Morgunblaðið - 27.06.2015, Side 44

Morgunblaðið - 27.06.2015, Side 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015 Ekkert skuggalegt Þó að nú njótir þín í botn sólar- megin í lífinu, þá má ekki gleyma mikilvægi skuggahliða lífsins. Sér- staklega á milli kl. 12 og 15. Sól- hlífin er 1,8 metra há og fæst með bleikum eða grænum brúsk. 6000 kr. Sólarvörn Villidýr á verði tiger.is · facebook.com/tigericeland Se n d u m íp ó st kr ö fu |s :5 28 82 00 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu þolinmóð/ur og umburð- arlynd/ur og mundu að öðrum getur liðið eins gagnvart þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert hugaður/huguð, frakkur/frökk og full/ur sjálfstrausts í dag. Ekki hika við að taka áhættu og leita spennu einfaldlega uppi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu það eftir þér að skvetta svo- lítið úr klaufunum en gættu allrar háttvísi. Slíkt krefst tillitssemi og þú getur hreinlega ekki horft bara á eigin hagsmuni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Efnislegur ávinningur virðist sífellt mikilvægari, sem og metnaðarfull sókn eftir titlum og metorðum. Vertu varkár í umgengni þinni við aðra í dag. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þeir hlutir sem þú hefur látið þig dreyma um svo lengi eru ekki eins fjarlægir og þú vilt vera láta. Vináttan er mikilvæg svo einbeittu þér að því að styrkja hana og rækta. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Daginn ættir þú að nota í tilrauna- starfsemi. Vertu ekki of upptekin/n af því sem aðrir eru að bardúsa. Þú átt nóg með sjálfa/n þig þessa dagana. 23. sept. - 22. okt.  Vog Fá markmið verða að veruleika án stuðn- ings. Ef þú lítur fram hjá eigin þörfum er lítið gagn í þér fyrir aðra. Passaðu að keyra þig ekki út. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Óreiða og spenna á heimili er líkleg vegna flutninga, endurbóta eða ætt- ingja sem koma í heimsókn. Líttu á þá til- breytingu jákvæðum augum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú mátt ekki leggja svo hart að þér við vinnu að þú finnir þér aldrei stund eða stað til þess að sinna eigin hugðarefnum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Notaðu daginn til þess að fara í gegnum skápa, kjallara, skúmaskot og þvottakörfuna. Notaðu daginn einnig til að styrkja fjölskylduböndin og skipuleggðu eitt- hvað óvænt, einfalt og skemmtilegt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur átt í ákveðnum erfið- leikum undanfarið sem nú eru að baki. Ekki láta stoltið ráða för. Einbeittu þér við næsta verkefni því þá verður þú sátt/ur við útkom- una. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að gæta þín þegar þú deilir einhverju með öðrum. Daglegar venjur fara í taugarnar á þér en hættu að pæla í þeim. Gættu þess að hugsa ekki allt of mikið um eitthvað sem skiptir engu máli. Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson: Rani fjalls það reynist vera. Reipis líka spotta finn. Skott, sem margar meyjar bera. Á meiði loks er toppurinn. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Í fjallstagli er fé á beit. Finnst enn reiptagl hér. Tagl í hári tíðkast veit. Tagl á meiði er. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Skyttan strítt hár tók í tagl, taglreip’ í fjalltagli hæfði. Í eikartagl hélt með sitt hagl, hagamús ofanfrá svæfði. Guðmundur svarar sjálfum sér þannig: Eftir tagli á fjallið fer. Finn í skemmu reiptaglið. Skott er tagl, sem telpan ber. Tagl er efst á reynivið. Og bætir síðan við limru: Svo töfrandi töff var Benni með taglstúf og hárband um enni, að jálkar með stert ei gátu að því gert að glápa á það stertimenni. Hér kemur svo ný gáta eftir Guðmund: Harla margs er halur vís. Á hafi mikil alda rís. Alvott grasið gerir sá. Gjarnan ver þann kalla má. Helgi R. Einarsson skrifaði og sagðist hafa verið lítið heima upp á síðkastið og því ekki sinnt vísna- gátunum. – „Um helgina vorum við hjónin í Jónsmessunæt- urgöngu með Útivist frá Básum í Þórsmörk. Á laugardagskvöldið var varðeldur, söngur, glens og gaman og tilfinningar æskunnar leyndu sér ekki. Þá urðu til þessar vísur: Rómantíkin ríkir hér, rauðu sprekin braka. Nú er lag að leika sér og leggja drög að maka. Rjómalöguð rómantík með rembingskossı́ hann valdi. Hann vaknaði upp í engri flík í ókunnugu tjaldi.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af taglstúf, hárbandi og rómantík Í klípu „EF ÉG GÆTI FARIÐ TIL BAKA OG BREYTT HLUTUM, ÞÁ MYNDI ÉG GERA ÞAÐ - EN ÉG GET ÞAÐ EKKI ÞVÍ ÞEIR ERU BÚNIR AÐ LÆSA MIG INNI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HRISTIR ÞÚ FLÖSKUNA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera hrifin upp fyrir haus. VEISTU, JÓN, GRETTIR ER NÆSTUM ÞVÍ EINS OG BARNIÐ ÞITT. GEF MÉR MAT, PABBI! ÉG VILDI AÐ ÞÚ GÆFIR HONUM ENGAR HUGMYNDIR. OPN! ÉG FÆRI ÞÉR GÓÐAR FRÉTTIR, HRÓLFUR! ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ KLÆÐAST AUKAFYLLINGU TIL AÐ LEIKA JÓLASVEININN ÞETTA ÁRIÐ! HVERJAR ERU ÞÆR, DR. SAXI? UPPBOÐ HÁR ENDUR- BYGGING. NÝTTÓTR ÚLE GT Hlátrasköll í blankalogni, þar semsólin var hátt á himni og steikj- andi hiti í gróðursælum lundi á höf- uðborgarsvæðinu gerðist ævintýrið. Það var þegar Leikhópurinn Lotta flutti leikritið um Litlu gulu hænuna. Enn og aftur nær þessi skemmtilegi leikhópur að töfra fram einstaklega flott og skemmtilegt leikrit og það í náttúrunni. x x x Leikhópurinn nýtir náttúruna íallri sinni einstöku dýrð. Það býður upp á öðruvísi nálgun en ef það væri sett upp á leikhúsfjölunum. Það er nefnilega falleg hugsun og mikil kúnst að færa leikhúsið til barnanna. Með þessum hætti þá kynnast fleiri börn undraheimi leik- hússins og þeim töfrum sem leikritið nær að kalla fram. x x x Það er óhætt að segja að mikilgróska hefur verið síðustu ár í leikhúslífinu sem miðar að yngstu kynslóðinni. Sjálfstæðir leikhópar hafa samið og sett upp hvert leik- verkið á fætur öðru svo foreldrar hafa oft á tíðum marga skemmtilega möguleika á að velja vandað og skemmtilegt leikrit fyrir börnin. x x x Það eru ekki endilega alltaf for-eldrarnir sem fara með börnin sín í leikhús heldur eru það skólarnir og þá oft foreldrasamtökin í leik- og grunnskólunum sem fá listamenn í skólana og bjóða börnunm upp á það. Það er einstaklega gott og skemmtilegt framtak sem verður til þess að fleiri kynnist listinni. x x x Leikritið sjálft, Litla gula hænan,er einstaklega vel upp byggt og skemmtilegt leikrit. Það er sam- bræðingur ævintýra sem leikhóp- urinn er þekktur fyrir í leikritum sínum. Það gefur leikritunum nýja vídd að blanda saman þekktum æv- intýrum svo úr verður eitthvað nýtt. Eins og flest öll verk sem miða að börnum þá er alltaf einhver boð- skapur og er það vel. Góð vísa er aldrei of oft kveðin þegar kemur að því að boða gott innræti. víkverji@mbl.is Víkverji Eitt sinn voruð þér myrkur, en nú eruð þér ljós í Drottni. Hegðið yður eins og börn ljóssins. (Efes. 5:8.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.