðalásar sem stýrt er með farsíma og veita má til- teknum aðilum heimild til að opna. Þá geta þjónustuaðilar sjálfir, að feng- inni aðgangsheimild, opnað dyr með auðkenningu um farsíma. Skrá má með þar til gerðum hugbúnaði veitta þjónustu eins og heimilisþrif, heim- sóknir hjúkrunarfræðinga, sjúkra- þjálfara eða lækna. Einnig má senda með sjálfvirkum hætti skilaboð til að- standenda eða annarra þeirra sem koma að þjónustu og mynda saman öryggisnet í kringum aldraðan ein- stakling. Það er vandi að útfæra þjón- ustukeðju heimaþjónustu heilsu- gæslu og félagsþjónustu svo vel fari. Ef raunverulega á að veita ein- staklingsmiðaða þjónustu getur þjón- ustukeðjan orðið flókin sé ekki vel að öllu gætt. Til að hugmyndin nái vel fram að ganga þarf að fela einum að- ila frumkvæði og ábyrgð á allri þjón- ustu gagnvart tilteknum einstaklingi. Slíkur aðili stýrir síðan hópi fagaðila. Nýta má þróun upplýsinga-, mæli- og fjarskiptatækni, sem er mjög ör, til nýsköpunar í margs konar þjón- ustu við eldra fólk. Verði sátt um þá stefnu að liðsinna eldra fólki þannig að það geti búið sem lengst heima hjá sér og notið þar heilbrigðisþjónustu, skapa tækni og hugvit mörg tækifæri til að þróa lausnir sem bætt geta hag og daglegt líf. Pálmi V. Jónsson er yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla Ís- lands. Svana Helen Björnsdóttir er verkfræðingur, stofnandi og stjórn- arformaður Stika og fv. formaður Samtaka iðnaðarins. Höfundar starfa saman að nýsköpun í þjónustu við eldra fólk. Eftir Pálma V. Jónsson og Svönu Helen Björnsdóttur » Verði sátt um þá stefnu að liðsinna eldra fólki þannig að það geti búið sem lengst heima hjá sér og notið þar heilbrigðisþjónustu, skapa tækni og hugvit mörg tækifæri til að þróa lausnir sem bætt geta hag og daglegt líf. Pálmi V. Jónsson Pálmi er yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala og prófessor við lækna- deild Háskóla Íslands. Svana Helen Björnsdóttir er verkfræðingur, stofnandi og stjórnarformaður Stika og fv. formaður Samtaka iðnaðarins. Höfundar starfa saman að nýsköpun í þjónustu við eldra fólk. Nýsköpun og tækni í þjónustu við eldra fólk Svana Helen Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.