Morgunblaðið - 27.06.2015, Side 27

Morgunblaðið - 27.06.2015, Side 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015 Verslunareigendur! Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.gm.is | Sími 535 8500 | info@gm.is Ítalskir pappírspokar í úrvali Flottar lausnir til innpökkunar allskyns vöru Eingöngu sala til fyrirtækja Stórmeistarinn Hannes Hlíf-ar Stefánsson vann glæsi-legan sigur á opna skák-mótinu í Treplica í Tékklandi, sem lauk um síðustu helgi. Hannes kom fyrstur í mark ásamt Ísraelsmanninum Evgení Postny en báðir hlutu þeir 7 ½ vinn- ing af níu mögulegum. Hannesar var úrskurðaður sigurvegari mótsins eftir stigaútreikning. Árangur hans reiknast upp á 2687 elo-stig og hækkar hann um 13 elo-stig fyrir frammistöðu sína. Hannes tefldi síð- ast í landsliðsflokki á Skákþingi Ís- lands og varð þar í 3. sæti. Mönnum fannst vanta einhvern kraft í tafl- mennsku hans þar, sem skýrist kannski af því að hann hefur unnið Íslandsmótið oftar en nokkur annar. Í Treplica var þessu öðruvísi farið og tefldi Hannes af miklum þrótti. Keppendur voru alls 165 talsins og var Hannes sá fimmti í styrk- leikaröðinni. Lenka Ptacnikova var einnig með- al þátttakenda og varð hún í 57. sæti með 5 vinninga. Góður endasprettur lagði grunn- inn að árangri Hannesar sem vann tvær síðustu skákir sínar á sannfær- andi hátt. Hann var einnig sterkur um miðbik mótsins og vann þá Pól- verjann Lukacz í eftirfarandi við- ureign: Treplica 2015; 5. umferð Butkiewicz Lukacz – Hannes Hlífar Stefánsson Skoskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Ba6 9. b3 g6 10. f4 Þó að Kasparov hafi teflt svona í árdaga þessa afbrigðis og unnið höf- uðandstæðing sinn Karpov í Tilburg 1991 er leikurinn talinn fremur slak- ur og að betra sé 10. g3 eða 10. Bb2. Karpov lék nú 10. … f6 en Hannes hefur annað í huga. 10. … d6! 11. g3 11. exd6 er hæpið vegna 11. … Dxe2+ 12. Kxe2 Bg7 og hrókurinn á a1 fellur. 11. … dxe5 12. Ba3 Rb4 13. fxe5 Bg7 14. Rc3 O-O 15. O-O-O Rd3+! Öflugur leikur. Hvítur má alls ekki við því að missa svartreita bisk- upinn. 16. Hxd3 Dxa3 17. Kc2 Hae8 18. He3 Bh6! 19. Bh3 Eftir byrjun sem ekki hefur geng- ið upp er hvítur í vandræðum með hrókinn sem getur sig hvergi hrært vegna … Dc1+. Hann á einhverja möguleika eftir 19. … Bxe3 20. Dxe3 vegna veikleika á svörtu reitunum, einkum þó f6-reitnum. 19. … Bxc4! Slagkraftur mikill. 20. bxc4 Hb8! 21. Hb1 Hxb1 22. Kxb1 Hb8+ 23. Kc2 Hb2+ 24. Kd3 Hxe2 25. Hxe2 Bg7 26. Bg2 Dc5 27. Ra4 Dg1 28. Bxc6 Db1+ 29. Kc3 Dd1 30. Hd2 Bxe5+ 31. Kd3 Db1+ 32. Ke2 Dg1 - og hvítur gafst upp. Magnús Carlsen með neðstu mönnum Tap Magnúsar Carlsen í fyrstu umferð norska skákmótsins sem lauk í Stavangri á fimmtudaginn og birt var í síðasta pistli átti eftir að draga dilk á eftir sér. Heimsmeist- arinn var óvenju lengi að hrista ólundina úr sér; eftir fjórar umferð- ir sat hann í neðsta sæti með ½ vinning. Hann náði aftur vopnum sínum og virtist ætla að enda mótið á sómasamlegan hátt en í loka- umferðinni tefldi hann hörmulega illa gegn vini sínum og aðstoðar- manni, Jon Ludwig Hammer, og tapaði. Sigurvegarinn Topalov fékk vind í seglin í byrjun og fylgdi því eftir með frábærri taflmennsku. Lokastaðan: 1. Topalov 6 ½ v. 2.- 3. Anand og Nakamura 6 v. 4. Giri 5 ½ v. 5.- 6. Crauana og Vachier-Lagrave 4 v. 7.- 8. Carlsen og Grischuk 3 ½ v. 9.-10. Hammer og Aronjan 3 v. Við lauslega athugun finnast ekki önnur dæmi um að ríkjandi og ótví- ræður heimsmeistari hafi fengið lægra en 50% vinningshlutfall á móti sem þessu. Hannes Hlífar vann opna mótið í Treplica Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Nýlegur dómur ÍSÍ í lyfjamáli þar sem við- urlög/óhlutgengi við steraneyslu eru eins og kvefmeðal hafi verið tekið óvart, hefur vakið umtal sem fyrr. Ríkið veitir ÍSÍ 11,6 milljónir ári til lyfjaeftirlits og er það tilefni til að fara yf- ir sögu lyfjaeftirlits á Íslandi Eftirlit og viðurlög við töku „ár- angursbætandi lyfja“ í íþróttum hóf- ust 1967 eftir dauðsföll íþróttamanna sem höfðu tekið lyf í margföldum meðferðarskömmtun. Alþjóðaólymp- íunefndin (AÓN) skilgreindi upp- haflega bönnuðu lyfin vegna þekktrar misnotkunar og áhrifa, en síðar Heimsstofnun gegn lyfjamisnotkun WADA. Nánast öll lyf á bannlist- anum eru nauðsynleg lyf við skil- greindum sjúkdómum svo sem hjartalyf, insúlín, astmalyf, sterar bæði nýrnahettu og kynhormóna, jafnvel amfetamín. Lyfin geta verið íþróttamanni nauðsynleg og eru leyfð ef réttmætar forsendur eru við- urkenndar. Undanþágubeiðni er send til viðkomandi læknanefndar með ít- arlegum upplýsingum. Mikil sérhæfð vinna er í þessu mati hjá lækna- nefndum. Undirritaður fjallaði um meira en 1200 umsóknir á 12 ára tímabili í Læknanefnd Alþjóðafrjáls- íþróttasambandsins (IAAF). Taka árangursbætandi lyfja á bannlista getur verið íþróttamanni hættuleg en er fyrst og fremst svindl gagnvart öðrum keppendum og því refsiverð. Fundur lyfs í sýni án fyr- irfram samþykkis er brot, hvort sem eru hjartalyf, insúlín, astmalyf eða sterar. Afsakanir svo sem; „tók óvart“, „gleymdi að ég væri á lyfinu“, eru útslitnar skýringar, sem auðtrúa eða hliðhollir dómendur nota enn til refsiminnkunar eða sýknunar. Meist- ara- og bikartitlar hafa unnist þannig. Lyfjaeftirlit hófst hér á landi árið 1982 með samningi milli Íþrótta- sambanda Norðurlanda og voru regl- urnar þá þær ströngustu í heiminum. Lyfjamisnotkun í einni einstakri íþróttagrein olli útilokun í öllum greinum íþrótta á Norðurlöndum. Lyfjaeftirlit fór fram átakalaust þar til ein- staklingur í félagsliði forseta ÍSÍ fannst já- kvæður og varðaði tveggja ára banni og tapi meistaratitils. Þá varð bókstaflega allt vitlaust. Forseta fannst að viðkomandi ein- stakling ætti ekki að kæra, studdur af nokkr- um stjórnarmönnum ÍSÍ, formanni viðkom- andi sérsambands og síðast en ekki síst tengdaföður og for- stjóra fyrirtækis sem mikið bar á og ætlaði að greina og lækna alla sjúk- dóma og gera alla ríka! Skriflegt álit Alþjóða ólympíunefndarinnar (AÓN) og við- komandi alþjóðasérsambands voru virt að vettugi en málatilbúnaður fyr- irtækis tengdaföðurins réð. Skjald- armerki fyrirtækisins á málskjölum vó þyngra en Ólympíuhringirnir. Orð undirritaðs sem var stjórnarmaður ÍSÍ, formaður Heilbrigðis(og lyfja) ráðs ÍSÍ, hafði setið mörg lækna- og lyfjaþing AÓN, var í læknanefnd Al- þjóðafrjálsíþróttasambandsins (IA- AF), fyrirlesari á námskeiðum IAAF um lyfjamál, höfundur greina í bók IAAF um íþróttalæknisfræði og tímariti þess um lyfjamál, þýðandi lyfjareglna, hafði margoft skipulagt læknaþjónustu og lyfjaeftirlit á al- þjóðamótum og heimsmeistara- mótum, þ. á m. í handbolta hér á landi og smáþjóðaleikum hér 1997, sam- tímis formaður laganefnda ÍSÍ, FRÍ og FSÍ, voru aukaatriði í málinu og varaforseti taldi hann sýna vanþekk- ingu! Niðurstaða var algjör sýknun. Svindl gerist ekki stærra. Á sama tíma leyfðist erlendum leikmönnum í leikbanni vegna töku ólöglegra lyfja að koma hingað til keppni með ís- lenskum liðum. Hjá AÓN og alþjóðasérsambönd- um eru lyfjamál og heilbrigðismál hjá einni nefnd til heildaryfirsýnar og eft- irlits. Eftir ofanskráð atvik var þessu starfi skipt í þrjá hópa án nokkurs samráðs við reyndustu aðilana. Þetta var sennilega gert til að auðvelda íhlutun! Tveir reyndustu læknar íþrótta- hreyfingarinnar í heilbrigðis- og lyfjamálum töldu sig þá knúna til að segja af sér. Eftir sat hlýðin stjórn og lyfjanefnd, sem tók við fyrirmælum um hverjum ætti að leyfa svindl og hverjum ekki. Lyfjaeftirlit ÍSÍ hefur síðan ekki verið marktækt. Árið 1992 kallaði Gísli Halldórsson, forseti Ólympíunefndar Íslands, okk- ur Sigurjón Sigurðsson á sinn fund og bað okkur að hefja námskeiðahald um íþróttalæknisfræði að hvatningu og með styrk frá AÓN. Námskeiðið átti að standa í þrjá daga með einum erlendum fyrirlesara en annars stað- armönnum. Þessi námskeið voru haldin fimm sinnum á tveggja ára fresti eða í 10 ár og voru sótt af um 400 manns – læknum, sjúkraþjálf- urum og þjálfurum. Á þeim var m.a. fjallað um forskoðun ungra íþrótta- manna, helstu slys, meðferð, end- urhæfingu, þjálfun, næringarfræði, lyfjamál o.fl. Þessu sjálfboðastarfi lauk með brotthvarfi okkar tveggja. Slík fræðsla um heilsuvernd íþrótta- manna hefur ekki verið síðan. Arfleifð forsetans og forstjórans er því nokkur. Stjórnvöld eru endanlega ábyrg fyrir lyfjaeftirliti. Frá þessu of- annefnda atviki ætti ÍSÍ að hafa feng- ið hátt á annað hundrað milljónir króna frá skattborgurum til lyfjaeft- irlits. Það hlýtur að vera kominn tími til að kanna hvernig þessu fé hefur verið varið, hversu margir hafa ekki verið prófaðir, ekki kærðir eða ekki dæmdir. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur hafið rannsókn á spillingu og fjármálum Alþjóðaknattspyrnu- sambandsins FIFA. Væri ekki hægt að biðja þá að líta við í Laug- ardalnum? Lyfjaspilling ÍSÍ? Eftir Birgi Guðjónsson »Dómar ÍSÍ í lyfja- málum hafa þótt undarlegir. Tugir millj- óna af skattfé hafa verið veittir til lyfjaeftirlits. Endurskoðun hlýtur að vera nauðsynleg. Birgir Guðjónsson Höfundur er sérfræðingur í lyflækn- ingum og meltingarsjúkdómum og hefur starfað í íþróttahreyfingunni í um 60 ár. Eftir að hafa horft á kjánalegar en sjálfsagt dýrar auglýsingar Pósts- ins í sjónvarpinu um árabil eru væntingar til þessarar mikilvægu stofnunar ekki miklar en þó tók steininn úr þegar nýlega fréttist að póstur hefði fundizt í kirkjugarði! Ég hef nokkrum sinnum áður lent í vandræðum með biðpóst, sem hafði verið blandað saman við póst annarra manna, en þetta hefur yfirleitt verið leiðrétt með aðstoð lipurs starfsfólks. Síðasta uppá- koman með biðpóstinn er sú að mikilvægur póstur skilaði sér ekki þrátt fyrir ítrekaðar hringingar til sendanda og Póstsins. Hringt var í Póstinn aftur vegna þess að ég hafði verið með biðpóst í aprílmán- uði (21.-29.) og eitthvað gæti hafa ruglazt við skráningu, en því var algjörlega hafnað af Póstinum. Fékk ég reyndar ekki allan bið- póstinn 30. apríl eins og seinna kom í ljós! Nú hringir Pósturinn 11. júní og tilkynnir að allar sendingar séu loksins fundnar! Mistök höfðu gerzt og biðpóstur verið skráður hjá mér til 29. apríl 2016, en ekki 2015 eins og segir á kvittunni! Er þetta boðlegt í nútíma þjóð- félagi? Steinar B. Jakobsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Er Póstinum treystandi? Póstflokkun Mikilvægt er að pósturinn skili sér til viðtakenda. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.