Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 28

Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015 Þegar Landspítalinn, Borgar- spítalinn og Landakotsspítali voru sameinaðir um sl. aldamót var vit- að af hagræði af sameiningu starf- seminnar á einn stað. Meginkostir Hringbrautarlóðarinnar, sem varð fyrir valinu, voru taldir styrking miðborgarinnar, nálægðin við Há- skóla Íslands og að það yrði ódýr- ast. Það vantaði hins vegar að skoða hvaða staðsetning kæmi best út fyrir notendur spítalans og hvort nýr spítali á nýjum stað væri betri og hagkvæmari. Forsendur fyrra staðarvals eru gjörbreyttar. Vaxandi ferðamannastraumur, mikil þörf er fyrir hótel og gistiheimili á svæðinu, fasteignaverð í miðborg- inni sem hefur hækkað verulega, dreifð búseta á höfuðborgarsvæð- inu út með ströndinni í báðar átti og lítið rými er á Hringbrautar- lóðinni til uppbyggingar í framtíð- inni. Ef Landspítalinn verður sam- einaður við Hringbraut mun um- ferðin í nágrenninu aukast yfir 10%. Ef spítalinn hins vegar hverfur úr miðborginni mun um- ferðin á svæðinu minnka um 15%. Þetta og fleira sýnir að gera verð- ur nýtt, faglegt staðarval af óháðu fagfólki. Markmiðið er að við fáum betri spítala á betri stað, fyrir minni pening og fyrr en ef byggt væri við Hringbraut. Margir málsmetandi hafa efasemdir Samkvæmt könnun hefur meiri- hluti lækna efasemdir, núverandi forstjóri hefði valið annan stað og forsætisráðherra telur rétt að skoða staðsetninguna betur. Sama á við um fjölmarga eins og stuðn- ingur við starf samtakanna sýnir. Fjárhagslegur samanburður Samanburður á hagkvæmni við- byggingar við Hringbraut, við Landspítalann í Fossvogi og bygg- ingu nýs spítala á „Besta stað“ sem næst búsetumiðju höfuðborg- arsvæðisins, sem KPMG hefur rýnt útreikningana og góðkennt, sýnir mjög mikinn sparnað við að byggja frá grunni á nýjum og betri stað. Ef miðað er við sambærilegt byggingarmagn mun viðbygging í Fossvogi kosta um 11 milljörðum meira en við Hringbraut og bygg- ing á „Besta stað“ um 12 millj- örðum meira, sem skýrist af því að við Hringbraut og í Fossvogi verður áfram notast við gamla húsnæðið að hluta, en á „Besta stað“ verður byggja allt nýtt frá grunni. Það sem snýr dæminu við og gerir nýbyggingu á „Besta stað“ ódýrasta en Fossvog næst- ódýrastan, er söluandvirði eigna við Hringbraut og í Fossvogi, sem má selja þegar nýja byggingin kemur í gagnið. Hinu sögufræga, virðulega húsi Landspítalans við Hringbraut má finna verðugt hlut- verk tengt heilbrigðismálum. Ef spítalinn rís við Hringbraut aukast umferðarteppur og meng- un á svæðinu. Umferðarvandann verður að leysa með kostn- aðarsömum umferðarmann- virkjum. Ef spítalinn verður í Fossvogi þarf líka verulegar gatnaframkvæmdir en minnstar þarf ef spítalinn rís nálægt stofn- brautum austar á höfuðborg- arsvæðinu og sem næst búsetu- miðju höfuðborgarsvæðisins, t.d. við voga Elliðaánna, á Keldum eða á Vífilsstöðum. Niðurstaðan er að nettó fjár- útlát eru lægst ef byggt er nýtt frá grunni á „Besta stað“ eða 19,6 milljörðum lægri en við Hring- braut og 11,9 milljörðum ódýrara er að byggja við í Fossvogi. Bón- usinn er betri spítali á betri stað og með betri vinnuaðstöðu sem bætir lækningaárangur og starfs- ánægju starfsmanna.Nýi Land- spítalinn reiknar með þriggja milljarða árlegum sparnaði ef spít- alinn verður sameinaður á Hring- braut. Samt verður spítalinn áfram í mörgum byggingum sem tengja þarf saman með meira en 10 kílómetrum af göngum og brúm. Meira rekstrarhagræði næst ef spítalinn verður í betur hönnuðu húsnæði og færri byggingum. Þetta á við um Fossvog en þó enn betur um „Besta stað“ þar sem húsnæðið verður allt sérhannað og nýtt. Mesta hagræði verður vegna greiðari og styttri ferða notenda á spítalann ef hann verður vel stað- settur nær þungamiðju byggð- arinnar á höfuðborgarsvæðinu. Sú miðja er nú nálægt Víkingsvell- inum í Fossvogi. Ferðir að og frá sameinuðum spítala verða um 18.000 á sólar- hring og þar af 100 sjúkrabílar á dag og 200 í toppum. Ef hver ferð styttist um þrjá kílómetra sparast notendum um 3 milljarðar á ári og dregur úr mengun og sliti á göt- um. Árlegt hagræði er þannig samtals 2,6 milljarðar króna í Fossvogi og 4,1 á „Besta stað“. Í heild er núvirtur hagur um- fram Hringbraut 63 milljarðar króna ef spítalinn rís í Fossvogi og 102 milljarðar ef hann verður byggður á „Besta stað“. Nýr spítali á besta stað getur risið fyrr Margir óttast að ef skipt verður um kúrs núna muni það tefja verkefnið úr hömlu. En fyrirliggj- andi þarfagreining og hönn- unarvinna nýtist. Svigrúm til framkvæmda verður betra. Byggja má í samfelldum áföngum, bjóða allt út í einu, sem tryggir meiri hagkvæmni og aukinn fram- kvæmdahraða. Viðbótarkostnaður vinnst upp með auknu hagræði. Boltinn er hjá Alþingi og borgarstjórn Það lítur sem sagt út fyrir að við getum fengið betri spítala á betri stað, sem taka má í notkun fyrr og fyrir lægra fé. Þetta eru allt veigamikil rök sem þeir sem höndla með skattfé landsmanna þurfa að velta alvar- lega fyrir sér áður en ráðist er í byggingu óhagkvæms spítala við Hringbraut. Betri spítali á betri stað, fyrr og fyrir minna fé Eftir Guðjón Sigurbjartsson, Egil Jóhannsson, Gest Ólafsson, Eymund Svein Leifsson, Vilhjálm Ara Arason og Sigurgeir Kjartansson » Þetta og fleira til sýnir að gera verður nýtt, faglegt staðarval af óháðu fagfólki. Mark- miðið er að við fáum nýjan og betri spítala fyrir minna fé. Guðjón og Egill eru viðskiptafræð- ingar, Gestur er arkitekt, Eymundur er iðnaðarverkfræðingur, Sigurgeir er fv. læknir og Vilhjálmur er læknir. Fjárfesting, sambærileg stærð húsnæðis Tölur í milljörðum króna Hringbraut Fossvogur „Besti staður“ Byggingarkostnaður 65,9 76,6 78,3 Söluandvirði eigna nettó -8,5 -21,0 -25,5 Kostnaður við umferðarmannvirki 20,0 10,0 5,0 Heildarfjárfesting, nettó 77,4 65,6 57,8 Mismunur miðað við Hringbraut 0,0 11,8 19,6 Árlegur sparnaður miðað við Hringbraut Tölur í milljörðum króna Hringbraut Fossvogur „Besti staður“ Árlegur rekstrarkostnaður lægri 0,0 0,5 1,0 Sparnaður vegna styttri ferða á spítalann 0,0 2,1 3,1 Árlegur sparnaður 2,6 4,1 Guðjón Sigurbjartsson Eymundur Sveinn Leifsson Sigurgeir Kjartansson Egill Jóhannsson Gestur Ólafsson Meginstofnvegir Útfærslur til skoðunar Alþjóðaflugvöllur Vöruflutningahöfn Borgarbyggð (2012) Vaxtarmörk Vegir Lega stofnvega Kort úr Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til 2040. Það sýnir fyrirhugaða legu megin stofnvega á höfðborgarsvæðinu til þess tíma. „Besti staður“ fyrir spítalann er greinilega þar sem þessir aðal stofn- vegir mætast. Vilhjálmur Ari Arason fi p y j g p C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa mauki Bruchetta íreymeð tv ðlatu hangikjöti, bal- samrau og piparrótarsósu heBruc ta með hráskinku, balsam rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g meti Krabba a- s a l ðboferskum kryddjurtum í brau Bruchetta rðameð Miðja hafs-tapende aRisa- rækj spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is Möndlu Mix og Kasjú Kurl er ekki bara hollt snakk. Líka gott í salatið. Hollt og gott frá Yndisauka. Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna Akureyri. – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.